Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2020, Blaðsíða 14
14 10. janúar 2020FRÉTTIR
S
jaldan eða aldrei hafa ver-
ið eins miklar manna-
breytingar á skrifstofu
Strætó BS og í þjónustuveri.
Einn starfsmaður hefur látið af
störfum vegna eineltis. Þetta seg-
ir starfsmaður hjá Strætó í samtali
við DV. Framkvæmdastjóri Strætó
vísar þessum staðhæfingum á bug.
Rúmlega 300 manns starfa hjá
Strætó BS, þar af um 200 vagnstjór-
ar. Aðrir starfsmenn sinna störfum
á verkstæði, þvottastöð, vörulager, í
þjónustuveri og á skrifstofu.
Starfsmaðurinn sem DV ræddi
við vill ekki láta nafns síns getið
af ótta við afleiðingarnar. Starfs-
maðurinn segir að allar manna-
breytingar á skrifstofu undanfarna
mánuði megi rekja til Ástríðar
Þórðardóttur, fyrrverandi fjármála-
stjóra og aðstoðarforstjóra.
„Hún var rekin í sumar vegna
þess að þá hafði hún séð til þess
að nokkrir starfsmenn höfðu látið
af störfum, meðal annars sölu-
stjóri og yfirmaður tölvumála.
Margir hótuðu að segja upp en þá
greip Jóhannes forstjóri í taumana
og gerði starfslokasamning við
Ástríði. Nú síðast þá gafst launa-
fulltrúi upp, eftir um eitt ár í starfi.
Þá fór bókarinn í frí vegna kulnun-
ar í starfi.“
Starfsmaðurinn bendir á að á
síðastliðnum fimm árum hafi þrír
launafulltrúar hætt störfum hjá
fyrirtækinu. „Það segir svolítið um
um álagið.“
Þá segir starfsmaðurinn að ann-
ar starfsmaður hafi horfið frá störf-
um vegna eineltis. „Eineltið fólst í
því að einn starfsmaður setti alltaf
út á annan starfsmann þó svo að
viðkomandi gerði allt rétt. Það
leiddi til þess að hún hætti í þjón-
ustuverinu.“
Skýrar reglur
Í eineltisstefnu Strætó BS segir
meðal annars:
„Strætó á að vera öruggur
vinnustaður þar sem starfið mót-
ast af virðingu og umhyggju.
Hvorki einelti né annað ofbeldi
verður undir nokkrum kringum-
stæðum liðið innan vinnustaðar-
ins. Meðvirkni starfsfólks í einelti
er fordæmd. Lögð er áhersla á að
leysa þau mál sem upp kunna að
koma á farsælan og skjótan hátt,
samkvæmt þar til gerðum verk-
lagsreglum. Tekið verður á fölskum
ásökunum um einelti af sömu festu
og einelti almennt og litið á þær
mjög alvarlegum augum.“
Í mannauðsstefnu Strætó BS
segir meðal annars að fyrirtækið
leggi áherslu á að „að stuðla að vin-
samlegu og fjölskylduvænu starfs-
umhverfi með því að bjóða upp á
sveigjanlegt vinnufyrirkomulag og
fjölbreytni starfa.“
Á öðrum stað segir að lögð sé
áhersla á „að upplýsingagjöf og
samskipti séu markviss og áhrifa-
rík.“ Þá segir á einnig að lögð sé
áhersla á að „bjóða upp á heilsu-
samlegt og hvetjandi vinnuum-
hverfi og félagslíf meðal starfs-
manna er stuðlar að samkennd og
virðingu meðal þeirra.“
Enn fremur: „Strætó leggur
áherslu á, sem þjónustufyrirtæki,
að hafa í þjónustu sinni starfsfólk
sem býr yfir ríkri þjónustulund
og hluttekningu; m.a. með því að
skapa starfsfólki jákvætt og hvetj-
andi starfsumhverfi, efla starfsfólk
og styrkja með markvissri þjálfun
og starfsþróun og stuðla að virkni
og ánægju starfsfólks. Allt starfs-
fólk ber sameiginlega ábyrgð á
að skapa jákvæða og hvetjandi
vinnustaðamenningu þar sem
gagnkvæm virðing og starfsá-
nægja er í fyrirrúmi.“
Þegar DV bar staðhæfingar
starfsmannsins undir Jóhann-
es Rúnarsson, framkvæmdastjóra
Strætó, sagðist hann ekki kannast
við þær lýsingar og vísaði þeim al-
farið á bug:
„Tveir launafulltrúar hafa færst
til í starfi og starfa enn hjá fyrirtæk-
inu. Einn fékk nýtt starf sem nýlok-
ið nám nýtist betur í – starfsþróun.“
Aðspurður um fyrrnefnt einelti
í garð starfsmanns sagði Jóhannes
að engin slík tilkynning hafi borist
honum. Þá hafi honum ekki borist
kvartanir frá starfsfólki vegna starfa
mannauðsstjóra eða starfa deildar-
stjóra í þjónustuveri. Jóhannes seg-
ist enn fremur ekki kannast við ólgu
á meðal starfsfólks og ekki kannast
við miklar mannabreytingar „um-
fram það sem eðlilegt er.“
Segir gengið fram hjá reynslu-
miklum starfsmönnum
Starfsmaðurinn sem DV ræddi við
segir jafnframt að megn óánægja
sé á meðal starfsmanna varðandi
ráðningu í starf bókara, og mörg-
um svíði að þar hafi verið gengið
fram hjá reynslumiklu fólki.
Í júlí síðastliðnum var skrifstofa
og þjónustuver Strætó bs. flutt
úr Mjódd og yfir í höfuðstöðvar
Strætó bs. að Hesthálsi 14. Starfs-
maðurinn segir starfsandann ekki
hafa batnað við flutningana.
„Það voru hátt í 400 milljónir
lagðar í breytingu á Hesthálsi
en virðist það ekki hafa dugað
til að bæta starfsandann. Það
er bullandi óánægja í þjónustu-
veri með deildarstjóra, sem lof-
aði í byrjun fundum einu sinni
í viku, en svo aðra hverja viku,
svo þriðju hverja, en núna lof-
ar hann starfsfólki fundi einu
sinni í mánuði. Þá er mannauðs-
stjórinn ekki talinn sinna starfi
sínu sem skyldi. Starfsmenn
vilja helst ekkert vita af henni,
hún segir eitt í dag og annað á
morgun.
Álagið er alveg rosalegt. Fólk er
að kikna undan álaginu. Fólk vill
að það sé tekið meira á málunum,
og að fleiri verði ráðnir. En það á
alltaf að spara og auka sjálfvirkni.
Starfsmenn eru oft á tíðum að gefa
rangar upplýsingar því þeir fá ekki
nógu mikla kennslu.“ n
www.gilbert.is
FRISLAND 1941
TÍMALAUS GÆÐI
VIÐ KYNNUM
SEGIR ÓRÓA OG ÓÁNÆGJU
MEÐAL STARFSFÓLKS STRÆTÓ
n Starfsmaður Strætó segir starfsandann líða fyrir tíðar mannabreytingar n Segir
starfsmann hafa hætt vegna eineltis n Framkvæmdastjóri vísar staðhæfingum á bug
„Fólk er að kikna
undan álaginu
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is