Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2020, Blaðsíða 17
TÍMAVÉLIN 1710. janúar 2020
notaðist við dulnefnið Dread
Pirate Roberts en í árdaga síðunn-
ar hafði notandi undir nafninu
Altoid stundað það á spjallrásum
að kynna síðuna. Í einum slíkum
spjallþræði hafði Altoid gefið upp
tölvupóstfang. Það tölvupóstfang
innihélt fullt nafn Ulbricht.
Einnig tókst alríkislögrelgunni
að hafa upp á IP-tölu Silk Road
og gat þá fundið út hvar í heim-
inum síðan var hýst. Það var ekki
í Bandaríkjunum heldur á lítilli
eyju í Eyjahafi – Íslandi. Banda-
ríkin sendu þá réttarbeiðni til ís-
lensku lögreglunnar þar sem
óskað var eftir aðstoð. Þá hófst
aðkoma Lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu á málinu og
fylgdist hún með umferð hjá hýs-
ingaraðila síðunnar hér á landi og
aflaði gagna. Meðal þeirra gagna
voru IP-tölur einstaklinga sem
tengdust þeim vélbúnaði sem
stjórnaði Silk Road.
Gögnin sem Lögreglan á
höfuð borgarsvæðinu komst
yfir reyndust afar mikilvæg fyr-
ir rannsókn bandarísku alríkis-
lögreglunnar og eftir handtöku
Ulbricht var íslensku lögreglunni
hrósað sérstaklega fyrir að-
komu hennar að málinu í yfirlýs-
ingu sem alríkislögreglan gaf út.
Gögnin sem lögreglan á Íslandi
aflaði vísuðu á stjórnendur Silk
Road og alls konar samskipti sem
þar höfðu átt sér stað. Mikilvægt
þótti einnig hversu fljótt og vel
lögreglan tók í réttarbeiðnina frá
alríkislögreglunni, en samstarf
löggæsluyfirvalda yfir landamæri
getur oft verið hægfara og ekki var
í gildi sérstakur milliríkjasamn-
ingur um lögreglusamstarf sem
hefði geta torveldað málið enn
frekar.
Handtaka Ulbricht
Í október árið 2013 var Ulbricht
handtekinn á bókasafni í San
Francisco þar sem hann bjó á
þeim tíma.
Þá var hann með fartölvu þar
sem hann var skráður inn sem
stjórnandi á umsjónarkerfi Silk
Road, á notandanafninu Dread
Pirate Roberts. Það myndi því
reynast erfitt fyrir hann að þræta
fyrir aðkomu sína að síðunni.
Í fartölvunni fundust einnig
milljarða virði af Bitcoin og enn
fleiri fundust á USB-lyklum við
húsleit á heimili Ulbricht. Ekki
nóg með það heldur fannst á far-
tölvunni dagbók sem Ulbricht
hafði haldið og innihélt mikið af
gögnum um aðkomu hans að Silk
Road.
Morðtilraun
Þegar Ulbricht var leiddur fyrir
dómara reyndust ásakanirnar á
hendur honum öllu alvarlegri en
upphaflega var reiknað með. Þar
voru sex ákæruliðir um tilraun til
manndráps.
Við rannsókn alríkislög-
reglunnar var haft uppi á einum
stjórnenda Silk Road, miðaldra
tveggja barna föður sem kallað-
ist Curtis Green. Eftir að Green
var handtekinn á Ulbricht að hafa
óttast að Green gerðist uppljóstr-
ari fyrir lögregluna til að hljóta
vægari dóm fyrir brot sín. Ulbricht
á þá að hafa haft samband við fé-
laga sinn á Silk Road og beðið
hann um að myrða Green. Þessi
félagi reyndist þó vera fíkniefna-
lögreglumaður sem hafði farið
huldu höfðu á Silk Road til að
freista þess að hafa hendur í hári
Ulbricht.
Til að koma sér enn frekar í
mjúkinn hjá Ulbricht þá svið-
setti lögreglumaðurinn morðið á
Green. Í málinu voru einnig lögð
fram sönnunargögn sem sýndu
að Ulbricht hafði áður reynt að
ráða leigumorðingja til að losna
við fjandmenn. Meðal annars
átti hann að hafa fengið meðlim
í mótorhjólasamtökunum Hells
Angels til að drepa notanda á
Silk Road sem reyndi að fjárkúga
Ulbricht.
