Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2020, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2020, Blaðsíða 30
Gamanleikarinn Þór­hallur Sigurðsson, bet­ur þekktur sem Laddi, hefur glatt landann í marga áratugi með gríni og glensi í sjónvarpsþáttum, kvikmynd­ um og auglýsingum, svo fátt eitt sé talið. Hann slær nú enn og aftur í gegn, í þáttaröðinni Jarðarförin mín á Sjónvarpi Símans. En hvað ætli einn ást­ sælasti leikari landsins borði á venjulegum degi? Rólegur dagur „Ég fer yfirleitt á fætur klukk an 8.30 og fæ mér morgun mat sem er mjög fá­ brotinn. Akkúrat núna í sam­ komubanninu er ekki mikið að gera en ég les einu sinni í viku inn á teiknimyndir hjá Mynd­ formi. Svo reyni ég að nota tímann til að mála myndir,“ segir Laddi. Hann fylgir engu ákveðnu mataræði og segist borða nánast allt. „Ég borða mikið kjúkling á ýmsu formi, og fisk, en ég reyni alltaf að borða hollan mat,“ segir Laddi. Hann segist ekki eyða miklum tíma í eldhúsinu en vera þó mjög liðtækur í þar, sérstaklega ef það á að vera indverskt. Uppáhaldsmáltíð hans er nefnilega indverskur matur með saffran grjónum og spæsí kartöflum. Breyttar matarvenjur í tökum Þegar Laddi var í tökum fyrir þáttaröðina Jarðarförin mín breyttust matarvenjur hans sökum anna. „Það var ein Ljúffenga pestó-nautið hans Ladda slær í gegn Nautalund í pestósósu 800 g nautalund (4 x 200 g steikur) 3 msk. matarolía til steikingar Salt og pipar 80 g parmesanostur (heill) Steikið kjötið í heitri olíu í 6–8 mín­ útur. Snúið af og til, bragðbætið með salti og pipar. Setjið á miðja diska, leggið með­ lætið yfir og þunnar sneiðar af parm esanosti þar yfir. Pestósósa með furuhnetum 4 msk. pestómauk, grænt 1 dl hvítvín, óáfengt (má sleppa finnst mér) 2 dl kjúklingasoð (vatn og teningur) 200 g sykurbaunir (snjóbaunir) 8 msk. furuhnetur 2-3 stk. tómatar 2 dl rjómi Salt og pipar Ristið furuhnetur á þurri pönnu og setjið til hliðar. Setjið pestómauk, hvítvín, kjúklinga­ soð og sykurbaunir í pott og sjóðið við vægan hita í 2 mínútur. Bætið furuhnetunum og rjóma sam­ an við og sjóðið í aðrar 2 mínútur. Sneiðið tómatana og setjið sneið­ arnar í sósuna rétt áður en rétturinn er borinn fram. Meðlæti Pasta (tagliatelle) Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is Nautalundin er í uppáhaldi hjá Ladda en ind- verskur matur á sérstakan stað í hjarta hans. Mataræði hans samanstendur af hollum og góðum mat þó að hann fylgi engu ákveðnu mataræði. Matseðill Ladda Morgunmatur Kaffi og ristað brauð með osti svo stundum set ég kavíar ofan á og stundum súrar gúrkur. Ég nota gammeldags gurka, sem eru sænskar. Þær eru bestar. Hádegismatur Borða yfirleitt á Krúsku, mjög hollur og góður matur. Kvöldmatur Ekkert hefðbundið, bara létt og hollt. Laddi segir að indverskur rét tur sé vinsælastur á sínu heimili þessa stundina. „En mín uppskrift er leyndó. Næstvin- sælast er nautalund í pestó- sósu,“ segir hann og deilir þeirri uppskrift með lesendum. Ég borða mikið kjúkling á ýmsu formi, og fisk, en ég reyni alltaf að borða hollan mat. máltíð um miðjan dag, en það var reynt að hafa matinn holl­ an. Hann var keyptur svona héðan og þaðan, en yfirleitt gat maður valið hvort maður vildi fisk eða kjöt. Svo var það happa og glappa hvort manni fannst maturinn góður, en hann var aldrei vondur,“ segir Laddi og bætir við: „Það var alltaf gefinn hálftími í mat, svo var alltaf hægt að ná sér í snarl á milli atriða, þar sem myndaðist bið.“ n Laddi er mjög liðtækur í eldhúsinu, sérstaklega ef það á að vera indverskt. MYND/ERNIR 30 FÓKUS 24. APRÍL 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.