Íþróttablaðið - 01.03.1948, Side 18

Íþróttablaðið - 01.03.1948, Side 18
8 ÍÞRÓTT ABL AÐIÐ Islenzkct úrvalsliðið, sem sigraði Danina. Albert er þriðji frá hœgri i aftari röð. Lengst til hœgri er Murdo McDougall. Albert lék við Danina: Sumarið 1945 kom Albert hingað til landsins, eftir beiðni landsliðsnefndar- innar, er valdi landslið okkar, sem mæta átti Dönunum. Þótt Albert væri eigi heill í fæti, sýndi liann frábæran leik. í leik hans kom ekki hvað sízt í ljós, liinn óskeikuli baráttuvilji hans, sem aldrei brást leikinn út. Með bar- áttuviljanum einum saman, sýndi AI- bert einn hinn þýðingarmesta og bezta eiginleika góðs knattspyrnumanns: „að berjast og örfa samheldni liðs síns allt til enda leiks, jafnt í blíðu sem striðu." Albert sigrar fyrir Reykjavík. Reykjavíkurliðið, sem valið var til þess að leika við danska úrvalsliðið, kom eins og kunnugt er öllum mjög á óvart, er það sigraði Danina með 4 mörkum gegn 1. Frammistaða Alberts Guðmundssonar i þessum leik var að flestra dómi, einhver sú glæsilegasta er sést hafði til þessa tíma hér á vellin- um. Og þrátt fyrir það að Danirnir létu tvo menn stanzlaust gæta hans (og hinn þriðji var reiðubúinn að grípa inn i), þá tókst þeim eigi að hindra Al- bert i að skora 4 glæsileg mörk (eitt dæmt off-side). Þriðja markið, skoraði hann eftir að Reykjavíkurliðið liafði byrjað á miðju, og knötturinn hafði aðeins farið milli tveggja Islendinga. Albert fékk knöttinn út við liægra liorn vítateigs Dananna, en á sömu sekúndu lá knötturinn í vinstra horni Danamarksins, — Mark þetta var gert svo snöggt, að hvorki á- horfendur né leikmenn liöfðu áttað sig á þvi hvað skeð liafði, fyrr en mark- maður Dananna tók knöttinn úr mark- inu. Leikur Rcykjavíkurliðsins var sem fyrr segir með hinum mestu ágætum, en þó er ég viss um að enginn leikmanna né annarra myndu móðgast, þó þeir heyrðu sagt: Það var fyrst og fremst Albert Guðnmndsson, sem sigraði fyrir Reykjavik. Albert fer aftur til Englands. Eftir keppnina við Danina fór Al- bert aftur til Glasgow, þar sem hann dvaldi þó aðeins stuttan tíma, þar eð hann hafði í hyggju að fara til London og leggja stund á skipamiðlun við verzl- unarskóla þar í borginni Glasgow Rangers héldu honum kveðjusamsæti áður en hann vfirgaf borgina. Eftir samsætið mátti sjá eftir- farandi klausa í skozku blaði: ..... Albert Guðmundsson frá íslandi, hinn brögðótti og listræni leikmaður Glasgow Rangers og einhver bezti knatt- svyrnumaður, sem ég hefi séð, er á förum til London. Hann mun leika þar með íslensku knattspyrnuliði, sem er þar í heimsókn, en að því loknu mun hann stunda nám í skipamiðlun. Eg er viss um að hann verður vart stiginn úr járn- brautinni í London, er eitthvert Lundún- arliðið fer á stúfana til að fá hann í lið með sér. Albert er ennþá áhugamður, og hefir með frammistöðu sinni og fram- komu sinni unnið sér miklar vinsceldir.. í London lék Albert með islenzka úrvalsliðinu er fór þangað haustið 1946 og keppti við áhugamannalið þar í borginni. Eftir fyrsta leikinn, mátti sjá eftirfarandi klausu í einu víðlesnasta blaði borgarinnar, og má af henni sjá, að skozki blaðamaðurinn hafði getið sér rétt til. Leggið nafn Alberts Guðmundssonar á minnið, Lundúnarbúar góðir. Hann er Tommy Lawton íslands, og strax og leyfi hans til námsdvalar er fyrir hendi mun Albert leika með knattspyrnufélagi i London, skrifar Robert Finley.... „Al- bert er enginn viðvanmgur í knattspyrnu. Hann er 23 ára gamall haröur miðfram- herji, sem hefir leikið fyrir Glasgow Rangers, meðan hann var við nám í Glasgow. — Félag hans í London verður — hm — Glasgow Rangers mun sjá um þaö og þeir segja ekki neitt.... Albert ákveður að leika með Arsenal. Stuttu seinna bera Lundúnablöðin þær fregnir að Albert Guðmundsson ætli að gerast atvinumaður, en þar sem erfitt var fyrir útlendinga að fá leyfi til þess að gerast atvinnuknattspyrnu- menn i Englandi, var óvíst hvort það tækist. Eftirfarandi fregn skýrir sig sjálf: „Tommy Lowton Islands hugsar sér að verða atvinnuleikmaður með Arsenál." Albert Guðmundsson, sem er Tommy Lawton fslands, hefir boðiö knattspyrnu- félaginu Arsenal þjónustu sína. Ef leyfi fœst, en það er vafasamt, — mun hann leika með þeim sem atvinnumciður. En ef þaö fæst ekki, þá sem áhugamaður. Um það leyti sem islenzka úrvalslið- ið var í London, var þar á keppnisferð

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.