Íþróttablaðið - 01.03.1948, Blaðsíða 32

Íþróttablaðið - 01.03.1948, Blaðsíða 32
22 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ Oröíö er laiisl Misþyrming orðs og hugtaks. Margt ber oft fyrir augu og eyru, sem sýnir og sannar þaS átakanlega, hversu sorglega mikill hluti þjóðarinn- ar er orðinn grunn- og rótlaus i mörgu því, sem íslenzkt er og þjóðlegt og gott, vegna ræktarléysis þjóðarforustunnar við hið gamla og fortiðina og vegna þekkingarskorts á því. Einna mest ber á þessu í siðum og háttum, þar sem flest það, sem var íslenzkt, gamalt og gott, og sem sumu fylgdi meira og minna göfgi, er að hverfa, eða horfið fyrir útlendum samtíningi og — í sum- um tilfellum — útlendum skrílsháttum. (Sbr. t. d. djöflagangurinn á áramótun- um.), svo og í málinu okkar „ástkæra ilhýra“, sem Jónas Hallgrímsson kall- aði það, og sem öllum ætti það að vera. Þar er misþyrmingin einna viðtækust og verður þjóðinni lika afdrifarikust. Þar eiga svo langsamlega flestir óskilið mál, — því er nú ver —. Og — það verð- ur einhverntíma að koma fram, verður að segja það, og því miður er það sann- leikur. — Þar ganga blaðamennirnir okkar, langflestir, fremstir í flokki, ein- mitt þeir þjóðarþegnarnir, sem mesta og bezta hafa möguleikana og aðstæð- urnar til að vinna einmitt á hinn veg- inn, — bezta aðstöðuna til að halda við hreinleika og fegurð málsins i orð- um, orðaröð og setningarskipun. Þeir virðast, að örfáum undanteknum, lítið hirða um að vanda þetta í ritum sínum, og spilla þar með máli og málsmekk allra þeirra mörgu, sem lesa skrif þeirra dag eftir dag og viku eftir viku. Að svona er orðið sýnir meðal annars sumt það, er birtist frá penna sumra annarra og einnig skólagenginna manna, jafnvel í opinberum tilkynningum og fleiru úr hæstu stöðum. Þá eru verzlunarmenn og kaupmenn ekki góðu börnin að þessu leyti, sem meðal annars má greinilega sjá á auglýsingum þeirra og verzlunar- og verzlunarfélagaheitum. Oft hefir mig langað til að stinga á sumum þessum ljótu og leiðu kýium í málinu okkar, en bæði fundist ég tæp- lega vera maður til þess, þar sem ég hefi á litlu öðru að byggja en málsmekk mínum, — en hann er fenginn frá góðr um uppeldisáhrifum á bernskuheimili minu og við lestur gullaidarrita eldri og yngri — og svo hefi ég ailtaf verið að búast við þvi, að einhverjir af málfræð- ingum okkar og viðurkenndum íslenzku- mönnum mundu þá og þegar finna hvöt hjá sér tl að leggja lið „móðurmálinu góða“. En liklega er það svo með þá — eins og mig — að lífsönnin skeri þeim stakkinn þröngvan, að ástæður þeirra hafi ekki leyft þeim tima til að ganga fram á hólminn til varnar. En ein- mitt það er önnur aðalástæðan hvað mig snertir. Enn er það líka svo, að ég hefst ekki handa á þessu sviði, þótt mig meira en langi til þess, ef ég þá gæti gert þar eitthvað gagn. Eg vil aðeins benda á eitt orð, eitt hugtak, — hér í þessu blaði — af því að það snertir íþrótt, sem þetta blað vinnur meðal annars fyrir. Það var seint í sumar og haust, er leið, að ég tók tvisvar eftir stórstíluðum fyr- irsögnum í dagblöðunum hér í bæ um Bændaglímur, sem fram ættu að fara. En þegar litið var á framhaldið, sást að hér var alls ekki um glímu að ræða. í fyrra tilfellinu var verið að airglýsa einhverskonar keppni i Golf- leik, en í þvi siðara i spilum (Bridge)!!! Hvorugt þetta á nokkuð skylt við glímu og þó hið siðara enn fráleitara. I þess- um tilfellum hafa þarna verið að verki einhverjir af þessum mönnum, sem al- gerlega virðast vera orðnir rótlausir í íslenzku máli og islenzkum hugtökum, orðfátækir og hugmynda — á því sviði — úr liófi fram, og kærulausir gagnvart gömlum íslenzkum siðum og venjum. í vandræðum sinum og hugmyndafátækt grípa þeir svo til þess að misþyrma gömlu, íslenzku hugtaki, orði og mál- venju, með því að setja þetta á al-óskilt efni, — grípa til þessa til þess að reyna að gera keppnir þær, sem þeir eru að tilkynna, eitthvað „spennandi“, lokk- andi fyrir almenning. Með þessu tiltæki sínu hefur þeim tekist að auglýsa fyrir þeim, sem enn bera virðingu fyrir og hafa tilfinningu fyrir því, sem íslenzkt er, það sem ég áðan nefndi: hugmynda og orðafátækt sína, kæruleysi sitt gagnvart góðu og Misþyrming orðs og hugtaks. gömlu íslenzku hugtaki og rótleysi sitt i íslenku máli, siðum og menningararfi. Og jafnframt liefur þeim tekist að rugla — að minnsta kosti á þessum sviðum — enn meira marga þá, er álika grunnt eða grynnra standa rótum í islenkum máls-, hugtaks- og siðajarðvegi. Hvenær vakna hinir nýju „Fjölnis- menn“ íslenzkunnar og þess, sem is- lenzkt er, til að moka aðflutta foksand- inn ofan af gömlu góðu grunnunum og hreinsa mái- og huginynda-soran úr huggróðri hinnar uppvaxandi íslenzku þjóðar, svo að ræturnar nái að fá nær- ingu úr hreinum, íslenzkum andlegum jarðvegi? Það ætti ekki að þurfa nema nokkuð samtaka átak i þessu efni, því að efniviður fólksins er góður og dugn- aðurinn nógur, ef aðeins að útlendu þok unni væri dreift og hrundið svo að íslenzk, auðleg sál fái að skína á veg æskunnar. Víst er „.... að orð er á íslandi til um allt, sem er hugsað á jörðu“ (E. B.), og að „móðurmálið mitt góða, mjúka og ríka, orð áttu enn eins og forðum, mér yndið að veita" (J. H.) — öllum sönnum íslendingum yndi að veita og fullnægju á Öllum sviðum. Ritað í jan. 1947. Rg- D. Menn og málefni: Sundurlyndi iþróttamanna hér á landi er ali .víðfrægt orðið. Ber ekki sizt á því hér í höfuðstaðnum, þar sem félögin eru stærst og átök um menn og málefni mest. En vel á minnst. Eru það ekki einmitt átökin um mennina og á- hugaleysið á málefnunum, sem orsaka sundurlyndið? Þvi miður hygg ég að svarið verði jákvætt, því að enda þótt þeim fari óðum fækkandi, þá eru þeir þó nokkuð margir, sem hugsa lítið sem ekkert um sjálf málefnin, heldur ein- göngu um mennina. Með öðrum orðum, eru með eða móti tillögunum eingöngu eftir því hverjir bera þær fram. Þetta ástand hefir oft haft þær af-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.