Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2020, Side 29
PRESSAN 293. janúar 2020
Kynlíf á milli tegunda og fræg bóseind
Skammtatölvur slógu hinum hefð-
bundnu tölvum við. Á síðasta ári til-
kynnti Google að fyrirtækið hefði búið
til skammtatölvu sem hefði náð svoköll-
uðu „Quantum Supremacy“. Það þýðir
að tölvan getur framkvæmt útreikninga
sem tæki „venjulega“ tölvu rúmlega
1.000 ár að framkvæma. Árum saman
höfðu stórir háskólar og stórfyrirtæki
á borð við IBM og Google keppst við
að búa til fyrstu „Quantum Suprem-
acy“-tölvuna. Eins og fyrr segir var það
Google sem var fyrst til að ljúka við
smíði slíkrar tölvu. Rétt er að taka fram
að tölvan er ekki enn orðin alveg virk,
en unnið er að því að koma henni í full-
an gang. Tölvur með slíka getu munu
hafa mikil áhrif á margt. Þær munu geta
framkvæmt gríðarlega flókna og ná-
kvæma útreikninga á skömmum tíma
og dulkóðun, eins og við notum í dag,
verður ekki til mikils því skammtatölvur
munu ekki þurfa langan tíma til að ráða
hana.
Það er ekki daglegur viðburður að nýjar öreindir finnist. En 2012 tilkynntu vísindamenn
að þeir hefður fundið nýja öreind, hina svokölluðu Higgs-bóseind. Þetta var afrakstur
margra ára vinnu en frá 1984 höfðu mörg þúsund vísindamenn unnið að byggingu
heimsins stærsta öreindahraðals, Large Hadron Collider, í Cern í Sviss. Þeirri smíði lauk
2008. Higgs-bóseindin er ný tegund öreinda. Áður voru aðeins tvær tegundir þekktar,
bóseindir og fermíeindir. Higgs-bóseindin veitir hinum tveimur tegundunum massa en
þær eru massalausar þegar þær verða til.
Vísindamenn hafa lengi vitað að lífsstíll
fólks hefur áhrif á líkurnar á þróun ým-
issa sjúkdóma. Árið 2015 uppgötvuðu
danskir vísindamenn að lífsstíll fólks
getur haft áhrif á líkurnar á að börn þess
fái hina ýmsu sjúkdóma. Þetta byggir á
að kynfrumur líkamans muna hvernig
lífsstíll fólks er. Þetta þýðir að þegar sagt
er að „þú ert það sem þú borðar“ á það
kannski einnig við um ófædd börn þín.
Rannsóknir á dýrum, sem hafa verið
gerðar á síðustu árum, styðja þetta því
niðurstöður þeirra sýna að lífsstíll kyn-
slóða erfist á milli kynslóða, lífsstíll sem
er við lýði áður en afkvæmi eru getin.
Í upphafi áratugarins tókst vísindamönn-
um að kortleggja erfðamengi Neander-
dalsmanna. Þá kom í ljós að einstaklingar
af þeirri tegund og einstaklingar af tegund
nútímamanna, Homo sapiens, höfðu
stundað kynlíf saman og eignast börn.
Þetta varð til þess að endurskoða þurfti
þær hugmyndir sem við höfðum um okk-
ur nútímamennina og samband okkar
við Neanderdalsmenn. Ljóst var að miklu
meiri samskipti höfðu verið á milli tegund-
anna en áður var talið. En það kom einnig
í ljós að Homo sapiens höfðu eignast börn
með fleiri tegundum manna. Árið 2010
fannst ný tegund manna, Denisova, í helli
í Síberíu. Tegundin var uppi á sama tíma
og Neanderdalsmenn og Homo sapiens.
Það er sérstaklega fólk í austurhluta Asíu
sem á ættir að rekja til Denisova en erfða-
efni tegundarinnar er að finna í mörgum í
þessum heimshluta. Þetta breytti skilningi
okkar á okkur sjálfum sem tegund. Áður
töldum við að tegund okkar hefði ekki átt
í miklum eða nokkrum samskiptum við
aðrar tegundir manna en nú liggur ljóst
fyrir að við erum ekki eins einstök og við
héldum. Við áttum í samskiptum við aðrar
tegundir, eignuðumst afkvæmi með þeim
og þróuðumst út frá því. Við erum því eins
og margar aðrar dýrategundir sem eiga í
nánum samskiptum við aðrar tegundir og
dreifa erfðaefni sínu þannig.
Skammtatölvur
Kortlagning erfðamengis
Neanderdalsmanna
Lífsstíll þinn hefur hugs-
anlega áhrif á væntanlega
afkomendur þína
Higgs-bóseindin
Framtíðin Skammtatölva Google.
Higgs bóseindin Ný tegund öreinda.