Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2020, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2020, Side 22
22 FÓKUS 24. APRÍL 2020 DV Til að skemmta börnunum og gera aðskilnaðinn auðveldari tók Eygló Lind Egilsdóttir upp á því að mæta fyrir utan stofuglugg- ann á hverjum degi, klædd í grímubúning. Hún segir bráð- nauðsynlegt að halda í húm- orinn og gleðina á þessum skrítnu tímum í samfélaginu. Sú yngsta fór að skæla Eygló Lind á sjö börn og tólf barnabörn. Tvær af dætrum hennar búa í Borgarnesi og sex af barnabörnunum. Á öðru heimilinu eru börnin tveggja, fimm og sjö ára og á hinu eru þau sjö, tíu og tólf ára. Í seinasta mánuði voru öll barnabörnin komin í sóttkví á heimilum sínum. Eygló býr ein og er í dag- legum samskiptum við dætur sínar í Borgarnesi og fjöl- skyldur þeirra: fer oft til þeirra í mat eða kíkir í heim- sókn. „Þess vegna var það rosalega skrítið þegar ég mátti allt í einu ekki koma inn. Ég hugsaði með mér hvað þetta væri langur tími þang- að til ég gæti hitt þau aftur. Þarna varð ég að finna upp á einhverju svo ég gæti haldið áfram að koma í heimsókn.“ Þá kviknaði hugmyndin. Eygló svipaðist um heima hjá sér eftir einhverju til að nota sem gervi og fyrsta daginn klæddi hún sig upp sem ömmu Línu Langsokks. Sú yngsta var ekkert alltof hrifin af þessu uppátæki til að byrja með og fyrsta daginn brá henni svo mikið að hún fór að háskæla. Hjá hinum sló upptækið rækilega í gegn. „Ég kom alltaf á sama tíma á hverjum morgni og þau biðu alltaf spennt eftir mér.“ Á hverjum degi birti dóttir Eyglóar mynd á Facebook af nýjasta búningnum og fyrr en varði var stór hópur fólks far- inn að fylgjast með á síðunni, sumir bláókunnugir. Systirin var grunlaus Eygló segist ekki hafa átt í neinum vandræðum með að finna búninga. „Mér tókst að grafa upp hitt og þetta. Ég fékk líka lánaða búninga og flíkur frá nokkrum vinum. Börnin vissu aldrei í hvernig búningi ég myndi mæta næst.“ Eygló mætti til að mynda sem Bleiki pardusinn, sem spænsk senjoríta og einn daginn kom hún í Star Wars-búning. Einn daginn fann hún hvítt lak heima hjá sér og var ekki lengi að útbúa draugabúning. Það vill svo til að systir Eyg- lóar býr einnig í Borgarnesi og snýr eldhúsglugginn á húsi hennar þannig að auð- velt er að sjá þar inn. Að sjálf- sögðu fékk hún að taka þátt í gleðinni. Hún bað reyndar ekki um það. „Þegar ég var búin að fara til krakkanna í draugabún- ingnum þá fór ég aðeins á rúntinn, ég vissi að systir mín var heima. Ég lagði bílnum langt frá húsinu hennar svo hún myndi ekki verða vör við mig. Svo bankaði ég á eldhús- gluggann, þar sem hún stóð við vaskinn, og átti sér einskis ills von. Henni brá svo mikið að hún rak upp óp og svo fékk ég að heyra hvernig í ósköp- unum mér hefði dottið þetta í hug!“ segir Eygló og skellir upp úr. Systir hennar var þó fljót að fyrirgefa uppátækið og Eygló heimsótti hana í bún- ingi nokkrum sinnum í viðbót, þar sem mikið var hlegið. Hún bætir við að það hafi reyndar örlað á smá hneyksl- an hjá elstu barnabörnunum í hópnum. „Þessari sem er að verða 12 ára fannst hún verða að spyrja mig: Amma, á hverju ertu?“ segir hún og hlær. Hún tekur heilshugar undir að fullorðið fólk eigi ekki að þurfa áfengi til að sleppa fram af sér beislinu. „Maður er jú alinn upp við það að þegar þú ert kominn á vissan aldur eigir þú að haga þér svona eða hinsegin. Kannski er það að- eins að breytast núna, maður sér það til dæmis á Facebook í dag að það er fullt af fólki að stíga út fyrir þæginda ramm- ann og birta myndbönd af sér að syngja og gera hitt og þetta. Við erum öll börn innst inni og við þurfum að halda í þetta barn í okkur.“ Með húmorinn í lagi Húmorinn hefur f leytt Eygló langt í gegnum árin. Hún nefnir sem dæmi erf- iðan skilnað sem hún gekk í gegnum þegar hún var 31 árs. Skyndilega stóð hún uppi sem einstæð, fimm barna móðir. „Jújú, maður er búinn að lenda í ýmsu í gegnum ævina en ég nenni nú ekkert að standa í því að vera bitur eða reið. Hver er tilgangurinn með því?“ Mér finnst eiginlega eins og barnið og leikurinn verði bara sterkari í mér með ár- unum. Veistu, ég bara nenni UPPÁTÆKJASAMA AMMAN EYGLÓ Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Eygló segist ekki hafa átt í neinum vandræðum með að finna búninga. MYNDIR/AÐSENDAR Eygló Lind, sjötug amma í Borg- arnesi, greip til sinna ráða þegar barnabörnin hennar þurftu að fara í sóttkví í tvær vikur. ekki að taka mig of alvarlega. Ég var að muna eftir því að ég á afmæli í sumar, ég verð sjö- tug, það er aldrei að vita nema maður geri eitthvað þá!“ n Við erum öll börn innst inni og við þurfum að halda í þetta barn í okkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.