Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2020, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2020, Qupperneq 8
tíma sagði Anna að ástæðan væri skortur á stuðningi og áhuga Reykjavíkurborgar. Samstarfið við Reykjavíkur­ borg gekk að hennar sögn ekki vel. „Við getum ekki rekið starfsmann. Við getum ekki rekið skrifstofu á þessu fé sem við erum að fá,“ sagði hún meðal annars. Anna Aurora er skráður eig­ andi fyrirtækisins Farmvernd og akstur ehf. sem stofnað var í apríl 2013. Í fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra er starfsemi fyrirtækisins flokkuð undir akstur sendibíla og vörubíla og aðra þjónustu tengda flutn­ ingum. 2016 Samkvæmt upplýsingum DV bjó Anna Aurora um nokkurt skeið í Svíþjóð og starfaði þar meðal annars sem vörubíl­ stjóri. Var hún meðal annars með skráð heimili í Kung­ backa. Í mars 2016 stofnar Anna Iona ehf. og er skráður eig­ andi þess. Er tilgangur félags­ ins „akstur vörubíla, akstur sendibíla og önnur þjónusta tengd flutningum“. Í rekstrar­ yfirliti ársins 2016 er engin velta skráð. Umrætt fyrirtæki var skráð gjaldþrota í október síðastliðnum. Í september 2016 var Anna Aurora í stuttu viðtali við Fréttablaðið í tilefni þess að hún var var einn af 40 þúsund gestum sem sóttu vöruflutn­ ingabílasýninguna Elmia Last­ bil í Jönköping til að kynna sér allt það nýjasta í bransanum. Fram kom í greininni að Anna væri eigandi Farmverndar og aksturs sem væri lítið verk­ takafyrirtæki sem sæi um akstur fyrir Samskip. „Ég keyri Scania sem er skemmtilegt því Scania leggur mikið upp úr sínum sýningum á Elmia Lastbil, sérstaklega þegar þeir kynna nýja kynslóð bíla líkt og núna,“ sagði hún í samtali við blaðamann Frétta­ blaðsins. Þá sagðist Anna Aur­ ora hafa notað sýninguna til að mynda tengsl við fólk innan „bransans“ og meðal ann­ ars hefði hún komist í kynni við samtök kventrukkara á Norðurlöndum. „Ég myndaði töluverð tengsl, bæði við aðra gesti, sýnendur og sölumenn, og maður fór drekkhlaðinn af nafnspjöldum og bæklingum.“ 2017 Fram hefur komið að eftir að Anna Aurora var flutt aftur heim í Mosfellsbæinn frá Sví­ þjóð var hún á tímabili virk í starfi Framsóknarflokksins. Í október 2017 birtu Fram­ sóknarmenn í Suðvesturkjör­ dæmi framboðslista sinn fyrir kosningarnar á aukakjör­ dæmisþingi í Kópavogi. Anna Aurora Waage Óskarsdóttir framkvæmdastjóri var þar í 10. sæti. Í nóvember sama ár var Anna Aurora síðan kosin í stjórn Framsóknarfélags Mos­ fellsbæjar þar sem hún sat í skamman tíma. Í samtali við Mannlíf á dögunum sagði fyrrverandi samstarfsmaður hennar í stjórnmálum að ákveðnar við­ vörunarbjöllur hefðu farið af stað um það leyti sem Anna Aurora sóttist eftir áhrifum innan flokksins og vildi kom­ ast á þing. Henni hefði þá vís­ vitandi verið haldið til hliðar og í kjölfarið hafi hún sagt sig frá öllum störfum í flokknum fyrir ári, vegna óánægju með að hafa ekki hlotið brautar­ gengi innan hans. 2018 Fyrrnefnt fyrirtæki Önnu Auroru, Farmvernd og akstur ehf., var úrskurðað gjaldþrota í apríl 2018. Í nóvember sama ár var tilkynnt um stofnun sameignarfélagsins Aurora Nordic sf. Skráðir félagsmenn eru Anna Aurora og karl­ maður á fimmtugsaldri, hvort með helmingshlut. Samkvæmt heimildum DV er um að ræða fyrrverandi unnusta Önnu Auroru. Í apríl 2019 segir sá maður sig úr fyrirtækinu og sambýlismaður Önnu er í staðinn skráður með 50 pró­ senta eignarhlut. Fyrirtækið er enn skráð virkt í dag og sinnir eftirfarandi starfsemi: Lögfræðiþjónustu, bílasölu og sölu á öðrum ökutækjum, far­ þegaflutningum, akstri vöru­ bíla og öðrum vöruflutning­ um; reikningshaldi, bókhaldi, endurskoðun og skattaráðgjöf; viðskiptaráðgjöf og annarri rekstrarráðgjöf; ferðaskrif­ stofustarfsemi og skipulagn­ ingu ferða. Sagðist vera réttarmeinafræðingur Fyrr í mánuðinum greindi DV frá því að Anna Aurora hefði reynt að villa á sér heimildir sem réttarmeinafræðingur og