Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2020, Síða 16
16 3. janúar 2020FRÉTTIR
Hvað kostar að skilja?
n Jólin senn á enda og sambandskergja gerir vart við sig á ný n Kostnaður við skilnað er mismikill
N
ú fer jólahátíðinni senn að ljúka og þá huga kannski
einhverjir að skilnaði, enda nenna líklega fæstir að
standa í slíku samhliða jólahaldi. Í janúar kemur
VISA-reikningurinn, hversdagsleikinn kemst aftur
á og kergja í samböndum gerir vart við sig að nýju.
En kostar eitthvað að skilja? Hvernig gæti kostnaður
við hjónaskilnað litið út? DV tók saman gróflega áætlaðan
kostnað við hjónaskilnað í dag.
Ódýri pakkinn
Ef þau sem í hlut eiga eru sammála um að hjónabandið
sé liðið undir lok og tímabært að gera það opinbert, þá er
kostnaður vegna þess ekki mikill. Í ódýra pakkanum ger-
um við ráð fyrir annars vegar barnlausum hjónum á leigu-
markaði og hins vegar kjarnafjölskyldu með tvö börn,
einnig á leigumarkaði.
Venju samkvæmt þurfa hjón fyrst að sækja um skilnað
að borði og sæng hjá Sýslumanni. Slíkt leyfi kostar 5.000
krónur. Að sex mánuðum liðnum, séu einstaklingar sam-
mála um skilnaðinn þá er hægt að sækja sameiginlega um
lögskilnað. Ellegar getur annar aðilinn sótt um slíkan að
12 mánuðum liðnum. Kostnaður við lögskilnað hjá sýslu-
manni eru 6.000 krónur. Ef aðilar skipta svo eignum sjálf-
ir sín á milli þá þarf ekki að koma til neinn auka kostn-
aður. Kjarnafjölskyldan þarf að gera samning um forsjá og
meðlagsgreiðslur en einfalt meðlag er í dag 35.565 krón-
ur. Sameiginleg forsjá er meginregla við skilnað en engu
að síður gera lög í dag ráð fyrir að barn eigi lögheimili hjá
öðru foreldri og verður hitt foreldrið þá meðlagsskylt. Því
gæti meðlagskostnaður á annað foreldrið hjá kjarnafjöl-
skyldunni orðið rúmar 70 þúsund krónur en algeng leið
til að komast hjá þeim kostnaði væri að börnin hefðu lög-
heimili hvort á sínu heimilinu og meðlagskostnaður skipt-
ist þá jafnt á milli foreldra og verður í reynd enginn. Ef
aðeins væri eitt barn í spilinu þá væri hægt að semja um
meðlagsgreiðslur, án þess að rukka þær, en um það verð-
ur að ríkja sátt.
Eignaskiptapakkinn
Ef hjón eiga fasteign saman þá þarf annaðhvort að selja
hana og skipta hagnaði og skuldum á milli þeirra, eða
annað hjónanna kaupir hitt út. Það hjónanna sem ætlar
að kaupa hitt út úr eigninni þarf að standast greiðslumat.
Algengur kostnaður við greiðslumat er á bilinu 5–10 þús-
und krónur. Meginreglan við skilnað er svonefnd helm-
ingaskiptaregla en í henni felst að allar eignir eru taldar
hjúskapareign og á hvort hjóna fyrir sig tilkall til helmings
hverrar slíkrar eignar. Þessi regla gildir þó ekki ef kaup-
máli hefur verið gerður um eign eða ef um er að ræða arf
sem gefinn hefur verið með því skilyrði að um séreign sé
að ræða.
Deilupakkinn
Ef aðilar eru ósammála um að skilja, eða ósammála um
fjárskipti, þá þarf að leita aðstoðar dómstóla með tilheyr-
andi kostnaði. Engin skylda hvílir á aðilum að leita sér lög-
fræðiaðstoðar, enda er það réttur fólks í einkamálum að
flytja mál sín sjálft. Þó er það líklega sterkur leikur að leita
sér slíkrar aðstoðar, sé ætlunin að fá fram besta mögulega
niðurstöðu sér í hag. Algengur kostnaður vegna liðsinnis
lögmanns er 25 þúsund krónur á tímann. Það er rukkað til
tímagjalds fyrir tölvupóst, símtöl og flest samskipti aðila
við lögmanninn og því getur gjaldið fljótt farið upp í hund-
ruð þúsunda ef um flókin fjárskipti er að ræða.
Platínumpakkinn
Fyrir mjög ósátta, líkast til stóreignafólk, er hægt að fara
platínumleiðina. Þá er hægt að leita liðsinnis Sveins Andra
Sveinssonar sem tekur 50 þúsund krónur á tímann og fyrr
en varir er ekkert eftir til að bítast um. Þá má jafnframt fara
fram á framfærslu frá maka sínum meðan á skilnaði að
borði og sæng stendur. Hjón eru framfærsluskyld hvort við
annað meðan á skilnaði að borði og sæng stendur og því
þarf að taka afstöðu til þess hvort annað hjóna skuli greiða
hinu framfærslulífeyri þegar leyfi til skilnaðar að borði og
sæng er veitt. Þá er hægt að fara fram á framfærslulífeyri
frá því hjóna sem er tekjuhærra til að jafna út aðstöðumun
og minnka fjárhagslegt áfall fyrir þann maka sem er tekju-
lægri. Tekjuhærri aðilinn gæti svo farið fram á að undan-
tekningar yrðu gerðar á helmingaskiptareglunni með svo-
nefndri skáskiptareglu. En hún kemur til greina þegar það
væri bersýnilega ósanngjarnt að skipta eign til helminga.
Til dæmis gæti hún komið til álita ef annað hjóna hafi átt
eign við upphaf hjónabands sem hefur varað stutt.
Í platínumpakkanum hleypur kostnaðurinn á fleiri
hundrað þúsundum vegna lögfræðikostnaðar, fjárskipta
og framfærslu.
Framangreint er bara tekið sem dæmi og ljóst að ef við-
komandi eru á eitt sáttir með að skilja og taka það að sér
sjálfir að skipta búinu, þá er kostnaðurinn ekki ýkja mikill,
eða 11.000 krónur fyrir annars vegar skilnað að borði og
sæng og hins vegar lögskilnað. n