Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2020, Page 26
26 3. janúar 2020
SAKAMÁL
C
arol Park, þrítug bresk kona,
hvarf í Cumbria á Englandi
17. júní árið 1976. Carol,
sem var kennari, sást ekki á
lífi eftir það. Áður en Carol hvarf
hafði hún, að sögn vina og kunn-
ingja, virst hálfniðurdregin. Hún
hafði talað um að finna blóðfor-
eldra sína, en hún hafði verið ætt-
leidd í æsku.
Að sögn eiginmanns hennar,
Gordons Park, hafði Carol yfir-
gefið hann fyrir annan karlmann
og það þótti ekki ósennilegt í ljósi
þess að hjónaband þeirra hafði
verið róstusamt og Carol hafði í
reynd í tvígang látið sig hverfa af
heimili þeirra í Leece. Þess vegna,
að eigin sögn, hafði Gordon ekki
haft fyrir því að tilkynna yfirvöld-
um um hvarf hennar fyrr en að
sex vikum liðnum.
Sagðist slöpp og var heima
Fjarvistir sínar hafði Carol alla
jafna miðað við upphaf nýrrar
annar í skólanum, en í þetta
skipti var hana hvergi að finna
við þau tímamót. Það var sem
sagt ekki fyrr en þá sem Gordon
ályktaði að eitthvað væri að og
fyrir milligöngu lögfræðings síns
hafði hann samband við lögreglu
og upplýsti fjölskyldu Carol um
stöðu mála.
Daginn þegar Carol hvarf var
ætlunin að fjölskyldan færi í dags-
ferð til Blackpool, en Carol sagð-
ist vera slöpp og ákvað að taka því
rólega heima.
Gordon sagði síðar að þegar
hann kom heim hefði Carol
greinilega yfirgefið húsið og skil-
ið eftir giftingarhring sinn. Ekkert
hefði bent til átaka.
Óstaðfestur orðrómur
Lausleg rannsókn var fram-
kvæmd en skilaði engu. Sagan
segir að skýrslan um hvarf Carol
hafi síðar týnst og sú saga fór
á kreik að Gordon og rann-
sóknarlögreglumaðurinn sem
fór fyrir þessari fyrstu rannsókn
hefðu verið stúkufélagar í Frí-
múrarareglunni. Þeirri sögu var
síðar hafnað og sagt að Gordon
hefði í raun aldrei verið frímúrari.
Nú, jæja. Tíminn leið og ekkert
spurðist til Carol fyrr en árið 1997
þegar lík hennar fannst á botni
Coniston-vatns, sem er þriðja
stærsta vatnið í Vatnahéraðinu.
Konan í vatninu
Þegar kafarar fundu lík Carol á
botni vatnsins, þann 13. ágúst,
var það aðeins íklætt náttfötum.
Var hún nefnd eftir skáldsögu
Raymonds Chandler; The Lady in
the Lake.
Líkið var vafið í ermalausan
slopp og við það bundinn bak-
poki úr strigaefni og plastpokar
fylltir með grjóti. Carol hafði verið
bundin með reipi og auk grjóts-
ins höfðu blýrör verið notuð til að
þyngja líkið. Plástur hafði verið
límdur yfir augu hennar.
Líkið hafði lent á syllu og ljóst
að ef því hefði verið fleygt í vatn-
ið aðeins fjær landi þá hefði það
að öllum líkindum aldrei fundist.
Flóknir hnútar
Miklir áverkar voru á höfðinu og
greinilega hafði Carol verið bar-
in ítrekað í andlitið. Síðar varð
ljóst að ísöxi hafði verið notuð
við barsmíðarnar. Líkið var bund-
ið í fósturstellingu og hnútarnir
voru margir hverjir óvenjulegir
og flóknir og leiddi rannsókn í
ljós að álíka hnúta var að finna
heima hjá Gordon og um borð í
báti hans.
Þegar lík Carol fannst var
Gordon á hjólreiðaferðalagi í
Frakklandi ásamt þriðju eigin-
konu sinni og þar sá hann frétt-
ir af líkfundinum. Þegar hann
kom heim, 24. ágúst, viðhafði
lögreglan engin vettlingatök og
handtók hann hið snarasta enda
var hann eðlilega grunaður um
að hafa komið eiginkonu sinni
fyrir kattarnef.
Ákæra felld niður
Hann var þó frjáls ferða sinna
gegn greiðslu tryggingar og svo
fór að ákæra á hendur honum var
felld niður þann 6. janúar, 1998,
vegna skorts á sönnunargögnum.
Í kjölfarið sagði Gordon að
hann vildi „reyna að hætta að
hugsa um þetta allt, þar á með-
al atburði sem áttu sér stað fyrir
21 ári, og einbeita sér að daglegu
lífi.“
Gordon ákærður að nýju
Gordon tókst að gera það til 13.
janúar árið 2004 þegar hann var
handtekinn að nýju og ákærð-
ur fyrir morðið á Carol. Lög-
reglan hafði komist yfir nýjar
vísbendingar, þar á meðal vitn-
isburð Michaels nokkurs Wain-
wright, klefanautar Gordons þær
tvær vikur sem hann hafði verið
í haldi 1997. Að sögn Michaels
hafði Gordon játað fyrir honum
að hafa banað Carol. Lögregla Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
KONAN Í VATNINU
n Carol Park hvarf einn góðan veður dag 1976 n Lík hennar fannst 1997
n Leyndur elskhugi var nefndur til sögunnar n Ekki þurfti að leita langt yfir skammt
Carol og Gordon Park
Kynntust á unglingsaldri.