Morðákærurnar voru felld-
ar niður áður en málið var tekið
í dóm. Engu að síður þóttu brot
Ulbricht alvarleg og hlaut hann
tvöfaldan lífstíðardóm, auk fjöru-
tíu ára og hefur hann ekki rétt til
reynslulausnar.
Farsakenndar vendingar
Fíkniefnalögreglumaðurinn
sem sviðsetti morðið til að leiða
Ulbricht í gildru heitir Carl
Force. Force sankaði að sér yfir-
gripsmiklum upplýsingum um
notandanafn Ulbricht, Dread
Pirate Roberts, sem hann síð-
an notaði til að beita Ulbricht
fjárkúgun í skiptum fyrir upp-
lýsingar um framvindu rann-
sóknarinnar. Force auðgaðist
svo enn frekar á málinu með því
að selja sögu sína til framleið-
enda í kvikmyndaparadísinni
Hollywood.
Annar lögreglumaður banda-
rísku leyniþjónustunnar, Shaun
Brigdges, notaði auðkenni Green
til að stela peningum Silk Road.
Hann stal allt í allt ríflega 100
milljónum af mismunandi reikn-
ingum Silk Road.
Eftirmálar
Ulbricht hefur ítrekað reynt að
áfrýja fangelsisdómi sínum en án
árangurs. Hann hefur í áfrýjunar-
beiðnum sínum vísað til spilltu
lögreglumannanna tveggja sem
greint er frá hér að framan, en
þeir voru báðir sakfelldir fyr-
ir brot sín. Ulbricht hefur einnig
haldið því fram að lögregla hafi
aflað sönnunargagna í málinu
með ólögmætum hætti.
Bandaríkin greiddu Íslandi í
október um 355 milljónir króna
fyrir aðstoð við rannsókn máls-
ins. Fjárhæðin var lögð inn á sér-
stakan löggæslusjóð á forræði
dómsmálaráðherra. Um ráðstöf-
un fjárhæðarinnar var fjallað á
vef stjórnarráðsins í desember
og þar sagði meðal annars: „Að-
stoð íslenskra löggæsluyfirvalda
í máli sem kennt hefur verið við
Silk Road reyndist lykilþáttur í
að klára málið og lagði lögreglan
fram umtalsverða aðstoð í málinu
sem skilaði sér í að uppræta ólög-
mæta starfsemi. Umtalsvert fé var
gert upptækt í formi sýndargjald-
miðilsins Bitcoin. Ríkissjóður fékk
15% heildarávinnings eða rúm-
lega 355 milljónir króna og hefur
nú verið lögfest að þeir fjármun-
ir renni í sérstakan löggæslusjóð.
Fjármununum er ætlað að efla
tækjabúnað lögreglu til að hún sé
sem best í stakk búin og búi yfir
nauðsynlegum búnaði til að takast
á við skipulagða brotastarfsemi.“
Margir hafa verið hand-
teknir og sakfelldir vegna við-
skipta og aðkomu að Silk Road.
Meðal annars hafa menn verið
handteknir í Svíþjóð, Bretlandi,
Ástralíu og Nýja-Sjálandi og sam-
kvæmt heimildum DV er enn
verið að fara yfir gögn, rannsaka
og saksækja einstaklinga vegna
málsins. Ulbricht ætlar ekki að
una sínum dóm og sækist enn
eftir að fá að áfrýja málinu. Fjöl-
skylda hans hefur staðið fyrir
söfnun fyrir lögfræðikostnaði og
heldur úti síðu á netinu. Þau mót-
mæla því hversu þungur dóm-
ur Ulbricht er, en brot hans voru
ekki ofbeldisfull.
Aðkoma Íslands að málinu er
dæmi um farsælt samstarf lög-
regluyfirvalda þvert á landamæri,
en slíkt samstarf, sérstaklega með
þeim hraða sem þarna átti sér
stað, er ekki sjálfgefið. n
„Aðstoð íslenskra löggæslu-
yfirvalda í máli sem kennt
hefur verið við Silk Road reyndist
lykilþáttur í að klára málið
Ross Ulbricht Curtis Green