Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2020, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2020, Blaðsíða 2
2 10. janúar 2020FRÉTTIR þrætuepli í janúar Hann er kannski dimmur og kaldur en með komu þessa fyrsta mánað- ar fylgja óhjá- kvæmilega ótal efni sem landsmenn sameinast um að elska eða hata. Hér koma nokkur dæmi. Veganúar Fátt er eins heitt í um- ræðunni og hvers kyns matarkúrar sem allir eiga það sameiginlegt að eiga að stuðla að betri líðan, dýra og manna. Það að vera vegan er mikið „inn“ þessa stundina og margir sem hoppa á vagninn og gerast vegan í janúar. Sitt sýnist hverjum en hví ekki að prófa. Hver þarf hvort eð er á kjöti að halda? Eða gæti glóðvolg kjötsúpa kannski yljað meðan mesta veturharkan herjar á lands- menn? Ársfjórðungur Er kominn nýr ársfjórðungur? Eitt lífseigasta þrætuepli síðari tíma er þegar kemur að reglunni um hvenær nýr árfjórðungur gengur í garð en reglulega er deilt um hvort áratugur hefjist á núlli eða einum. Mörgum fannst aldamótin síðustu vera 2000–2001 frekar en 1999–2000. Ef hugmyndin er miðuð út frá Jesú hlýtur hann nú samt að hafa verið núll ára fyrst, eða hvað? Skilafrestur Nær óhjákvæmilegur fylgifiskur útgjalda í kjölfar jólahátíðarinnar er skilafrestur sem límdur er rækilega á þær vörur sem ekki slógu í gegn á aðfangadagskvöld. Verslanir keppast við að hafa frestinn sem stystan og gera þannig verslunarglöðum neytend- um lífið erfiðara áður en útsölubyltingin hellist yfir og verð vörunnar hríðfellur. Áramótaheit Margir strengja þess heit að verða mjórri, betri og reyklausari útgáfur af sjálfum sér í upphafi árs meðan aðrir, sem sumir myndu segja að væru raunsærri týpur, fyrirlíta svo fögur fyrirheit sem fela oftar en ekki í sér von- brigði þegar árangurinn lætur á sér standa. Í beinu framhaldi er vert að minn- ast á yfirfullar líkams- ræktarstöðvar sem þekkja aldrei meiri gósentíð og einmitt í þessum mánuði. Hvort sem um er að ræða áramótaheitatýpuna eða heilbrigðu allt árið um kring-týpuna er fátt meira spælandi en uppbókaðir tímar og troðfullur salur af sveittum sportistum. Skaupið Óhætt er að segja Íslendingar sameinist um sterkar skoðanir þegar kemur að ástsælasta sjónvarpsefni allra lands- manna, áramótaskaupinu, og sitt sýnist hverjum á ári hverju. Hér myndast jafn- an mikil skoðanaskipti þar sem gríðarlegar væntingar geta umbreyst í mikil von- brigði þegar niðurstaðan liggur fyrir enda húmor með öllu afstæður. Á þessum degi, 10. janúar 1810 – Hjónaband Napóleons Bónaparte og Jósefínu keisaraynju var dæmt ógilt. 1902 – Ellen Dougherty varð fyrsti löggilti hjúkrunarfræðingur í heimi. 1929 – Ævintýri Tinna, eftir Hergé, komu út í fyrsta sinn. 1999 – Sjónvarpsþáttaröðin Soprano-fjölskyldan hóf göngu sína á HBO. 2007 – Apple kynnti til sögunnar margmiðlunarforritið iTunes. Fleyg orð „Það þýðir ekkert annað en að vera maður sjálfur. Allir aðrir eru fráteknir.“ – Oscar Wilde EKKI VEITT HEIMILD FYRIR EFTIRSÓTTUM RAFMAGNSHJÓLUM H átt í annað hundruð manns hafa beðið eftir jólagjöfum, nánar til tekið rafmagnshjólum sem seld voru í gámatilboði hjá vefversluninni Hópkaup. is. Tíminn leið, hátíðirnar og áramótin komu og fóru en ekkert bólaði á rafmagnshjólunum, sem framleidd eru af Enox. Ástæðan ku vera sú að tollurinn hafði ekki veitt heimild fyrir afhendingu hjólanna. Þetta kemur fram á vefsíðu verslunarinnar en tilboðið hófst undir lok sumars. Samkvæmt heimildum DV eru viðskiptavinir ekki sáttir við þá töf sem hefur orðið á afhendingu hjólanna og hafa ófáir netverjar viðrað þá kenningu að um svindl hafi verið að ræða hjá versluninni til þess eins að selja fleiri hjól fyrir jól. Ekki náðist í Guðmund Magnason, forstjóra Hópkaupa, við vinnslu fréttarinnar en vefverslunin sendi frá sér tilkynningu og baðst velvirðingar á óþægindunum. Ástæðan var þá sögð tilkomin vegna seinkunar flutningaskips sem flutti hjólin frá Rotterdam. Þyrftu viðskiptavinir jafnframt að sækja rafmagnshjól sitt beint í gáminn við afhendingarmiðstöðina að Flatahrauni. Upphaflega stóð til stóð að afhenda hjólin um miðjan desember. Eftir fjölda fyrirspurna var viðskiptavinum tilkynnt að hjólin kæmu ekki til lands fyrr á Þorláksmessu. Viðskiptavinum var þá tilkynnt að afhending færi fram á milli jóla og nýárs, en sú reyndist ekki raunin. Samkvæmt heimildum eru hjólin enn óhreyfð í tollinum. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.