Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2020, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2020, Blaðsíða 24
SAKA MÁL 24. APRÍL 2020 DV A llt hófst þetta með því að ungur maður fór með næturlestinni frá Ósló og fór úr henni á lestar­ stöðinni í Hønefoss klukkan 00.50. Lestarvörður tók eftir unga manninum því hann var með mikið af útilegubúnaði með sér, talaði lélega ensku og virtist ekki þekkja til á svæðinu. Ungi maðurinn fór síðan og tjaldaði í miðju íbúðahverfi í bænum, um einn kílómetra frá lestarstöðinni. Þegar leið á daginn var lögreglunni til­ kynnt um tjaldið og allan búnaðinn sem stóð utan við það. Lögreglumenn fóru á vettvang til að sækja tjaldið og búnaðinn. Í tjaldinu fundu þeir marg­ víslegan útilegubúnað, ein­ hvers konar veiðivopn sem nefnist „blow gun“ (sem er blástursvopn eins og nafnið bendir til) og pílur í það. Einnig fannst dularfullt kort. Á því var yfirlit yfir óbyggt svæði í Sokna og á það var skrifað „target“ (skotmark). Þá fannst myndavél í tjald­ inu en engin skilríki. Búið var að eyða öllum myndum í vélinni en lögreglunni tókst að kalla tvær þeirra fram á nýjan leik. Á annarri sást ungur maður sem lögreglan gekk út frá að væri tjaldmað­ urinn. Lýst var eftir honum í fjölmiðlum en án árangurs. Leitin að svari Ekkert gerðist í málinu eftir þetta og lögreglan virðist ekki hafa eytt meiri kröft­ um í það. Á síðasta ári var ákveðið að taka málið fyrir í þáttaröðinni Åsted Norge en í henni eru óleyst mál af ýmsu tagi tekin fyrir og reynt að komast til botns í þeim. Þáttastjórnendur sneru sér til lögreglunnar í Hønefoss sem var reiðubúin til að að­ stoða. Lisbeth Grøtterud Edv­ ardsen yfirlögregluþjónn var þó hrædd um að mikilvægar vísbendingar hefðu glatast því tjaldið og aðrir munir tjaldmannsins voru seldir á uppboði í nóvember 2010. Hún hafði samband við kaupendur og þáttagerða­ menn hittu hjónin sem keyptu bakpoka tjaldmannsins. Kon­ an mundi að í bakpokanum hafði verið hollenskur matur og skæri frá hollenskum framleiðanda. Á bakpokanum héngu síðan krókar sem á stóð „Amsterdam“. Þetta benti að mati þátta­ gerðarmanna til að tjald­ maðurinn væri frá Hol­ landi. Lögreglan í Hønefoss sendi því beiðni um aðstoð til hollensku lögreglunnar í gegnum alþjóðalögregluna Interpol. Með beiðninni var myndin af hinum meinta tjaldmanni send. Í septem­ ber á síðasta ári barst síðan svar sem vakti óhug hjá lög­ reglunni. Var hann hryðjuverkamaður? Lögreglan beið þar til í desember með að deila upp­ lýsingunum frá hollensku lögreglunni með þáttagerð­ armönnunum. Það var ekki fyrr en hollenska lögreglan hafði neitað að staðfesta að fyrstu upplýsingarnar sem norska lögreglan fékk væru réttar. „Já, við fengum svör sem benda til að maðurinn á myndinni geti verið Tristan van der Vlis, sem lést í apríl 2011. Það er að segja tæpu ári eftir að hann var hugsan­ lega í Noregi,“ sagði Edvard­ sen við þáttagerðarmenn og bætti síðan við: „Hann gekk inn í verslunarmiðstöð í Hol­ landi og drap sex manns og særði fleiri áður en hann svipti sig lífi.“ Þessar upplýsingar komu að sögn Edvardsen frá lög­ reglumanni í því teymi hol­ lensku lögreglunnar sem leitar að týndu fólki. Hann taldi manninn á myndinni líkjast Tristan van der Vlis. Þáttagerðarmenn hringdu í foreldra Tristans. Þau báðu um að þeim yrði sendur tölvupóstur og svöruðu hon­ um nokkrum dögum síðar. Þau sögðu að sonur þeirra hefði aldrei komið til Noregs en vildu ekki skoða myndina og þar með var ekki hægt að staðfesta hvort um son þeirra var að ræða eða ekki. Málið leysist Hin ljósmyndin, sem lög­ reglunni tókst að endurgera úr myndavélinni, hafði aldrei verið birt opinberlega fyrr en á þessu ári. Á myndinni sjást tveir menn og götunafn á bak við þá. Gatan reyndist vera í Tarifa á