Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2020, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2020, Page 30
30 3. janúar 2020STJÖRNUSPÁ stjörnurnar Spáð í Naut - 20. apríl–20. maí Fiskur - 19. febrúar–20. mars Vatnsberi - 20. janúar–18. febrúar Steingeit - 22. desember–19. janúar Bogmaður - 22. nóvember–21. desember Sporðdreki - 23. október–21. nóvember Vog - 23. sept.–22. október Meyja - 23. ágúst–22 .sept. Ljón - 23. júlí–22. ágúst Krabbi - 22. júní–22. júlí Tvíburi - 21. maí–21. júní Stjörnuspá vikunnar Gildir 5. – 11. janúar Þú ert alltaf að flýta þér að næsta punkti en ekki loka dyrunum að árinu 2019 of fast á eftir þér. Þú skalt taka þér tíma að skoða árið í heild sinni og hnýta hnúta á lausa enda sem eru að bögga þig. Þú færð bráðum gullið tækifæri til að gera upp gamalt mál og þú skalt nýta það út í ystu æsar. Þú ert fegin/n að það er komið nýtt ár, nýr áratugur. Það er tækifæri fyrir þig að byrja á einhverju sem er búið að krauma innra með þér í dágóðan tíma. Eitthvert verkefni eða áskorun sem þú ætlar þér að ná. Þú kynnist nýju fólki í kringum þetta, sem á eftir að hjálpa þér að komast enn lengra en þig hafði dreymt um. Búðu þig undir ansi fjörugan janúar- mánuð, allavega fyrri helminginn af hon- um. Þér er boðið á alls kyns uppákomur og í samkvæmi sem létta svo sannarlega lundina. Þú kynnist merkilegri mann- eskju á einum af þessum viðburðum; manneskju af sama kyni sem þú laðast að. Þú veist ekki hvað þú átt að gera við þessar tilfinningar en ákveður að fylgja þeim í blindni. Vinir þínir og/eða maki eru að undirbúa eitthvað svakalegt geim þér til heiðurs og segja þér frá því þegar þú átt síst von á. Svo ertu búin/n að strengja áramótaheit og gengur alveg herfilega illa að standa við það. Ekki hafa áhyggjur af því þar sem þetta áramótaheit er alveg afspyrnu- heimskulegt. Það er mikil rómantík og ástríða í þínum kortum, ástríðufulla ljón. Það logar allt í svefnherberginu af losta og þú færð bara ekki nóg af maka þínum eða elskhuga. Þú skalt njóta þess að vera hömlulaus í smá stund og gera bara nákvæmlega það sem þér dettur í hug, með samþykki rekkjunautarins. Það hefur mikið mætt á þér síðustu mánuði og þú ert fegin/n að skilja við árið 2019. Þú tekur árinu 2020 fagnandi en samt full/ur efasemda, eins og þín er von og vísa. Ekki hafa svona miklar áhyggjur af öllu og öllum. Reyndu bara að slaka á og hugsa betur um þig sjálfa/n. Það sem gerist, gerist. Þú getur ekki haft stjórn á öllu. Það eru geysilega spennandi tímar framundan, eins og reyndar alltaf hjá voginni. Þú stendur á krossgötum og þarft að kveðja eitthvað sem er þér kært. Þú veist samt að tími þinn á þessum vettvangi er liðinn og kveður með súrsætt bros á vör. Við tekur gullaldartími vogarinnar þar sem henni eru allir vegir færir – þú þarft bara að velja leiðina. Sporðdrekinn skellir sér rækilega á útsölurnar til að reyna að kveða niður einhverjar leiðindaraddir eða manneskju sem fer í taugarnar á honum. Þótt það geti verið gaman að gera vel við sig þá laga verslunarferðir ekki sársauka eða eymd. Nærri lagi væri að eyða þessum peningum í hugleiðslutíma. Þú þarft að taka þig saman í andlitinu og hætta að kenna öllum öðrum um heims- ins vandamál. Þú getur kennt sjálfum þér um þær brenndu brýr sem 2019 geymir. Nú er komið nýtt ár og þú færð annað tækifæri til að gera upp þínar skuldir við fólkið sem stendur þér næst. Drífðu í því strax! Þú kærir þig ekki um meira stuð í bili enda búin/n að vera dag eftir dag í alls kyns uppákomum og gleðskap. Janúar er þinn mánuður til að hvíla lúin bein en einnig til að fara yfir þau markmið sem þú hefur sett þér fyrir nýja árið. Gott ef þú skiptir ekki um vinnu áður en árið er úti og það verður mikið gæfuspor. Þú byrjar fljótt að undirbúa það. Þú finnur nýjan vatnsbera innra með þér – vatnsberann sem er búinn að vera í dvala í dágóðan tíma. Þú verður allt í einu afar hvatvís, hoppar á hvert tækifæri til að hafa gaman og hitta fólk. Þú ert að koma út úr skel erfiðleika og þú gerir það með húrrandi stæl og smelli. Gott hjá þér! Einhleypir fiskar geta búið sig undir það að ástarlífið kvikni á ný. Þú færð símhringingu eða skilaboð frá gömlum félaga sem vill hitta þig. Undirtónninn er ekki rómantískur