Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2020, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2020, Blaðsíða 6
6 10. janúar 2020FRÉTTIR EIGUM MARGA LITI Á LAGER Nánari upplýsingar á mt.is og í s: 580 4500 HANNAÐ FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR ÁLKLÆÐNINGAR & UNDIRKERFI Ófremdarástand á Bráðadeild „Þetta mun ekki enda vel“ Sigurlaug sárþjáð í þrettán klukkutíma S igurlaug Þuríður Ragnarsdóttir, markaðsfræðingur hjá tímaritinu Icelandic Times, veiktist alvarlega á dögunum og fór upp á Bráðadeild Landspítalans þar sem við tók óhugnanlega löng bið að hennar sögn. Sársaukinn sem hana hrjáði gerði þó biðtímann í hennar huga átakanlegri og bætti óloft, bilanir og þrengsli í biðrými ekki úr skák. Sigurlaug rifjar upp þessa örlagaríku nótt og segir í samtali við DV að mikilvægt sé að fólk geri sér grein fyrir því neyðarástandi sem ríkir í heilbrigðismálum landsins, ekki síst á Landspítalanum. „Þetta er lífshættulegt ástand þarna,“ segir hún. Sigurlaug kveðst hafa verið látin sitja og bíða á hörðum stól í anddyri bráðamóttökunnar í miðju nýrnasteinakasti. Hún segist hafa kastað upp með reglulegu millibili og hafði verið í níu klukkustundir án vatns eða matar. „Sjálfsalar voru ýmist tómir eða bilaðir, lyftur bilaðar, óloft og þrengsli, veikt og slasað fólk í rúmum um alla ganga, oft klesst saman,“ segir Sigurlaug. „Ég fékk lokins hægindastól, hitapoka og lyfjameðhöndlun síðustu þrjár klukkustundirnar, þar sem erlendir læknar sáu að hér var alvara á ferð og ég komst loksins heim eftir þrettán klukkustundir.“ Sigurlaug segist ekki eiga orð til að lýsa ástandinu hjá deildinni og spítalanum almennt. „Ég get vel vitnað um að starfsfólk Landspítalans er að niðurlotum komið og á heiður skilinn fyrir að halda þetta hörmungarástand út,“ segir hún og bætir við: „Þetta mun ekki enda vel. Það sér hver heilvita maður.“ n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.