Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2020, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2020, Blaðsíða 18
24. APRÍL 2020 DV G uðmundur Franklín Jónsson, hótelstjóri og fyrrverandi formaður Hægri grænna, hyggst til­ kynna um forsetaframboð sitt á Facebook klukkan 11 í dag. Hefur þá verið tilkynnt um tvö framboð gegn sitjandi forseta, en Axel Pétur Axelsson, sjálf­ titlaður þjóðfélagsverkfræð­ ingur og annálaður samsæris­ kenninga áhuga maður, reið á vaðið þann 9. apríl. Guðni Th. Jóhannesson for­ seti sagði í nýárs ávarpi sínu að hann hygðist gefa kost á sér til endurkjörs og nái öll fram­ boðin að skila inn nægjan­ legum fjölda undirskrifta fær þjóðin minnst þrjá valkosti þann 27. júní. Guðni ekki nógu góður Guðmundur bauð sig einnig fram árið 2016, en dró fram­ boðið til baka þegar Ólafur Ragnar Grímsson hætti við að hætta, áður en hann síðan ákvað endanlega að hætta við. Aðspurður um ástæðu fram­ boðsins nú segir Guðmundur Franklín að Guðni hafi ein­ faldlega ekki staðið sig nægj­ anlega vel. „Landið er stjórnlaust finnst mér eiginlega. Það verður að vera einhver öryggis ventill þarna í þessu embætti, til þess einmitt að geta hlustað á þjóðina svo öll mál renni ekki bara í gegn, þvert á þjóðar­ vilja. Forsetinn á ekki að vera stimpilpúði Alþingis,“ segir Guðmundur og vísar í þriðja orkupakkann og þær þúsundir undirskrifta sem söfnuðust með áskorun um að Guðni synjaði lögunum staðfesting­ ar. Þá telur Guðmundur einn­ ig upp uppreist æru­málið og Landsréttarmálið sem dæmi um að Guðni sé ekki að standa sig. „Hann bara skrifar undir það sem honum er rétt, en menn verða að hafa sjálfstæða hugsun,“ segir Guðmundur og telur Guðna skorta kjark og þor til að nýta málskots­ rétt sinn í svo veigamiklum málum. Guðni naut stuðnings 80 prósenta aðspurðra í könnun Maskínu í janúar og hefur hann mælst með mikinn stuðning í embættistíð sinni. Guðmundur hins vegar neitar því að Guðni njóti fádæma vinsælda og vísar í óvísinda­ legar kannanir, til dæmis á Bylgjunni, þar sem 47 prósent sögðust vilja fá annan forseta. „Ekkert endilega mig, bara einhvern annan, og við eigum eftir að sjá slíkar tölur þegar nær dregur og fleiri fram­ bjóðendur stíga fram,“ segir hann. Landvættirnir til bjargar Íslandi Guðmundur Franklín hyggst boða lausnir við þeim efna­ hagsvanda sem Covid­19 far­ aldurinn hefur skapað í dag. Hann leyfði Eyjunni að fá for­ smekkinn af hugmyndunum, sem miða til dæmis að útgáfu verðtryggðra ríkisskuldabréfa með 3,5 prósenta vöxtum. Þá vill hann búa betur að náttúruperlum Íslands og nýta tímann til að laga stíga og allt það sem hefur látið á sjá eftir áralanga umgengni ferða­ manna. Til verksins vill hann virkja námsmenn og eldri borgara, sem um leið myndi minnka atvinnuleysi. Nefnir hann þennan hóp Landvætt­ ina. Þá vill hann lækka raforku­ verð til heimila, bænda og iðn­ aðar, afnema verðtryggingu og leggja niður fasteignagjöld í tvö ár og hækka skattleysis­ mörk í 300 þúsund krónur, svo fátt eitt sé nefnt. Margir nefndir til sögunnar Eyjan hafði samband við alla þá frambjóðendur sem buðu sig fram árið 2016. Enginn þeirra hyggst ætla fram þetta árið, en ekki fengust svör frá Höllu Tómasdóttur. Ekki skal þó hrapað að ályktunum, telj­ ast verður ólíklegt að Halla fari fram sökum forstjóra­ starfa hennar í New York. Eyjan hefur fengið ýmsar ábendingar um aðra mögulega frambjóðendur, eins og Þóru Arnórsdóttur fjölmiðlakonu og fyrrverandi forsetafram­ bjóðanda, Eirík Bergmann Einarsson stjórnmálafræðing, Ólínu Þorvarðardóttur þjóð­ fræðing og fyrrverandi þing­ mann. Þau sögðust öll koma af fjöllum þegar haft var sam­ band og ekki hafa framboð í hyggju. Erfið brekka fram undan Sitjandi forseta hefur aldr­ ei verið velt úr sessi hér á landi og er það staðreynd sem margir hafa hugfasta í aðdraganda forsetakosninga. Það kom bersýnilegast í ljós þegar Ólafur Ragnar eyddi út nokkrum framboðum og skóp önnur með ákvörðunum sínum um að ýmist bjóða sig ekki fram, hætta við að hætta og síðan hætta við aftur árið 2016. Lék hann svipaðan leik árið 2012. Þá fylgir forsetakosningum mikill kostnaður, bæði fyrir frambjóðendur og skattgreið­ endur. Hafa hin svokölluðu jaðarframboð, þar sem fram­ bjóðandinn telst eiga litla möguleika á kosningu en vill nýta vettvanginn til að koma pólitískum skilaboðum á framfæri, oft verið gagnrýnd fyrir einmitt það, meðan aðrir líta á þau sem fullnýtingu á lýðræðinu. Kostnaður við forseta­ kosningarnar árið 2016 var um 300 milljónir króna fyrir ríkissjóð. Þá er ótalinn kostn­ aðurinn við framboðin sjálf, sem er afar mismunandi. Til dæmis kostaði framboð Guðna um 25 milljónir króna. Framboð Davíðs Oddssonar kostaði tæpar 28 milljónir, framboð Andra Snæs Magna­ sonar kostaði um 15 milljónir en hjá Höllu Tómasdóttur nam kostnaðurinn um 9 milljónum, en þau fjögur fengu flest at­ kvæði árið 2016. Frambjóðendum gefst í fyrsta skipti kostur á raf­ rænni skráningu með­ mælenda þetta árið ef frumvarpsdrög dómsmála­ ráðuneytisins ganga eftir. Þó má einnig safna undir­ skriftum með gamla laginu, en lágmarkið er 1.500 manns og hámarkið 3.000. Hefur fjöldinn haldist óbreyttur frá árinu 1952, en ætti að vera um 4­5.000 manns ef hlutfallið hefði haldist í hendur við fólksfjölgun frá þeim tíma. Frestur til framboðs rennur út laugardaginn 23. maí, fimm vikum fyrir kjördag. n Trausti Salvar Kristjánsson traustisalvar@eyjan.is GUÐMUNDUR ÆTLAR FRAM GEGN GUÐNA: „LANDIÐ ER STJÓRNLAUST“ Guðmundur mun tilkynna um framboð sitt í dag þar sem hann mun einnig kynna efnahagsaðgerðir sínar sem eiga að vega á móti áhrifum kórónuveirufaraldursins. Baráttan um Bessastaði er hafin. Guðmundur Franklín segir Guðna vera stimpilpúða Alþingis. MYND/GVA Hann bara skrif- ar undir það sem honum er rétt, en menn verða að hafa sjálfstæða hugsun. 18 EYJAN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.