Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2020, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2020, Page 16
16 3. janúar 2020FRÉTTIR Hvað kostar að skilja? n Jólin senn á enda og sambandskergja gerir vart við sig á ný n Kostnaður við skilnað er mismikill N ú fer jólahátíðinni senn að ljúka og þá huga kannski einhverjir að skilnaði, enda nenna líklega fæstir að standa í slíku samhliða jólahaldi. Í janúar kemur VISA-reikningurinn, hversdagsleikinn kemst aftur á og kergja í samböndum gerir vart við sig að nýju. En kostar eitthvað að skilja? Hvernig gæti kostnaður við hjónaskilnað litið út? DV tók saman gróflega áætlaðan kostnað við hjónaskilnað í dag. Ódýri pakkinn Ef þau sem í hlut eiga eru sammála um að hjónabandið sé liðið undir lok og tímabært að gera það opinbert, þá er kostnaður vegna þess ekki mikill. Í ódýra pakkanum ger- um við ráð fyrir annars vegar barnlausum hjónum á leigu- markaði og hins vegar kjarnafjölskyldu með tvö börn, einnig á leigumarkaði. Venju samkvæmt þurfa hjón fyrst að sækja um skilnað að borði og sæng hjá Sýslumanni. Slíkt leyfi kostar 5.000 krónur. Að sex mánuðum liðnum, séu einstaklingar sam- mála um skilnaðinn þá er hægt að sækja sameiginlega um lögskilnað. Ellegar getur annar aðilinn sótt um slíkan að 12 mánuðum liðnum. Kostnaður við lögskilnað hjá sýslu- manni eru 6.000 krónur. Ef aðilar skipta svo eignum sjálf- ir sín á milli þá þarf ekki að koma til neinn auka kostn- aður. Kjarnafjölskyldan þarf að gera samning um forsjá og meðlagsgreiðslur en einfalt meðlag er í dag 35.565 krón- ur. Sameiginleg forsjá er meginregla við skilnað en engu að síður gera lög í dag ráð fyrir að barn eigi lögheimili hjá öðru foreldri og verður hitt foreldrið þá meðlagsskylt. Því gæti meðlagskostnaður á annað foreldrið hjá kjarnafjöl- skyldunni orðið rúmar 70 þúsund krónur en algeng leið til að komast hjá þeim kostnaði væri að börnin hefðu lög- heimili hvort á sínu heimilinu og meðlagskostnaður skipt- ist þá jafnt á milli foreldra og verður í reynd enginn. Ef aðeins væri eitt barn í spilinu þá væri hægt að semja um meðlagsgreiðslur, án þess að rukka þær, en um það verð- ur að ríkja sátt. Eignaskiptapakkinn Ef hjón eiga fasteign saman þá þarf annaðhvort að selja hana og skipta hagnaði og skuldum á milli þeirra, eða annað hjónanna kaupir hitt út. Það hjónanna sem ætlar að kaupa hitt út úr eigninni þarf að standast greiðslumat. Algengur kostnaður við greiðslumat er á bilinu 5–10 þús- und krónur. Meginreglan við skilnað er svonefnd helm- ingaskiptaregla en í henni felst að allar eignir eru taldar hjúskapareign og á hvort hjóna fyrir sig tilkall til helmings hverrar slíkrar eignar. Þessi regla gildir þó ekki ef kaup- máli hefur verið gerður um eign eða ef um er að ræða arf sem gefinn hefur verið með því skilyrði að um séreign sé að ræða. Deilupakkinn Ef aðilar eru ósammála um að skilja, eða ósammála um fjárskipti, þá þarf að leita aðstoðar dómstóla með tilheyr- andi kostnaði. Engin skylda hvílir á aðilum að leita sér lög- fræðiaðstoðar, enda er það réttur fólks í einkamálum að flytja mál sín sjálft. Þó er það líklega sterkur leikur að leita sér slíkrar aðstoðar, sé ætlunin að fá fram besta mögulega niðurstöðu sér í hag. Algengur kostnaður vegna liðsinnis lögmanns er 25 þúsund krónur á tímann. Það er rukkað til tímagjalds fyrir tölvupóst, símtöl og flest samskipti aðila við lögmanninn og því getur gjaldið fljótt farið upp í hund- ruð þúsunda ef um flókin fjárskipti er að ræða. Platínumpakkinn Fyrir mjög ósátta, líkast til stóreignafólk, er hægt að fara platínumleiðina. Þá er hægt að leita liðsinnis Sveins Andra Sveinssonar sem tekur 50 þúsund krónur á tímann og fyrr en varir er ekkert eftir til að bítast um. Þá má jafnframt fara fram á framfærslu frá maka sínum meðan á skilnaði að borði og sæng stendur. Hjón eru framfærsluskyld hvort við annað meðan á skilnaði að borði og sæng stendur og því þarf að taka afstöðu til þess hvort annað hjóna skuli greiða hinu framfærslulífeyri þegar leyfi til skilnaðar að borði og sæng er veitt. Þá er hægt að fara fram á framfærslulífeyri frá því hjóna sem er tekjuhærra til að jafna út aðstöðumun og minnka fjárhagslegt áfall fyrir þann maka sem er tekju- lægri. Tekjuhærri aðilinn gæti svo farið fram á að undan- tekningar yrðu gerðar á helmingaskiptareglunni með svo- nefndri skáskiptareglu. En hún kemur til greina þegar það væri bersýnilega ósanngjarnt að skipta eign til helminga. Til dæmis gæti hún komið til álita ef annað hjóna hafi átt eign við upphaf hjónabands sem hefur varað stutt. Í platínumpakkanum hleypur kostnaðurinn á fleiri hundrað þúsundum vegna lögfræðikostnaðar, fjárskipta og framfærslu. Framangreint er bara tekið sem dæmi og ljóst að ef við- komandi eru á eitt sáttir með að skilja og taka það að sér sjálfir að skipta búinu, þá er kostnaðurinn ekki ýkja mikill, eða 11.000 krónur fyrir annars vegar skilnað að borði og sæng og hins vegar lögskilnað. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.