Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2020, Síða 38
Í blíðskaparveðri í Þýskalandi tekur Guðlaugur Victor Pálsson, lands
liðsmaður í knattspyrnu,
símann þegar blaðamaður
slær á þráðinn til hans. Eins
og í flest öllum löndum heims
hafa verið breyttar aðstæður
í Þýskalandi síðustu vikur
vegna kórónuveirunnar. Guð
laugur hefur búið í Þýskalandi
í rúmt ár og unir hag sínum
vel. Hann er orðinn þaul
reyndur í að aðlagast nýjum
aðstæðum enda hefur hann
þrátt fyrir ungan aldur búið í
níu löndum.
Það getur reynst atvinnu
manni í fremstu röð erfitt
að æfa þegar allt er lokað,
hvernig hefur Guðlaugur farið
að? „Fyrstu fjórar vikurnar
vorum við að æfa heima, það
var bara æfingaáætlun frá
félaginu sem farið var eftir.
Það var ekkert mál að halda
þetta út til að byrja með en
þegar líða fór á þetta, þá varð
það erfiðara. Ég hef reynt að
æfa, fara í háttinn á skikkan
legum tíma og borða vel. Ef þú
hefur ekki rútínu flesta daga,
þá ertu í veseni,“ segir Guð
laugur sem leikur í næstefstu
deild Þýskalands með Darm
stadt.
Í Þýskalandi hefur vel tek
ist til við að bæla veiruna
niður og nú er byrjað að taka
skrefin í að opna samfélagið.
„Við erum búnir að æfa í tvær
vikur í sex manna hópum.
Hér er stefnt á að deildin fari
af stað 9. maí en það er ekki
endanleg ákvörðun. Við fáum
að vita meira á næstu dögum
og þá byrjum við að æfa allir
saman í næstu viku. Það er þá
tveggja vikna undirbúningur
fyrir fyrsta leik.“
Veiran rífur aura úr buddu
Guðlaugs
Á Íslandi hefur meira og
minna allt verið opið á sama
tíma og veiran hefur gert vart
við sig, sömu sögu er að segja
í Þýskalandi þó að lögreglan
hafi vaktað fólk. „Í samfélag
inu hafa tveir einstaklingar
mátt vera saman. Þetta hefur
ekkert verið alltof strangt,
lögreglan var meira á ferðinni
og stoppaði hópa sem voru
saman og bað fólk um að fara
í tveggja manna hópa.“
Faraldurinn hefur hins veg
ar orðið til þess að Guðlaugur
fær færri evrur í vasa sinn
næstu þrjá mánuðina. „Við
tókum á okkur 20 prósenta
launalækkun næstu þrjá mán
uðina. Félagið hafði ekki rétt á
að skipa okkur að gera þetta.
Við ræddum þetta saman sem
lið og það var rætt fram og
til baka. Það voru ekki allir
klárir í þetta til að byrja með
en ég veit ekki betur en að
allir hafi samþykkt þetta að
lokum.“
Í sínu besta formi
Guðlaugi tókst á síðasta ári
að eigna sér stöðu hægri bak
varðar í íslenska landsliðinu.
Það var nokkuð óvænt enda
hafði hann sjaldan komist í
hópinn síðustu ár. Þá hefur
hann spilað frábærlega í
Þýskalandi og verið besti leik
maður Darmstadt sem situr í
sjötta sæti deildarinnar.
„Þetta hefur þróast vel á
þessu tímabili. Það er búið að
vera skemmtilegt með félags
liði og landsliði. Þetta er eftir
minnilegasta tímabilið hingað
til, mér hefur vegnað vel í
Þýskalandi og ég hef verið
meira með landsliðinu en áður.
Þetta eru sérstakir tímar, ef
allt hefði verið eðlilegt í heim
inum þá eru góðar líkur á að
Ísland væri núna að undir
búa sig undir Evrópumót.
Það sem hefur verið erfiðast
síðustu vikur er óvissan, það
er ekki í þínum höndum hve
nær þú mætir aftur til vinnu
og ferð aftur út á völl,“ segir
Guðlaugur að lokum og kveðst
nú þurfa að fara að hugsa um
son sinn sem kallar eftir at
hygli. n
K órónuveiran hefur haft áhrif á alla og íþróttafélög finna fyrir henni
eins og aðrir, engar æfingar
hafa mátt fara fram hér á
landi síðustu vikur. Þá hafa
mörg knattspyrnufélög farið
fram á að leikmenn lækki laun
sín, sökum þess að rekstur
inn verði nánast ómögulegur
vegna veirunnar.
Það má vel vera að rekst
urinn verði þungur á næstu
mánuðum en að vandamálið
hafi orðið svo stórt strax á
fyrsta degi og veiran gerði
vart við sig hér á landi, er í
besta falli hlægilegt og um
ræðan ómarktæk.
Sem dæmi gat ÍA aðeins
borgað helming launa leik
manna um síðustu mánaða
mót, það hefur ekkert með
veiruna að gera heldur aðeins
illa rekið fyrirtæki sem var
rekið með rúmlega 60 millj
óna króna halla á síðasta ári.
ÍTF, sem eru hagsmuna
samtök félaga í efstu deildum
hér á landi, hafa blandað sér
í umræðuna. Mörg félög hafa
áhyggjur af málflutningi sam
takanna á meðan skipstjór
inn þar, Birgir Jóhannsson,
talar þeirra máli. Birgir var
framkvæmdastjóri FH þegar
knattspyrnudeild félags
ins varð nánast gjaldþrota á
síðasta ári. Ekki beint sann
færandi málsvari fyrir félög
í vanda.
Rekstur knattspyrnudeilda
hefur að miklu leyti verið
óábyrgur síðustu ár, ekki
verður hægt að kenna veir
unni um nema brotabrot af
því vandamáli sem nú virðist
blasa við. Veiran verður von
andi til þess að knattspyrnu
deildir tryggi ábyrgari rekst
ur í stað þess að allt stefni í
óefni við minnsta áfall. n
Í besta falli
hlægilegt
og umræðan
ómarktæk.
Illa rekin íþróttafélög nota
veiruna til að koma rekstri sínum
í jafnvægi. MYND/ANTON BRINK
LAUNALÆKKUN SEM ALLIR
SÆTTU SIG VIÐ AÐ LOKUM
Félagið hafði
ekki rétt á að
skipa okkur að
gera þetta.
Guðlaugur Victor hefur stimplað sig inn í íslenska landsliðið á óvæntan hátt. MYND/ANTON BRINK
Hörður Snævar
Jónsson
hoddi@433.is
Í eðlilegu árferði eru góðar líkur
á því að Guðlaugur Victor væri
að undirbúa sig undir stærsta
augnablikið á ferlinum.
UTAN VALLAR
Hörður Snævar
Jónsson
38 SPORT 433 24. APRÍL 2020 DV