Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2020, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2020, Qupperneq 10
10 10. janúar 2020FRÉTTIR Áreitt í hálft ár af rúmenskum hælisleitanda n Hælisleitandi frá Rúmeníu heldur til í miðborginni og áreitir konur ítrekað n „Eins og trúður í hryllingsmynd“ É g er búin að búa hérna í tvö ár og hef aldrei lent í neinu í líkingu við þetta. Það er aug- ljóst að þessi maður er veik- ur á geði,“ segir Lola Leighton, bandarísk kona sem búsett er á Íslandi. Lola hefur undanfar- ið hálft ár ítrekað verið áreitt af rúmenskum hælisleitanda á þrí- tugsaldri sem heldur til í mið- borg Reykjavíkur. Hún segist jafn- framt vita af fjölmörgum öðrum konum sem hafa verið áreittar af manninum; hann sé með kyn- ferðislega tilburði, óviðeigandi athugasemdir og í sumum tilfell- um eltir hann konur heim. Ekkert er þó hægt að gera þar sem mað- urinn hefur ekki beitt ofbeldi eða hótunum. Sat og starði á starfsfólkið Lola er sem fyrr segir banda- rísk en hefur verið búsett á hér á landi í tvö ár ásamt íslenskum eiginmanni sínum. Í samtali við DV segist hún vita að maðurinn, hinn umræddi hælisleitandi, hafi dvalið á Íslandi í einhvern tíma og komið til landsins vegabréfs- laus. Hún segir að maðurinn hafi fyrst nálgast hana fyrir rúmlega hálfu ári, þegar hann innritaði sig inn á Loft hótelið þar sem hún starfar. „Ég fékk þá að heyra langa sögu um að hann væri heimil- islaus, héldi til í gistiskýlum og ætti engan pening,“ segir Lola, en hún segir manninn síð- an hafa suðað í henni að fá lánaðan farsím- ann hennar svo hann gæti hringt í móð- ur sína og fengið hana til að leggja inn á hann pen- ing fyrir hótel- herbergi. „Hann var síðan stöð- ugt að ráfa úti um allt, var alltaf að panta sér te án þess að geta borgað fyrir það og var síðan ítrekað að spyrja kvenkyns starfs- menn á barnum hvort þær ættu kærasta. Ég gerði honum skýrt grein fyrir því að ég ætti mann og bað hann vinsamlegast um að hætta að áreita samstarfskonur mínar. Hann tók síðan upp á því að setjast beint á móti barnum og stara á okkur á meðan við vorum að vinna.“ Lola segir að henni, og sam- starfskonum hennar, hafi liðið afar óþægilega í návist manns- ins. Hún nefnir eitt skipti þar sem maðurinn mætti henni í stigan- um á hótelinu, greip þéttingsfast um hana, kyssti hana á kinnina og sagði henni „að hún væri fal- leg“. „Ég fylgdi honum í anddyr- ið á Loft og gerði honum ljóst að hann væri ekki lengur vel- kominn inni á staðnum. Hann reyndi að þræta við mig, en hann talar bjagaða ensku þannig að það gekk ekki vel hjá honum.“ „You are so beautiful“ Lola segir að einungis nokkrum vikum síðar hafi maðurinn ítrek- að orðið á vegi hennar. Hún var þá byrjuð í námi við Háskóla Ís- lands og rakst daglega á mann- inn á leið hennar í skólann. Hún segist þó ekki geta fullyrt að hann hafi setið um hana og bend- ir á að hann haldi einfaldlega til í miðborg Reykjavíkur og vegna smæðar borgarinnar sé ef til vill óhjákvæmilegt að hún rekist á hann. Hún segir manninn ým- ist hafa mætt henni með óhugn- anlegt glott á andlitinu, reynt að sníkja af henni sígarettu eða sagt við hana „You are so beautiful.“ Fljótlega hafi hún svo séð manninn í hvert skipti sem hún var á leið í vinnuna á Loft. Hann hafi ýmist verið hangandi fyrir utan skemmtistaði í miðbænum eða nálægt 10-11 í Austurstræti. „Í hvert sinn sem ég gekk fram hjá honum setti hann stút á var- irnar og vinkaði í átt til mín,“ segir hún og líkir manninum við „trúð í hryllingsmynd.