Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2020, Qupperneq 28
Marengskaka með sumarlegum blæ
Með hækkandi sól er tilvalið að
bjóða upp á sumarlega tertu með
helgarkaffinu. Ferskir ávextir
gera tertuna sumarlega en tilvalið
er að bjóða upp á freyðivínsglas
með eða sódavatn með ferskum
ávöxtum og skála fyrir væntan-
legu sumri með samkomugleði og
blóm í haga.
Marengsbotnar
4 stk. eggjahvítur
2 dl sykur
3 dl Rice crispies
1 tsk. lyftiduft
Hitið ofninn í 120 gráður á
blæstri. Þeytið saman eggja-
hvítur og lyftiduft og bætið
sykrinum smám saman við þar
til marengsinn er orðinn alveg
stífur. Rice crispies er bætt var-
lega saman við með sleikju.
Leggið marengsblönduna í tvo
jafna hringi, ca. 23-25 cm í þver-
mál, á tvær arkir af bökunar-
pappír.
Bakið í ofninum í 60 mínútur.
Karamellukrem
50 g smjör
150 g rjómasuðusúkkulaði
4 stk. eggjarauður
4 msk. flórsykur
Byrjið á að bræða saman smjör
og súkkulaði við vægan hita og
passið að hræra vel í blöndunni.
Látið kólna aðeins.
Þeytið saman eggjarauðurnar og
flórsykurinn. Blandið næst öllu
saman og hrærið vel.
Setjið um 3/4 karamellunnar á
neðri marengsbotninn, þeytið
500 ml af rjóma og setjið ofan á
karamelluna.
Næst er efri botninn settur á
og þá er tilvalið að skreyta með
restinni af karamellunni ásamt
fallegum ávöxtum.
28 MATUR 24. APRÍL 2020 DV
Una í eldhúsinu
HUGGULEGT KAFFIBOÐSFÖNDUR
Matgæðingur DV, Una Dögg
Guðmundsdóttir, töfrar fram
huggulegt helgarboð með lítilli
fyrirhöfn. Sé fólk í stuði er til-
valið að henda í heimagerðan ís.
Ormasúkkulaðibúðingur fyrir litla orma
Er ekki tilvalið að föndra girnilegt
og fljótlegt moldarstaup með orm-
um í tilefni þess að nú fer grasið
að grænka? Uppskrif tin tekur
örfáar mínútur í gerð og krakk-
arnir munu skríkja af kátínu.
Þessi eftirréttur slær alltaf í gegn
og er einfaldur og því tilvalið að
leyfa krökkunum að aðstoða við
að útbúa hann. Hann er vinsæll í
barnaafmælum og hrekkjavöku-
veislum, nú eða bara á góðu
föstudagskvöldi.
1 pakki Royal-súkkulaðibúðingur
4-5 stk. Oreo-kex
1 pakki hlaup ormar/gúmmí
Útbúið Royal-súkkulaðibúðing
eftir leiðbeiningum.
Setjið í 4-5 glös.
Raspið niður Oreo-kex (svo að það
líti út eins og sandur eða mold).
Skreytið með hlaupormum og
setjið í kæli í um 15 mínútur.
U na vippar á sig svunt-unni og töfrar fram k y n n g i m a g n a ð a r
kökur og gúmmelaði eins og
ekkert sé. Hér er það klass-
ísk marengsterta sem skilur
alla eftir í kolvetnisþoku með
sælubros á vör.
Eins og flestir vita eru
eggjahvítur í marengs en
það er tilvalið að skella í smá
heimagerðan ís með rauðun-
um. Hann má borða einan og
sér eða setja á milli marengs-
botna vilji fólk það frekar en
rjóma. Klassísk uppskrift
kveður á um 4 eggjarauður,
6 matskeiðar sykur og 500 ml
af rjóma. Rjóminn er þeyttur
og settur til hliðar. Því næst
eru eggin og sykurinn hrærð
mjög vel saman í hrærivél.
Því næst er rjómanum hrært
saman við með sleif. Bragð-
bætt með vanillu ef vill. Sett
í frysti yfir nótt.