Spáni. Í febrúar hófu norsku þáttagerðarmennirn­ ir samstarf við blaðamann­ inn Sander van Mersbergen hjá Allgemeen Dagblad, sem er stærsta dagblað Hollands. Blaðið hafði fjallað mikið um Tristan van der Vlis og er með gott net heimildar­ manna. Mersbergen setti sig í sam­ band við marga sem þekktu Tristan van der Vlis og sýndi þeim myndina af tjaldmann­ inum. Þrír sögðu að maður­ inn líktist Tristan mikið en töldu samt að myndin væri ekki af honum. Að lokum gat Mersbergen talið foreldra Tristan van der Vlis á að skoða myndina og staðfestu þau að myndin væri ekki af honum. Næsta skref var því að lýsa eftir tjaldmanninum í blaðinu Allgemeen Dagblad. Greinin var sú þriðja mest lesna þá helgina en rúmlega 300.000 manns lásu hana á netinu. Einn þeirra sem lásu hana þekkti mennina á mynd­ inni. Hann sendi tölvupóst til Mersenbergen þar sem stóð: „Tjaldmaðurinn, eins og þið kallið hann, er sonur minn. Ég er maðurinn til vinstri á myndinni frá Spáni. Hann er á lífi en ringlaður.“ Maðurinn, sem er nefndur Rick í Åsted Norge til að hlífa syni hans, þekkti sjálfan sig og soninn strax á myndinni frá Spáni. Rick ræddi við þáttagerðarmennina um málið. „Ég sá myndina í blaðinu og brá mikið. Maðurinn til vinstri, í stuttbuxum, er ég með syni mínum. Myndina tók vinur okkar í Tarifa á Spáni í kringum 2000,“ sagði Rick. Það var áður en sonur­ inn fór að fikta með fíkniefni en það varð til þess að hann veiktist alvarlega andlega. „Hann var í fínu lagi þarna. Hann var góður og félagslyndur strákur,“ sagði Rick og bætti við að sonurinn hefði byrjað að borða sveppi og drekka ayahuasca­te til að komast í einhvers konar trans. „Hann var mjög góður strákur. Hann vann á nokkr­ um stöðum en síðan byrjaði hann að fikta við vímuefni þegar hann var 21 árs. Ég held að þetta hafi reynst honum ofviða. Á ákveðinn hátt hef ég misst hann,“ sagði Rick og bætti við að þegar sonurinn var 24 ára, árið 2010, hafi hann viljað fara til Noregs því það væri fallegt land. Hann veit ekki af hverju Hønefoss varð fyrir valinu en sonurinn sýndi honum kortið sem á var ritað „target“ áður en hann fór af stað. Hann ætlaði sér að hafast við í óbyggðum um hríð. Hann taldi að sonurinn hefði ekki haft neina kunnáttu til að nota blástursvopnið og ekki haft neina reynslu af veiðum eða því að vera langdvölum úti í náttúrunni. Flýtti sér heim Rick sagði að sonurinn hefði snúið heim frá Hønefoss næstum jafn skyndilega og hann fór til Noregs. Þegar heim kom sagði hann að hon­ um hefði ekki líkað við Noreg og hefði skilið allt sitt hafur­ task eftir, einnig mynda­ vélina sína. Rick reiddist við þetta en sonurinn vildi ekki tala um þetta. „Ég hélt að hann hefði kastað þessu í ruslagám. Síðan las ég í Allgemeen Dagblad að hann hefði skilið þetta eftir í litlum bæ og að íbúarnir hefðu velt fyrir sér í tíu ár hver hann væri. Þá varð ég mjög hissa,“ sagði Rick og bað lögregluna og íbúa Hønefoss afsökunar á að sonur hans hefði valdið þess­ um vandræðum. Aðspurður sagðist hann hafa sýnt syn­ inum Allgemeen Dagblad. „Já, ég sýndi honum það í morgun. Hann sagði bara að verkefninu væri lokið eða eitthvað í þá veruna. Ég get talað við hann í tvær, þrjár mínútur en þá hverfur hann inn í annan heim. Einhvers konar tölvuleikjaheim.“ n Dularfulli tjaldmaðurinn: Hvaðan kom hann? Hvað varð um hann? Aðfaranótt 3. maí 2010 tjaldaði dularfulli „tjald- maðurinn“ í miðju íbúða- hverfi í Hønefoss í Noregi. Daginn eftir var hann horfinn en tjaldið og eigur hans stóðu óhreyfð. Tjaldmaðurinn reyndist vera ungur ferðamaður með undarlegan ásetning. MYND/SKJÁSKOT ÅSTED NORGE Málið er allt hið undar- legasta og ansi flókið, og í sjálfu sér sorglegt eins og faðir tjald- mannsins sagði nýlega. 24 FÓKUS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.