Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2020, Side 6
6 10. janúar 2020FRÉTTIR
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR
& UNDIRKERFI
Ófremdarástand á Bráðadeild
„Þetta mun ekki enda vel“
Sigurlaug sárþjáð í þrettán klukkutíma
S
igurlaug Þuríður Ragnarsdóttir,
markaðsfræðingur hjá tímaritinu
Icelandic Times, veiktist alvarlega
á dögunum og fór upp á Bráðadeild
Landspítalans þar sem við tók óhugnanlega
löng bið að hennar sögn. Sársaukinn sem
hana hrjáði gerði þó biðtímann í hennar
huga átakanlegri og bætti óloft, bilanir og
þrengsli í biðrými ekki úr skák.
Sigurlaug rifjar upp þessa örlagaríku nótt
og segir í samtali við DV að mikilvægt sé að
fólk geri sér grein fyrir því neyðarástandi
sem ríkir í heilbrigðismálum landsins,
ekki síst á Landspítalanum. „Þetta er
lífshættulegt ástand þarna,“ segir hún.
Sigurlaug kveðst hafa verið
látin sitja og bíða á hörðum stól í
anddyri bráðamóttökunnar í miðju
nýrnasteinakasti. Hún segist hafa kastað
upp með reglulegu millibili og hafði verið í
níu klukkustundir án vatns eða matar.
„Sjálfsalar voru ýmist tómir eða
bilaðir, lyftur bilaðar, óloft og þrengsli,
veikt og slasað fólk í rúmum um alla
ganga, oft klesst saman,“ segir Sigurlaug.
„Ég fékk lokins hægindastól, hitapoka
og lyfjameðhöndlun síðustu þrjár
klukkustundirnar, þar sem erlendir læknar
sáu að hér var alvara á ferð og ég komst
loksins heim eftir þrettán klukkustundir.“
Sigurlaug segist ekki eiga orð til að lýsa
ástandinu hjá deildinni og spítalanum
almennt. „Ég get vel vitnað um að starfsfólk
Landspítalans er að niðurlotum komið
og á heiður skilinn fyrir að halda þetta
hörmungarástand út,“ segir hún og bætir
við: „Þetta mun ekki enda vel. Það sér hver
heilvita maður.“ n