Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2020, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2020, Qupperneq 17
TÍMAVÉLIN 1710. janúar 2020 notaðist við dulnefnið Dread Pirate Roberts en í árdaga síðunn- ar hafði notandi undir nafninu Altoid stundað það á spjallrásum að kynna síðuna. Í einum slíkum spjallþræði hafði Altoid gefið upp tölvupóstfang. Það tölvupóstfang innihélt fullt nafn Ulbricht. Einnig tókst alríkislögrelgunni að hafa upp á IP-tölu Silk Road og gat þá fundið út hvar í heim- inum síðan var hýst. Það var ekki í Bandaríkjunum heldur á lítilli eyju í Eyjahafi – Íslandi. Banda- ríkin sendu þá réttarbeiðni til ís- lensku lögreglunnar þar sem óskað var eftir aðstoð. Þá hófst aðkoma Lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu á málinu og fylgdist hún með umferð hjá hýs- ingaraðila síðunnar hér á landi og aflaði gagna. Meðal þeirra gagna voru IP-tölur einstaklinga sem tengdust þeim vélbúnaði sem stjórnaði Silk Road. Gögnin sem Lögreglan á höfuð borgarsvæðinu komst yfir reyndust afar mikilvæg fyr- ir rannsókn bandarísku alríkis- lögreglunnar og eftir handtöku Ulbricht var íslensku lögreglunni hrósað sérstaklega fyrir að- komu hennar að málinu í yfirlýs- ingu sem alríkislögreglan gaf út. Gögnin sem lögreglan á Íslandi aflaði vísuðu á stjórnendur Silk Road og alls konar samskipti sem þar höfðu átt sér stað. Mikilvægt þótti einnig hversu fljótt og vel lögreglan tók í réttarbeiðnina frá alríkislögreglunni, en samstarf löggæsluyfirvalda yfir landamæri getur oft verið hægfara og ekki var í gildi sérstakur milliríkjasamn- ingur um lögreglusamstarf sem hefði geta torveldað málið enn frekar. Handtaka Ulbricht Í október árið 2013 var Ulbricht handtekinn á bókasafni í San Francisco þar sem hann bjó á þeim tíma. Þá var hann með fartölvu þar sem hann var skráður inn sem stjórnandi á umsjónarkerfi Silk Road, á notandanafninu Dread Pirate Roberts. Það myndi því reynast erfitt fyrir hann að þræta fyrir aðkomu sína að síðunni. Í fartölvunni fundust einnig milljarða virði af Bitcoin og enn fleiri fundust á USB-lyklum við húsleit á heimili Ulbricht. Ekki nóg með það heldur fannst á far- tölvunni dagbók sem Ulbricht hafði haldið og innihélt mikið af gögnum um aðkomu hans að Silk Road. Morðtilraun Þegar Ulbricht var leiddur fyrir dómara reyndust ásakanirnar á hendur honum öllu alvarlegri en upphaflega var reiknað með. Þar voru sex ákæruliðir um tilraun til manndráps. Við rannsókn alríkislög- reglunnar var haft uppi á einum stjórnenda Silk Road, miðaldra tveggja barna föður sem kallað- ist Curtis Green. Eftir að Green var handtekinn á Ulbricht að hafa óttast að Green gerðist uppljóstr- ari fyrir lögregluna til að hljóta vægari dóm fyrir brot sín. Ulbricht á þá að hafa haft samband við fé- laga sinn á Silk Road og beðið hann um að myrða Green. Þessi félagi reyndist þó vera fíkniefna- lögreglumaður sem hafði farið huldu höfðu á Silk Road til að freista þess að hafa hendur í hári Ulbricht. Til að koma sér enn frekar í mjúkinn hjá Ulbricht þá svið- setti lögreglumaðurinn morðið á Green. Í málinu voru einnig lögð fram sönnunargögn sem sýndu að Ulbricht hafði áður reynt að ráða leigumorðingja til að losna við fjandmenn. Meðal