Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2020, Blaðsíða 21
10. janúar 2020 FRÉTTIR 21
Dularfull dauðsföll ákærenda Kevins Spacey
- Þrír látnir á innan við ári
n Samsæriskenning vekur athygli víða n Grunur um að leikarinn eigi í hlut
B
andaríski leikarinn Kevin Spacey
hefur lítið verið í sviðsljósinu á
undanförnum árum eftir að hafa
verið sakaður um fjölda kyn ferðis
brota. Talið er að rúmlega þrjátíu karl
menn hafi stigið fram og sakað leikarann
um kynferðislega áreitni eða kynferðisbrot.
Spacey hefur alla tíð neitað sök en
hann hefur verið sakaður um sambærilegt
athæfi af fjölmörgum einstaklingum und
ir lögaldri. Til að mynda er leikarinn sagð
ur hafa áreitt fyrrverandi barnastjörnuna
Anthony Rapp. Þá var Rapp um fjórtán ára
gamall og þorði hann ekki að segja sögu
sína fyrr en eftir að ásakanir á hendur kvik
myndaframleiðandanum Harvey Wein
stein komu fram haustið 2017.
Spacey, sem hefur unnið til tveggja
Óskarsverðlauna ferli sínum, var rekinn
úr þáttunum vinsælu House of Cards eftir
að ásakanir gegn honum komust í hámæli.
Þá stóð til að leikarinn léki eitt af aðalhlut
verkum myndarinnar All the Money in the
World en hann var klipptur út úr myndinni
á síðustu stundu.
Leikarinn var ákærður í einu máli í byrj
un árs 2019 en í júlí ákvað sak sókn ari að
fella málið niður. Þetta er ekki fyrsta málið
gegn honum sem hefur verið fellt skyndi
lega niður, en frá nýliðnum jólum hefur
nafn Spacey verið í brennidepli á margan
hátt, ekki síst vegna þess að þrír ákærendur
leikarans létust á síðasta ári.
Óvænt og umdeild endurkoma
Á aðfangadegi árið 2018, rúmu ári eftir
ásakanirnar, gaf hann út umdeilt mynd
band á YouTube þar sem hann skellti sér
í gervi persónunnar Franks Underwood
úr House of Cards. Þetta myndband var í
fyrsta skipti sem hann kom opinberlega
fram eftir ásakanirnar og vöktu orðin sem
hann lét falla gífurlega athygli víða um
heim. „Þú mynd ir ekki trúa svona slæm
um hlut um án sönn un ar gagna, er það
nokkuð?“ spurði Spacey og hélt áfram:
„Þú mynd ir ekki draga skjót ar álykt an ir
án staðreynd anna? Ég ætla svo sannarlega
ekki að gjalda einhvers sem ég gerði ekki.“
Leikarinn hélt sig áfram fjarri sviðs
ljósinu í kjölfar birtingar myndbands
ins, en netheimar loguðu þegar Spacey
skaut upp kollinum á ný síðastliðinn að
fangadag. Blasti þá við önnur jólakveðjan
þar sem leikarinn sagðist ekki hafa staðist
mátið að óska áhorfendum gleðilegrar há
tíðar. Í nýja myndbandinu sagðist Spacey
vilja stuðla að meiri jákvæðni árið 2020,
en bætti svo við: „Ég veit hvað þið eruð að
hugsa; er honum alvara? Mér er dauðans
alvara. Næst þegar einhver gerir eitthvað
sem ykkur mislíkar, getið þið ráðist á við
komandi, eða sleppt skotvopnunum og
gert hið óvenjulega. Þið getið drepið með
góðmennskunni.“
Í kjölfar þriðja fráfallsins og þessar
ar umdeildu jólakveðju hefur þeim farið
fjölgandi sem spyrja hvort leikarinn eigi
í hlut. Á samfélagsmiðlinum Twitter má
finna myllumerkið #SpaceyBodyCount
þar sem fólk deilir ýmsum vendingum
og kenningum, sem eru margar hverjar
skuggalegar.
„Drepa Kevin Spacey“
Fyrsti ákærandinn sem féll frá var Linda
Louise Culkin, sem er talin fyrsta mann
eskjan sem opinberlega sakaði Spacey um
kynferðisbrot gegn ungum piltum. Culkin
lést í maí 2019 eftir að hafa orðið fyrir bíl í
Massachusettsfylki í Bandaríkjunum.
Culkin var einnig ýmsum kunn sem elti
hressir Spacey, en árið 2014 var hún dæmd
í fjögurra ára fangelsi fyrir að sitja fyrir og
elta leikarann. Hún játaði að hafa sent leik
aranum hótunarbréf, sprengjuhótanir og
hótað honum líkamlegu ofbeldi. Hún hafði
áður verið handtekin í ársbyrjun 2012, en á
heimili hennar hefðu fundist ljósmyndir af
Spacey þar sem augu hans höfðu verið fjar
lægð. Einnig fundust nokkur bréf þar sem
á stóð „Killing Kevin Spacey“ eða „Drepa
Kevin Spacey“.
Harmleikur á jólum
Annar ákærandi lést í september en hann
hafði kært Spacey fyrir kynferðisbrot og sagt
Spacey hafa neytt hann til að þreifa á kyn
færum leikarans. Ákærandinn bað dómara í
lengstu lög að halda nafni hans leyndu þegar
kæran var lögð fram. Atvikið átti sér stað árið
2016. Í september í fyrra, rúmum mánuði
eftir að kæran var komin í farveg og rétt
arhöld væntanleg, féll hann frá. Dánarorsök
er enn ókunn en til stóð að fella málið niður.
Að kvöldi jóla dags, degi eftir birtingu
myndbandsins áðurnefnda, var til kynnt var
um and lát enn eins ákæranda, Aris Behn, og
sagt að hann hefði svipt sig lífi. Behn var bæði
rit höf und ur og mynd list armaður en hann og
Märtha Louise Nor eg sprins essa voru gift í 14
ár og eiga þrjú börn sam an. Umboðsmaður
Behn tilkynnti að hann hefði framið sjálfs
víg. n
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is