en hann verður það fljótt þegar þið byrjið að rifja upp gamla tíma. Þetta gæti verið framtíðarmaki ef þið haldið rétt á spilunum. Hrútur - 21. mars–19. apríl Afmælisbörn vikunnar n 5. janúar Davíð Þór Jónsson prestur, 55 ára n 6. janúar Sveinn Ólafur Gunnarsson leikari, 44 ára n 7. janúar Anna Mjöll Ólafsdóttir söngkona, 50 ára n 8. janúar Dóra Takefusa athafnakona, 49 ára n 9. janúar Teitur Örlygsson 53 ára n 10. janúar Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, fyrrverandi þingkona, 48 ára n 11. janúar Ásgeir Kolbeinsson athafnamaður, 45 ára Lesið í tarot Ernulands Áhrifaboltabarn á leiðinni – Svona eiga foreldrarnir saman Átök við drauga fortíðar E rna Kristín Stefánsdóttir, betur þekkt sem Ernuland, hefur vakið mikla athygli í barátt- unni fyrir líkamsvirðingu. DV fannst tilvalið að lesa í tarotspil Ernu og sjá hvað framtíðin ber í skauti sér á nýju ári, en lesendum DV er bent á að þeir geta sjálfir dregið tarotspil á vef DV. Gerir upp fortíðina Fyrst er það 9 sverð. Það táknar að þótt Erna Krist- ín beri sig vel og virðist full af sjálfsöryggi, ber hún enn þungar byrðar úr fortíð sinni sem hún hefur ekki gert almennilega upp. Hún þarf að takast á við drauga fortíðar svo hún geti blómstrað í nútíðinni. Þá þarf hún einnig að hætta að búa til ímyndað- ar hindranir á vegi hennar. Erna Kristín á það til að taka nærri sér skoðanir annarra en það tefur aðeins fyrir henni og velferð hennar. Svo virðist sem kvíði og neikvæðni einkenni líf Ernu Kristínar næstu vikur og hún verð- ur að minna sig á að hún er fullfær um að hreinsa hugann og gera upp gamlar skuldir. Verður að vera einlæg Næsta spil er 6 stafir. Það táknar að Erna Krist- ín hefur lagt sig gríðarlega mikið fram síðustu mánuði og ár. Það hefur vissulega tekið á og oft hefur hún verið við það að gefast upp. Það styttist hins vegar í að hún nái að njóta erfiðisins. Hún fær viðurkenningu fyrir störf sín og fær einnig góðar frétt- ir tengdar einkalíf- inu. Hún gerir sér sífellt betur grein fyrir því að hún verði að vera 100% einlæg við sig og fylgj- endur sína ef hún ætlar að ná jafn langt og hún þráir. Því fyrr sem hún lifir eftir því, því betra. Eniga meniga Loks er það 5 mynt. Það táknar nútíðina en fjár- hagsáhyggjur eru að plaga Ernu Kristínu og hún á jafnvel erfiðara með að finna verkefni en áður. Þá er einhver fátækt einnig sem umlykur andlegu hliðina og þarf Erna Kristín hugsanlega á nýrri áskorun að halda. Hún þarfnast eflaust ástar, umhyggju og ekki síður athygli um þessar mundir en ætti reyndar að leita betur innra með sér. Með því að gera það finn- ur hún ný tækifæri sem tengjast framtíðinni og öðlast þannig skilning á tilgangi lífs- ins. Erna Kristín á góða að og hjálpin er nærri ef hún þarf hana. n Á hrifavaldurinn Móeiður Lárusdóttir og lands- liðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon eiga von á sínu fyrsta barni. DV fannst því tilvalið að lesa í stjörnumerki tilvonandi foreldra og sjá hvernig þeir eiga saman. Móeiður er ljón en Hörður er vatnsberi. Þetta er svo sannarlega par sem tekið er eftir þar sem vatnsberinn er afar vitur og ljónið einstaklega skapandi. Þetta ást- arsamband er stútfullt af orku og í raun er fátt sem get- ur stöðvað þessi tvö. Vissulega myndast oft mikil keppni á milli ljónsins og vatnsberans en hún er ávallt á góðum nótum og er sambandið traust. Þessi merki eru bæði mjög nýjunga- gjörn og leita uppi nýjar áskoranir. Þau eru adrenalín- fíklar og suma daga er lífið einn stór leikur. Ljónið dáist að sjálfstæði og lífssýn vatnsberans á meðan vatnsberinn elskar sjarma og reisn ljónsins. Vatnsberinn fær nýjar hugmyndir daglega en hefur ekki alltaf drifkraftinn til að koma þeim í verk. Þann kraft hefur ljónið. Í þessu sambandi getur komið babb í bátinn ef ljón- ið leyfir vatnsberanum ekki að halda sjálfstæði sínu eða ef vatnsberinn hættir að tala um tilfinningar sínar. Móeiður Fædd: 20. ágúst 1992 Ljón n skapandi n ástríðufull n örlát n hlý n hrokafull n ósveigjanleg Hörður Fæddur: 11. febrúar 1993 Vatnsberi n atorkusamur n frumlegur n sjálfstæður n mannvinur n flýr tilfinningar n skapstór Móeiður og Hörður. Mynd: Skjáskot: Instagram @moeidur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.