annars átti hann að hafa fengið meðlim í mótorhjólasamtökunum Hells Angels til að drepa notanda á Silk Road sem reyndi að fjárkúga Ulbricht. Morðákærurnar voru felld- ar niður áður en málið var tekið í dóm. Engu að síður þóttu brot Ulbricht alvarleg og hlaut hann tvöfaldan lífstíðardóm, auk fjöru- tíu ára og hefur hann ekki rétt til reynslulausnar. Farsakenndar vendingar Fíkniefnalögreglumaðurinn sem sviðsetti morðið til að leiða Ulbricht í gildru heitir Carl Force. Force sankaði að sér yfir- gripsmiklum upplýsingum um notandanafn Ulbricht, Dread Pirate Roberts, sem hann síð- an notaði til að beita Ulbricht fjárkúgun í skiptum fyrir upp- lýsingar um framvindu rann- sóknarinnar. Force auðgaðist svo enn frekar á málinu með því að selja sögu sína til framleið- enda í kvikmyndaparadísinni Hollywood. Annar lögreglumaður banda- rísku leyniþjónustunnar, Shaun Brigdges, notaði auðkenni Green til að stela peningum Silk Road. Hann stal allt í allt ríflega 100 milljónum af mismunandi reikn- ingum Silk Road. Eftirmálar Ulbricht hefur ítrekað reynt að áfrýja fangelsisdómi sínum en án árangurs. Hann hefur í áfrýjunar- beiðnum sínum vísað til spilltu lögreglumannanna tveggja sem greint er frá hér að framan, en þeir voru báðir sakfelldir fyr- ir brot sín. Ulbricht hefur einnig haldið því fram að lögregla hafi aflað sönnunargagna í málinu með ólögmætum hætti. Bandaríkin greiddu Íslandi í október um 355 milljónir króna fyrir aðstoð við rannsókn máls- ins. Fjárhæðin var lögð inn á sér- stakan löggæslusjóð á forræði dómsmálaráðherra. Um ráðstöf- un fjárhæðarinnar var fjallað á vef stjórnarráðsins í desember og þar sagði meðal annars: „Að- stoð íslenskra löggæsluyfirvalda í máli sem kennt hefur verið við Silk Road reyndist lykilþáttur í að klára málið og lagði lögreglan fram umtalsverða aðstoð í málinu sem skilaði sér í að uppræta ólög- mæta starfsemi. Umtalsvert fé var gert upptækt í formi sýndargjald- miðilsins Bitcoin. Ríkissjóður fékk 15% heildarávinnings eða rúm- lega 355 milljónir króna og hefur nú verið lögfest að þeir fjármun- ir renni í sérstakan löggæslusjóð. Fjármununum er ætlað að efla tækjabúnað lögreglu til að hún sé sem best í stakk búin og búi yfir nauðsynlegum búnaði til að takast á við skipulagða brotastarfsemi.“ Margir hafa verið hand- teknir og sakfelldir vegna við- skipta og aðkomu að Silk Road. Meðal annars hafa menn verið handteknir í Svíþjóð, Bretlandi, Ástralíu og Nýja-Sjálandi og sam- kvæmt heimildum DV er enn verið að fara yfir gögn, rannsaka og saksækja einstaklinga vegna málsins. Ulbricht ætlar ekki að una sínum dóm og sækist enn eftir að fá að áfrýja málinu. Fjöl- skylda hans hefur staðið fyrir söfnun fyrir lögfræðikostnaði og heldur úti síðu á netinu. Þau mót- mæla því hversu þungur dóm- ur Ulbricht er, en brot hans voru ekki ofbeldisfull. Aðkoma Íslands að málinu er dæmi um farsælt samstarf lög- regluyfirvalda þvert á landamæri, en slíkt samstarf, sérstaklega með þeim hraða sem þarna átti sér stað, er ekki sjálfgefið. n „Aðstoð íslenskra löggæslu- yfirvalda í máli sem kennt hefur verið við Silk Road reyndist lykilþáttur í að klára málið Ross Ulbricht Curtis Green

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.