sagt í tölvupósti til manns að hún hefði doktorsgráðu í þeim fræðum. Undirritun undir tölvubréf hennar sýndi þann titil. Bauð hún manninum þjónustu sem fyrsta flokks réttarmeinafræðingur í erf­ iðu dómsmáli sem maðurinn tengist. Þá hefur DV einnig greint frá því að á seinasta ári kærði Örvar Friðriksson Önnu fyrir fjársvik. DV hefur undir höndum gögn sem sýna að Örvar lagði 500.000 krónur inn á reikning Önnu Auroru fyrir nokkrum árum. Kemur fram á greiðslukvittun að greiðslan sé vegna stofnunar hlutafélags. Örvar staðhæfir að Anna Aurora hafi þóst vera lögfræðingur með meistara­ gráðu frá háskóla í Edinborg, og hafi talið honum trú um að hún byggi yfir dýrmætum við­ skiptasamböndum. Hann hafi verið að stofna fyrirtæki á þessum tíma og hún hafi boð­ ist til að sjá um pappírsvinnu við það ef hann legði inn hjá sér þá lágmarks inneign sem þyrfti að vera á reikningi til að hægt væri að stofna félag­ ið. Örvar segir hana ekki hafa efnt þessi fyrirheit og eftir að hafa reynt að endurheimta féð með kröfubréfum hafi hann kært Önnu Auroru. Þá greindi DV greint frá því að síðastliðinn vetur hafi Anna Aurora sinnt kennslustörfum í Hörðuvallaskóla í Kópavogi. Sinnir hún þeim störfum á undanþágu frá menntamála­ ráðuneytinu þar sem hún hefur ekki tilskilin réttindi til að starfa sem kennari. Hefur hún starfað í skólanum sem forfallakennari. Þess ber að geta að í nóvember síðast­ liðnum birti Anna Aurora færslu á Twitter þar sem hún sagðist vera umsjónarkennari 7. bekkjar í Hörðuvallaskóla. Á vef Kópavogsbæjar er Anna Aurora einnig skráð sem stundakennari við Álfhóls­ skóla. Samkvæmt heimildum DV hefur hún einnig verið skráð sem stundakennari við Hraunvallaskóla í Hafnarfirði. Segist alsaklaus Það var síðan fyrr á árinu að Anna fékk starf sem sjúkra­ liði í bakvarðasveit Heilbrigð­ isstofnunar Vestfjarða, nánar tiltekið á hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík. Að kvöldi 9. apríl fóru að berast ábendingar um að Anna Aurora væri ekki öll þar sem hún er séð. Morgun­ inn eftir greindu fjölmiðlar frá því að kona úr bakvarða­ sveit Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða sem starfað hefði í vikunni á hjúkrunarheimil­ inu Bergi í Bolungarvík hefði verið handtekin, grunuð um að hafa falsað skjöl um menntun og starfsleyfi sín sem sjúkra­ liði. Þá kom fram að hún væri grunuð um að hafa stolið eða reynt að stela lyfjum. Anna Aurora hafði þá verið mjög virk á samfélagsmiðlum og birt þar myndir og um­ mæli um störf sín í bakvarða­ sveitinni. Forsíðumynd henn­ ar var skreytt slagorðinu „Við erum öll Almannavarnir“. Í kvöldfréttum RÚV birtist mynd af Önnu Auroru sem hún hafði birt á Instagram. Myndin sýnir Önnu Auroru í búningi hjúkrunarfræðings og segist hún vera að fara að „hjúkkast“. Eftir að Önnu Auroru var sleppt úr haldi lögreglu steig hún fram í viðtali við Mann­ líf þar sem hún fullyrti að hún væri alsaklaus og hefði ekkert að fela. Þá sagðist hún hafa ráðið sér lögmann til að stefna Gylfa Ólafssyni, for­ stjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, og lögreglustjór­ anum á Vestfjörðum. „Ég sagði allan tímann frá því að ég væri með erlent próf en ekki íslenskt, sem ætti eftir að meta. Úti er þetta sem sjúkraliðapróf og síðan er ég líka með annað próf sem er ígildi háskólagráðu. Ég til­ kynnti það strax á minni um­ sókn að ég væri með erlend próf og það voru allir með­ vitaðir um það enda tilkynnti ég það líka strax við komuna vestur. Það gerði ég um leið og ég mætti og það stóð á öllum plöggum,“ sagði Anna Aurora jafnframt. Við vinnslu greinarinnar gerði DV ítrekaðar tilraunir til að ná tali af Önnu Auroru en án árangurs. n Anna Aurora er 36 ára, fimm barna móðir, úr Mosfellsbænum. Henni er gefið að sök að hafa ítrekað villt á sér heimildir. MYND/SKJÁSKOT AF TWITTER Framhald af síðu 6 24. APRÍL 2020 DV8 FRÉTTIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.