Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2020, Qupperneq 30
Gamanleikarinn Þórhallur Sigurðsson, betur þekktur sem Laddi,
hefur glatt landann í marga
áratugi með gríni og glensi í
sjónvarpsþáttum, kvikmynd
um og auglýsingum, svo fátt
eitt sé talið. Hann slær nú enn
og aftur í gegn, í þáttaröðinni
Jarðarförin mín á Sjónvarpi
Símans. En hvað ætli einn ást
sælasti leikari landsins borði
á venjulegum degi?
Rólegur dagur
„Ég fer yfirleitt á fætur
klukk an 8.30 og fæ mér
morgun mat sem er mjög fá
brotinn. Akkúrat núna í sam
komubanninu er ekki mikið að
gera en ég les einu sinni í viku
inn á teiknimyndir hjá Mynd
formi. Svo reyni ég að nota
tímann til að mála myndir,“
segir Laddi.
Hann fylgir engu ákveðnu
mataræði og segist borða
nánast allt. „Ég borða mikið
kjúkling á ýmsu formi, og
fisk, en ég reyni alltaf að
borða hollan mat,“ segir
Laddi. Hann segist ekki eyða
miklum tíma í eldhúsinu en
vera þó mjög liðtækur í þar,
sérstaklega ef það á að vera
indverskt. Uppáhaldsmáltíð
hans er nefnilega indverskur
matur með saffran grjónum
og spæsí kartöflum.
Breyttar matarvenjur í
tökum
Þegar Laddi var í tökum fyrir
þáttaröðina Jarðarförin mín
breyttust matarvenjur hans
sökum anna. „Það var ein
Ljúffenga pestó-nautið
hans Ladda slær í gegn
Nautalund í
pestósósu
800 g nautalund (4 x 200 g steikur)
3 msk. matarolía til steikingar
Salt og pipar
80 g parmesanostur (heill)
Steikið kjötið í heitri olíu í 6–8 mín
útur. Snúið af og til, bragðbætið
með salti og pipar.
Setjið á miðja diska, leggið með
lætið yfir og þunnar sneiðar af
parm esanosti þar yfir.
Pestósósa með furuhnetum
4 msk. pestómauk, grænt
1 dl hvítvín, óáfengt (má sleppa
finnst mér)
2 dl kjúklingasoð (vatn og teningur)
200 g sykurbaunir (snjóbaunir)
8 msk. furuhnetur
2-3 stk. tómatar
2 dl rjómi
Salt og pipar
Ristið furuhnetur á þurri pönnu og
setjið til hliðar.
Setjið pestómauk, hvítvín, kjúklinga
soð og sykurbaunir í pott og sjóðið
við vægan hita í 2 mínútur.
Bætið furuhnetunum og rjóma sam
an við og sjóðið í aðrar 2 mínútur.
Sneiðið tómatana og setjið sneið
arnar í sósuna rétt áður en rétturinn
er borinn fram.
Meðlæti
Pasta (tagliatelle)
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
Nautalundin er
í uppáhaldi hjá
Ladda en ind-
verskur matur á
sérstakan stað
í hjarta hans.
Mataræði hans
samanstendur
af hollum og
góðum mat þó
að hann fylgi
engu ákveðnu
mataræði.
Matseðill
Ladda
Morgunmatur
Kaffi og ristað brauð með osti
svo stundum set ég kavíar ofan
á og stundum súrar gúrkur. Ég
nota gammeldags gurka, sem eru
sænskar. Þær eru bestar.
Hádegismatur
Borða yfirleitt á Krúsku, mjög
hollur og góður matur.
Kvöldmatur
Ekkert hefðbundið, bara létt og
hollt. Laddi segir að indverskur
rét tur sé vinsælastur á sínu
heimili þessa stundina. „En mín
uppskrift er leyndó. Næstvin-
sælast er nautalund í pestó-
sósu,“ segir hann og deilir þeirri
uppskrift með lesendum.
Ég borða mikið kjúkling á
ýmsu formi, og fisk, en ég reyni
alltaf að borða hollan mat.
máltíð um miðjan dag, en það
var reynt að hafa matinn holl
an. Hann var keyptur svona
héðan og þaðan, en yfirleitt
gat maður valið hvort maður
vildi fisk eða kjöt. Svo var það
happa og glappa hvort manni
fannst maturinn góður, en
hann var aldrei vondur,“ segir
Laddi og bætir við: „Það var
alltaf gefinn hálftími í mat,
svo var alltaf hægt að ná sér
í snarl á milli atriða, þar sem
myndaðist bið.“ n
Laddi er mjög liðtækur í eldhúsinu, sérstaklega ef það á að vera indverskt. MYND/ERNIR
30 FÓKUS 24. APRÍL 2020 DV