Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2020, Qupperneq 12
12 10. janúar 2020FRÉTTIR
ELÍSABET ER 19 ÁRA OG
REKUR BAR Á SPÁNI
E
lísabet Rós Fannarsdóttir
gerði sér lítið fyrir og
opnaði bar og verslun á
Torrevieja á Spáni í fyrravor,
en Elísabet er einungis 19 ára
gömul. Reksturinn hefur gengið
vel og staðurinn hefur vakið
lukku á meðal hinna fjölmörgu
Íslendinga sem búsettir eru á
Costablanca-svæðinu.
Upphafið má rekja til þess
að Elísabet, Beta eins og hún
er kölluð, flutti til Spánar með
foreldrum sínum og yngri systur
í ágúst 2017.
„Eftir að ég kláraði 10. bekk
tók ég mér pásu frá skóla og fór
að vinna,“ segir Beta en hún
segir hefðbundið bóknám ekki
eiga vel við hana heldur vilji hún
geri hlutina upp á eigin spýtur.
Hún greip tækifærið þegar
foreldrar hennar ákváðu að elta
drauminn til Spánar og úr varð að
fjölskyldan flutti til VillaMartin á
Costablanca-svæðinu, en þangað
hafa þúsundir Íslendinga flust
búferlum undanfarin ár.
Faðir Betu rak prentfyrirtæki á
Íslandi og upphaflega var ætlunin
að stýra starfsemi fyrirtækisins frá
Spáni. Beta segir að það hafi alltaf
verið stefnan hjá henni að finna
vinnu á Spáni en það reyndist
síður en svo auðvelt. Hún ákvað
því að skapa sér tækifæri sjálf,
með aðstoð foreldra sinna.
„Upphaflega var hugmyndin
að vera með veipverslun á
netinu en fyrir tilviljun þá fann
pabbi húsnæði til leigu. Þannig
að planið var fyrst að vera með
veipverslun,“ segir Beta en
fljótlega kom upp sú hugmynd
að opna bar, og selja rafrettur
samhliða því. Það gerðist ekki
á einni nóttu, sækja þurfti um
viðeigandi leyfi, eiga við spænskt
regluverk og síðast en ekki síst
koma húsnæðinu í stand, en það
var galtómt þegar fjölskyldan fékk
það afhent. Áður hafði verið rekin
þar húsgagnaverslun.
„Það hafði allt verið hreinsað
út úr húsinu, og það var ekkert
eldhús eða neitt,“ segir Beta og
bætir við að faðir hennar hafi
veitt henni ómetanlega hjálp við
framkvæmdir og séð að mestu
leyti einn um að koma upp
eldhúsaðstöðu og fleira sem til
þurfti.
Það var ekkert verið að flækja
hlutina þegar kom að því að velja
nafn á staðinn. Barinn hennar
Betu heitir einfaldlega Bari-inn.
„Við kölluðum þetta alltaf „bar-
inn“ á meðan við vorum að koma
þessu í gang og svo ákváðum við
bara að staðurinn myndi heita
það.“
Staðurinn var opnaður í maí
síðastliðnum og er Beta skráður
eigandi, en hún hefur fengið
dygga aðstoð frá foreldrum
sínum við reksturinn. Barinn
er í Capo Roig á Torrevieja-
svæðinu, þar sem mörg þúsund
Íslendingar hafa fest kaup á
fasteignum undanfarin misseri.
Hún segir reksturinn hafa gengið
vel til þessa.
„Við erum með sæti fyrir 58
manns inni og 20 manns úti.
Það er auðvitað aðeins meira
að gera á sumrin því þá koma
allir túristarnir, en það hefur líka
gengið vel núna í vetur, enda
fjöldi fólks sem býr hérna allt árið.
Bretarnir og Írarnir fara nefnilega
alltaf heim á sumrin og koma svo
aftur um haustið!“
Hún segist ekki hafa lagt
sérstaklega upp með að auglýsa
staðinn sem Íslendingabar, þótt
vissulega sé betra að skapa sér
sérstöðu þegar mikið framboð er
af börum og veitingastöðum. „En
Íslendingunum finnst auðvitað
mjög gaman að koma og spjalla
og sjá að það eru Íslendingar á
bak við staðinn. Við höfum verið
með viðburði fyrir Íslendinga
eins og aðventukaffi og hitting á
Þorláksmessu. Við fáum til okkar
fólk frá öllum löndum, mest af
Bretum og Írum. Við erum með
„live“ tónlist og karókí reglulega,
ég hef líka tekið að mér að vera
sjálf með karókí og spila nokkur
lög á úkúlele hérna á barnum.“
Beta sér svo sannarlega ekki
eftir að hafa flutt út og skapað
sín eigin tækifæri. Hún er ekkert
á leiðinni heim og unir sér vel í
sólinni á Spáni.
„Ég sé alveg fyrir mér að vera
hérna næstu árin og ég kann
miklu betur við Spán en Ísland,“
segir hún en hún kveðst jafnvel
geta hugsað sér að opna annan
bar eða veitingastað í nánustu
framtíð. „Ég er mjög ánægð eins
og staðan er núna. Við sjáum
hvað setur.“ n
n Skapaði sín eigin tækifæri n Íhugar að opna fleiri staði
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is