Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2020, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2020, Blaðsíða 28
28 PRESSAN 10. janúar 2020 H ugsanlega hafa ekki margir heyrt um þýska þorpið Büsingen am Hochrhein enda er þetta bara smá- þorp þar sem um 1.450 manns búa. En þorpið og saga þess er stórmerkileg og vitnar um hvern- ig fólk af ólíkum þjóðernum get- ur náð saman og búið í návígi við hvert annað án mikilla vand- kvæða. Þorpið hefur verið nefnt sem hugsanleg fyrirmynd að lausninni á landamæramálum Ír- lands og Norður-Írlands nú þegar Bretland yfirgefur Evrópusam- bandið en landamæramálið hefur verið þungt í vöfum. En víkjum aftur að Büsingen am Hochrhein sem hefur tekist að vera tveggja þjóða þorp öldum saman án mikilla vandræða. Í um- fjöllun BBC um þorpið segir með- al annars að það hafi vakið athygli þann 1. ágúst, sem er þjóðhá- tíðardagur Sviss, að fólk flykktist út á götur þorpsins, götur og hús höfðu verið skreytt svissneska fán- anum í tilefni dagsins og fjöldi fleka og kanóa hefði siglt eftir Rín. Ekki hafi verið annað að sjá en hér hafi verið um fallega sviðsmynd að ræða í svissnesku þorpi en þó hafi eitt atriði skorið sig úr. Það er að þorpið sem um ræðir, Büsingen am Hochrhein, er þýskt og þessi hátíðarhöld hafi því farið fram í Þýskalandi. „Það er gott að fagna dögum sem þessum. Þetta er bara eitt- hvað sem við gerum. Sál okkar og hjarta er Sviss.“ Er haft eftir Roland Güntert, varabæjarstjóra Büsingen am Hochrhein. Hann segir fyrirkomu- lagið ósköp einfalt, í þorpinu gildi þýsk lög og þýsk stjórnvöld ráði þar ríkjum. Hvað varði efnahags- málin þá sé þorpið svissneskt. Þá vaknar spurningin; af hverju Sviss er hjarta og sál þýsks þorps? Ástæðan er sú að þetta litla þorp er algjörlega umlukið Sviss. Þorp- ið er alls ekki landfast við Þýska- land en 700 metrar eru til þýsku landamæranna. Þetta er mjög sér- stakt fyrirkomulag, landfræðilega, stjórnmálalega og skipulagslega. Til eru lönd sem eru algjörlega umlukin öðru landi, til dæmis Lesótó sem er umlukið af Suður- Afríku. En ekki er mikið um að heilu þorpin eða bæirnir séu al- gjörlega aðskildir frá móður- landinu en þó eru til önnur dæmi um það og má þar til dæmis nefna ítalska bæinn Campione d‘Italia sem er einnig í Sviss. Þar búa um 2.000 manns en 23 kílómetrar eru frá bænum til ítölsku landamær- anna. Frá sjöunda áratug nítj- ándu aldar giltu svissnesk tolla- og skattalög í bænum en það breyttist nú á nýársdag. Þá færðist bærinn algjörlega undir ítalska stjórn þrátt fyrir að íbúar hans hafi ekki viljað það. Það er því komið að enda- lokum lágra skatta og svissneskrar þjónustu í bænum en fram til ára- móta var 7,7% virðisaukaskattur gildandi í bænum eins og í Sviss en hann hækkaði í 22% um ára- mótin til jafns við það sem gildir annars staðar á Ítalíu. Bæjarbúar notuðu svissneska franka og bílar þeirra voru með svissnesk skrán- ingarnúmer. Auk þess sáu sviss- nesk yfirvöld um sorphirðu í bæn- um sem og rekstur vatnsveitu. Þýskt og svissneskt Eins og áður sagði eru um 700 metrar til landamæra Sviss og Þýskalands frá Büsingen am Hochrhein en þorpið tilheyrir Þýskalandi stjórnskipulega séð og pólitískt. Hvað varðar efna- hagsmálin þá má segja að þá sé þorpið svissneskt. Þorpið stendur utan Evrópusambandsins eins og Sviss, en Þýskaland er hins vegar aðili að sambandinu. Af þessum sökum hefur þorpið verið nefnt til sögunnar sem fyrirmynd að lausn landamæramáls Írlands og Norður-Írlands við útgöngu Bret- lands úr Evrópusambandinu. Fyrir þremur árum lagði Alasda- ir McDonnell, norðurírskur þing- maður, til að Norður-Írland fengi sérstaka stöðu á borð við þá sem Büsingen am Hochrhein nýtur. Samkvæmt þeirri sérstöðu myndi vera mjög takmörkuð tollgæsla og eftirlit með ferðum fólks yfir landamæri ríkjanna, en það er einmitt þannig sem staðan er á „landamærum“ Büsingen am Hochrhein og Sviss. Með slíku fyrirkomulagi gæti Norður-Írland sagt skilið við Evrópusambandið en samt haldið nánum tengslum við Írland. En ekki eru allir ginnkeyptir fyrir þessari tillögu og telja erfitt að yfirfæra fyrirkomulagið í Büs- ingen am Hochrhein yfir á landa- mæri Írlands og Norður-Írlands þar sem mannfjöldinn sé miklu meiri en um 1,8 milljónir búa á Norður-Írlandi. Á veitingahúsinu Restaurant Waldheim sést vel að þorpið til- heyrir eiginlega tveimur löndum. Á útisvæði veitingahússins ligg- ur landamæralína sem gerir að verkum að það er hægt að sitja í Sviss og borða steik en teygja sig eftir bjór yfir til Þýskalands. Andstæður í hinu daglega lífi Það hefur auðvitað ákveðin áhrif á þorpsbúa að búa í tveimur löndum og þeir þurfa stundum að taka ákvarðanir því tengdar. Í Þýskalandi er evran gjaldmiðill- inn en í þorpinu er yfirleitt notast við svissneska frankann. Flestir þorpsbúa vinna í nærliggjandi svissneskum bæjum en greiða skatta í Þýskalandi (sem eru hærri en í Sviss). Börnin ganga í þýskan grunnskóla í bænum en þegar kemur að því að fara í framhaldsskóla geta þau og for- eldrar þeirra valið á milli land- anna hvað það áhrærir. Þorps- búar eru bæði með þýsk og svissnesk póstnúmer og það sama á við um símanúmer. Það er hægt að velja bæði +49 (þýska landsnúmerið) og +41 (sviss- neska landsnúmerið) þegar hr- ingt er í þorpsbúa. Það er auðvit- að knattspyrnulið í bænum og er það eina þýska liðið sem fær að spila í svissnesku deildarkeppn- inni. Íbúar í bænum eru sagðir tala þýsku eins og Svisslendingar, það er að segja þýskan þeirra er aðeins öðruvísi í framburði en annars staðar. Sagan Það er ákveðin saga á bak við þessa sérstöku stöðu þorps- ins og má rekja hana allt aftur til 1693, löngu áður en Þýska- Tveggja landa þorp Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is Büsingen am Hochrhein Mynd: Wikipedia Hvorki né eða bæði og? Svissneskt eða þýskt þorp?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.