“ Lola segir manninn hafa mætt á á Loft á gamlárskvöld, sest beint á móti barnum og starað á hana. Hún segist hafa viljað losna við hann, en ekki hafi verið hægt að láta henda honum út: mikil ör- tröð var á barnum, og maður- inn hafði ekki beinlínis gert neitt af sér. Maðurinn kom síðan aftur á Loft næsta dag, illa lyktandi og sofnaði í sófa inni á staðnum. Lola segist hafa sent sam- starfsfólki sínu tölvupóst eftir þetta og látið vita að maðurinn væri óvelkominn inni á staðn- um. Maðurinn hafi ítrekað komið ítrekað inn á Loft næstu daga, og ávallt verið hent út af starfsfólk- inu. „Hann áreitti meðal annars eina af þeim yngstu í starfs- mannahópnum með því að grípa í höndina á henni og spyrja hvað hún væri gömul.“ Viðbragðsleysi lögreglu Lola segist endanlega hafa fengið nóg þann 4. janúar síðastliðinn. Þá hafi hún mætt manninum þegar hún var á leið í vinnuna, enn og aftur hafi hann starað á hana og glott og byrjað að vinka í átt til hennar. Átta klukkutímum síðar þegar hún var á leið heim úr vinnu þurfti hún að koma við í verslun 10-11. Þar mætti hún manninum eina ferðina enn. „Hann elti mig síðan út úr versluninni, þrýsti sér upp að mér og sagði: „Hey hey, how about I come home with you? Yeah? I’ll come home with you“.“ Lola segist hafa „tapað sér“ á þessum tímapunkti og byrjað að öskra á manninn sem brást við með því að þykjast ekkert skilja. Hún segist hafa hringt í lög- regluna þegar þarna var komið sögu og beðið um aðstoð því karl- maður væri að áreita hana. Því hafi ekki verið sinnt af hálfu lög- reglunnar. Á dögunum greip Lola til þess ráðs að setja inn fyrirspurn á Facebook, í lokuðum hóp fyr- ir útlendinga sem búsettir eru á Íslandi. Varpaði hún fram þeirri spurning hvað í ósköpunum hún gæti gert til að tryggja öryggi sitt: „Á ég bara að láta mig hafa þetta? Ekki bregðast við?.“ Í samtali við blaðamann DV segist hún hafa fengið gífurleg viðbrögð eftir að hún birti frá- sögnina. Fjölmargir hafi rit- að athugasemd undir færsluna eða sett sig í samband við hana og sagst kannast við manninn eða hafa séð hann á vappi í mið- bænum. Þá hafa fjölmargar kon- ur sett sig í samband við hana og greint frá því að þessi sami mað- ur hafi áreitt þær. „Konur hafa sagt við mig: „Já, ég þekki hann“ og „Hann var að áreita mig fyr- ir utan Hlemm“ og svo framveg- is. Ein segir að hann hafi elt hana heim úr skólanum.“ Þá segir Lola að ungur mað- ur, námsmaður við HÍ, hafi einnig sett sig í samband við hana og sagst hafa þurft að þola áreiti frá manninum í rúmt ár. „Hann sagðist hafa talað við lögregluna, lögreglan sagði honum að hún vissi vel hver þessi maður væri. En það er ekkert hægt að gera,“ segir hún og kveðst í raun ráða- laus í málinu. Erfitt að fá nálgunarbann sam- þykkt Í lögum kemur fram að heimilt sé að leggja bann við því að maður komi á tiltekinn stað eða svæði, veiti eftirför, heimsæki eða setji sig með öðru móti í samband við annan mann, ef rökstudd ástæða er til að ætla að hann muni fremja afbrot eða raska á annan hátt friði þess manns sem í hlut á. Það þarf þó mikið til að nálg- unarbann fáist samþykkt hér á landi, þrátt fyrir að viðkomandi sitji undir hótunum, áreiti og röskun á friði og friðhelgi einka- lífsins. Til að fá nálgunarbann samþykkt þarf að „sýna fram á með óyggjandi hætti að viðkom- andi hafi framið brot sem flokkast undir röskun á friði.“ n Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.