Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2020, Page 21
Sérblað03. janúar 2020 KYNNINGARBLAÐ
HUGRÆN ENDURFORRITUN:
Lykillinn að árangri og vellíðan
Dáleiðsla er öflug meðferðarleið fyrir þá sem glíma við hvers kyns fíkn,
neikvæðar tilfinningar, kvíða,
þunglyndi, og jafnvel mígreni,
ofnæmi, astma og marga fleiri
kvilla. „Ástæðan fyrir því að
okkur líður illa hefur í fjölmörgum
tilfellum með áföll að gera. Áhrif
áfalla geta verið afar lúmsk og
dulist djúpt í undirvitundinni.
Til þess að leysa vandann er
nauðsynlegt að vinna með fólki á
því stigi sem vandamálið felur sig
og þar er dáleiðslan einmitt afar
áhrifamikil. Það er líka algengt
að fólk þurfi ekki nema eitt skipti
í dáleiðslu og vandamálið er
horfið á braut,“ segir Ingibergur
Þorkelsson, stofnandi og
skólastjóri Dáleiðsluskóla Íslands.
Skráning er hafin í
dáleiðslunámskeið sem
nýtist á fjölmörgum sviðum
atvinnulífsins
Þann 7. febrúar mun
Dáleiðsluskóli Íslands halda
tíu daga grunnnámskeið í
meðferðardáleiðslu. „Þetta
er áttunda árið sem við
höldum námskeiðin, en fyrstu
námskeiðin voru haldin árið
2011.“ Dáleiðsluskóli Íslands hefur
á að skipa nokkrum af færustu
dáleiðendum á Íslandi sem kenna
hvort tveggja grunnnámskeið
í meðferðardáleiðslu um
það bil tvisvar á ári, og svo
framhaldsnámskeið einu sinni á
ári. Skráning er hafin á vefsíðu
skólans dáleiðsla.is.
Færir kennarar
Dáleiðsluskólinn hefur útskrifað
yfir þrjú hundruð manns úr
grunnnámskeiðum sínum en
námskeiðið er opið öllum sem hafa
áhuga á að kynna sér ótrúleg áhrif
dáleiðslu sem meðferðarleiðar.
„Dáleiðsla hentar fjölmörgum
starfstéttum, en flestir sem sækja
námskeiðið vinna með annað fólk
á einhvern hátt. Þar má t.d. nefna
hjúkrunarfræðinga, sjúkraþjálfara,
nuddara, höfuðbeina- og
spjaldhryggsmeðferðaraðila og
kennara,“ segir Ingibergur sem
kennir grunnnámskeiðið ásamt Axel
Braga og Álfheiði Evu Óladóttur.
Ingibergur er reyndur dáleiðandi
og rekur eigin stofu utan skólans.
Hann kennir einnig djúpmeðferð
á framhaldsnámskeiði skólans.
Axel starfar sem sjúkraþjálfari og
fimleikaþjálfari og er einnig reyndur
dáleiðandi. Ásdís hefur verið í
fararbroddi í kennslu núvitundar á
Íslandi. Hún er reyndur fyrirlesari
og háskólakennari og stundar nú
doktorsnám á sviði núvitundar.
„Eftir að hafa sótt grunnnámskeið
í meðferðardáleiðslu getur
fólk haldið áfram hjá okkur og
sótt framhaldsnámskeið,“ segir
Ingibergur.
Djúpnæring fyrir hugann
Dáleiðsla er ólík flestum öðrum
hugrænum meðferðum að því
leyti að það er unnið á dýpri
og varanlegri hátt. „Í flestum
hugrænum meðferðum er fólki
kennt að lifa með vandanum,
frekar en að fjarlægja rót hans. Ef
við tökum sem dæmi lyftuhræðslu.
Í hugrænni atferlismeðferð lærir
fólk að bregðast við óttanum og
lifa með honum. Óttinn hverfur
ekki þótt meðferðarþeginn geti
ferðast með lyftunni. Dáleiðsla
felst hins vegar í því að ná
sambandi við undirvitundina
og vinna með vandamálið á
því stigi. Meðferðarþeginn
er leiddur í dáleiðslu með
fljótlegum aðferðum og svo er
rætt við undirvitundina. Óttinn
er fjarlægður úr undirvitundinni
og meðferðarþeginn finnur ekki
lengur til óttans þegar hann
ferðast með lyftu.“
Hefur þig alltaf dreymt um
að ganga regnbogann til
skýjaborga?
„Dagana 8. og 9. maí verðum
við svo með opið tveggja daga
námskeið í Sjálfsdáleiðslu og
skírdreymi. Sjálfsdáleiðsla er afar
öflug fyrir þá sem vilja læra að
taka stjórn á eigin huga. Hinn
hluti námskeiðsins, skírdreymi,
er aðferð til að stjórna eigin
draumum. „Með skírdreymi getur
þú gert allt sem hugur þinn
getur ímyndað sér. Flogið, svifið,
ferðast, dansað, kafað, hvað
sem er. Kennari námskeiðsins er
Michal Cieslakowski, en hann er
vel þekktur bæði í heimalandi
sínu, Póllandi, og víðar í Evrópu
og Bandaríkjunum. Hann hefur
sérhæft sig í sjálfsdáleiðslu, svefni
og draumum.“
Nánari upplýsingar má finna á
dáleiðsla.is
Dáleiðsluskóli Íslands, Ármúla 20,
108 Reykjavík
Sími: 835-5600
Mynd: Eyþór Árnason