Íþróttablaðið - 01.03.1948, Blaðsíða 45

Íþróttablaðið - 01.03.1948, Blaðsíða 45
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ 35 Glímumennirnir á göngu í Bergen. Stj órncindinn, Lárus Salómonsson, til vinstri að taka nema einn „snúning" i bragöi og gerði þetta glimuna óþarflega kyrr- stæSa og þvíngaða. í þessu sambanúi mætti benda stjórn ÍSÍ á það hvort ekki væri nauðsynlegt að liahta námskeið fyrir dómaraefni og prófa þá siðan að námskeiðinu loknu. Því miður hafa dómarar oft virzt dæma frekar eftir augnabliksáhrifum en því, sem regl- urnar segja, þótt það eigi ekki við frek- ar nú en endranær. — Það vakti nokkra athygli, að efstur á blaði dóm- aranna var einn af þeim, sem stjórn ÍSÍ hafði „gleymt“ að staðfesta sem landsdómara í glímu og annar „ekki landsdómari“ var hafður sem tíma- vörður. En báðir eru þessir menn meðal betri glimudómara hér á landi og hafa iðulega dæmt á Íslandsglímum. Er því óskiljanlegt hvernig liægt var að gleyma þeim og nokkrum öðrum dómurum í fyrsta skipti, sem stjórn ÍSI fór inn á þá braut að staðfesta landsdómara í glímu. í þessu tilliti er það einnig sjálfsögð réttlætiskrafa glímuunnenda að hafist verði handa um að koma einhverju föstu skipulagi á þessi glímumál og þá fyrst og fremst með útgáfu nýrra ítar- legra glímureglna, sem menn eru búnir að bíða eftir alltof lengi. Jafnframt ber stjórn ÍSÍ að vinna að stofnun lands- sambands í glímu, þjóðariþrótt okkar, svo einhver skriður komi á þessi mál. Aðalfundur Glímuráðs Reykjavíkur. var haldinn 20. febr. s.l. Sig. Ingason, form. GRR gaf greinargóða skýrslu um störfin s.l. ár. Haldnar höfðu verið m. a. 2 flokkaglimur fyrir tilstilli ráðs- ins. Helztu samþykktir þingsins voru þessar: 1. Skorað var á stjórn ÍSÍ að láta leiðrétta og endurskoða glímureglurn- ar hið fyrsta. 2. Skorað á stjórn ÍBR að koma upp eins fljótt og auðið er vönduðum glímu- palli, sem sé þannig gerð'ur að hægt sé að taka hann í sundur og flytja fyrir- hafnarlítið. NOREGSFÖR UNGMENNAFÉL. Eins og getið var um í 7.-8. tbl. íþróttablaðsins 1947, fór flokkur glímu- manna úr ungmennafélögunum, aðal- lega úr Ungmehnaf. Reykjavíkur, til N'oregs 2. júni s.l. Fararstjóri var sr. Eiríkur Eiríksson sambandsstjóri U. M. F. í. og glimustjórnandi Lárus Salómonsson, en auk þess voru með i förinni fjórir ungmennafélagsleiðtogar 3. Stjórn ráðsins falið að sjá um að glímukeppendur hafi ávalt góð belti i keppni. 4. Skorað á ÍBR að það beiti sér fyrir bættum strætisvagnaferðum til Iþrótta- húss ÍBR við Hálogaland. 5. í fundarlok var samþykkt svo- hljóðandi tillaga: Aðalfundur GRR haldinn 20. febr. 1948 sendir Sigurði Greipsyni i Haukadal beztu kveðjur og þakkar framúrskarandi brautryðj- andastarf og forgöngu í glímumálum. Af sérstökum ástæðum varð að flýta mjög' störfum fundarins og vannst því ekki timi til að ræða ýms önnur mál. í stjórn ráðsins voru kosnir: Tryggvi Haraldsson form., Kristmundur Sig- urðsson og Lárus Salomonsson. Fundarstjóri var Gunnl. J. Briem. þcir: Ármann Halldórsson kennari á Eiðum, Guttormur Þormar UIA, Magnús Guðmundsson, kennari frá Norðfirði og Þórður Loftsson úr Skarphéðni. Glímumennirnir voru þessir: Armann Lárusson, Bragi Guðnason, Daniel Einarsson, Gunnar Ólafsson, Hilmar Bjarnason, Kristinn Auðunsson og Kristinn Guðmundsson allir úr Reykja- vík. Hagalín Kristjánsson, ’Önundar- firði, Hilmar Pétursson, Keflavik, Njáll GuSmundsson, Kjós, Ragnar Björns- son, Hvammstanga og Rúnar Guðmunds son, Hurðarbaki í Flóa. Alls hélt flokk- urinn 5 glímusýningar á 4 stöSum; 2 í Bergen og hinar í Voss, Norheimsund og Ytre-Arna. Tókust sýningar þessar yfirleitt vel, voru ágætlega sóttar og fengu góðar undirtektir og blaðadóma. Séra Eiríkur Eiriksson hefir ritað itar- lega og fróðlega grein um för þessa í Skinfaxa 2. tbl. ’47 og vísast að öðru leyti til hennar. Gunnar Akselsson veitti flokknum margvislega aðstoð ytra, en mestan þátt í því að förin var farin mun eiga hinn áhugasami form. UMFR, Stefán Runólfsson. Mótttökur allar ytra voru með á- gætum og telja Noregsfarar ferðina hafa verið hina ánægjulegustu i alla staði. Hælkrókur. * * * *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.