Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2020, Side 18
Sérblað 03. janúar 2020KYNNINGARBLAÐ
NÝJA TÆKNIHREINSUNIN:
Umhverfisvænn
kostur í
gardínuþvotti
Í ris Eiríksdóttir og eiginmaður hennar reka saman fyrirtækið Nýja
tæknihreinsunin, en það
fyrirtæki sérhæfir sig í
gardínuþvotti.
Rótgróið fyrirtæki
Nýja tæknihreinsunin hefur
verið starfrækt í yfir 20 ár,
en það voru tengdaforeldrar
Írisar sem stofnuðu fyrirtækið.
Upphaflega var reksturinn á
Selfossi en þegar þau hjónin
tóku við rekstrinum færðu þau
hann yfir í Kópavog. Síðan þá
hefur reksturinn blómstrað og
verkefnum fjölgað gífurlega.
Nýja tæknihreinsunin er með
föst verkefni í gardínuþvotti
fyrir Alþingi, Landspítalann,
Össur og fleiri stóra aðila.
Notast er við eina stóra vél
fyrir verkin, sem er innflutt frá
Bandaríkjunum, en vélin er
sérhönnuð fyrir gardínuþvott
og gerð úr sérsmíðuðu stáli.
Í vélina er síðan sett sérstök
náttúruvæn sápa sem hentar
vel fyrir gardínur.
Nýja tæknihreinsunin hefur
sérhæft sig í sótthreinsun á
gardínum fyrir myglu og hefur
unnið mörg verkefni því tengd
fyrir stór fyrirtæki.
Hentar bæði einstaklingum og
fyrirtækjum
Nýja tæknihreinsunin sinnir
bæði gardínuþvotti fyrir
einstaklinga, fyrirtæki og
stofnanir. Almenningur kemur
gjarnan með gardínur í þvott
fyrir jólin en verkefni fyrir
fyrirtæki og stofnanir eru stærri
og reglulegri. Gardínuþvottur
getur sparað heilmikla peninga
bæði fyrir einstaklinga og
fyrirtæki.
Íris segir að gott sé að
þvo gardínur á að minnsta
kosti tveggja ár fresti: „Sólin
eyðileggur þetta svo mikið ef ekki
er þvegið,“ segir hún að lokum.
Hægt er að hafa samband við
Nýju tæknihreinsunina í síma
897-3634.
Nýja tæknihreinsunin
Askalind 4, 200 Kópavogur