Íþróttablaðið - 01.03.1948, Blaðsíða 46

Íþróttablaðið - 01.03.1948, Blaðsíða 46
36 ÍÞRÓTTAB LAÐ I Ð Haiidkiiattleikur Reykjavíkur- og hraökeyimismeistarar Ármanns. Frá v. Aftari röö: Magnús Þórarinsson, Jón Erlendsson,, Haukur Bjarnason, Kjartan Magnússon, Sigf. Ein- arsson. Fremri röö: Bragi GuÖmundsson, Halldór Sigurgeirsson og Sigurður G. Norödahl. HANDKNATTLEIKSMÓT REYKJAVÍKUR 1947. fór fram í íþróttahúsi ÍBR við Háloga- land 15. — 23. nóv. s.l. Þátttaka var mjög mikií enda mun handknattleik- urinn vera orðin fjölsóttasta íþrótta- greinin í höfuðstaðnum. Þar sem nokkuð langt er um liðið og íþróttasíður dagblaðanna hafa lýst mótinu allítarlega, þykir ekki ástæða til að endurtaka það hér, verða þvi aðeins birt heildarúrslit mótsins. Ann- ars má segja það að handknattleikur sé í stöðugri framför, einkum hefir varnarspilið batnað frá því sem var. Heildarúrslit urðu þessi: (L = leik- ir, U = unnir, J = jafntefli og t = töp). Meistaraflokkur karla: L 1. Ármann .... 5 2. Valur ...... 5 3. Fram ....... 5 4. í. R..... 5 5. K. R..... 5 6. Víkingur .. 5 U J T Mörk Stig 5 0 0 40:23 10 2 2 1 31:28 6 2 1 2 30:24 5 2 1 2 29:23 5 203 28:33 4 0 0 3 22:55 0 Meistaraflokkur kvenna: L U .1 T Mörk Stig 1. Ármann .. .. 3 1 2 0 5:3 4 2. K. R .. 3 1 1 1 4:3 3 3. Fram .... .. 3 1 1 1 5:6 3 4. í. R .. 3 1 0 2 5:7 2 í L fl. karla vann ÍR með 3 stigum, vann einn leik og gerði eitt jafntefli. Ármann varð nr. 2 með 2 stig og Fram nr. 3 með 1 stig. 2. fl. karla vann Víkingur með 9 stigum, vann 4 leiki og gerði eitt jafn- tefli. Valur varð næstur með 8 stig. Þá komu ÍR og Ármann með 5 stig, I\R með 3 stig og Fram ekkert. KR vann 3. fl. karla með 6 stigum, vann alla sína leiki, Ármann hláut 4 stig, ÍR 2 og Valur ekkert. 2. fl. kvenna vann Fram með 2 stig- um. KR hlaut ekkert. Fleiri kepptu þar ekki. Handknattleiksflokkur ÍR á Akureyri. Laugardaginn 20. sept keppti karla- flokkur ÍR við karlaflokk KA í hand- knattleik og beið ósigur með 13:9. Daginn eftir keppti kvennaflokkur ÍR við Þórsstúlkurnar og beið einnig ó- sigur, 0:0. Loks keppti karlaflokkur úr ÍR við Þór og unnu ÍR-ingar með 19:4. Henning Isachsen. Um áramótin fór héðan Henning Isachsen handknattleikskennari. Isach- sen liefir verið hér um nokkurt skeið, og annast kennslu í handknattleik fyrir ÍR, Víking, ög Fram. Isachsen er sjálfur g'óður liandknattleiksmaður og þekkir leikinn út i æsar. Við kennslu hans hefir það líka greinlega komið í ljós að hann er fær um það starf. Þau lið, sem hann hefir þjálfað, hafa tekið stórum framförum, má þar t. d. nefna þær glæsilegu framfarir er liðin i Fram hafa tekið. Eftir því sem nemend- ur hans liafa sagt hefir hann sérlega gott vald á nemendum; er hvetjandi og örfandi i leik og utan hans. Það var því níikill fengur fyrir handknattleikinn hér að fá Isachsen. Isachsen var haldið samsæti áður en hann fór, og var honum þakkað starfið og sú von látin í ljós að hann mætti sem fyrst koma hingað aftur. Aðalfundur Handknattleiksráðs Rvíkur. var haldinn 27. jan. s. 1. Form ráðsins, Sig. Magnússon gaf skýrslu um s.l. starfsár, og bar hún vott um mikið og gott starf. M. a. var haldið dómaranám- skeið með 11 þátttakendum og unnið að stofnun sérsambands, sem bar þó ekki árangur vegna þátttökuleysis. Þá hefir ráðið leyft ÍR að bjóða liingað norsku liði á næsta vori og ennfremur ákveðið að senda Reykjavíkurlið til Noregs. — Samþykkt var áskorun til ÍSÍ um að leikir meistaraflokks karla í íslands- mótinu yrðu 2x25 mín. samkv. alþjóða- reglum og eitt lið keppi yið öll og öll við eitt. Ennfremur var skorað á ÍSÍ að beita sér fyrir því að félögin fái að ráða til sín erlenda þjálfara án þes að leita til íþróttakennarafélags íslands um leyfi. Ástæðan fyrir síðari áskoruninni mun vera sú að íþróttakennarafélagið synj- aði einni umsókn af 11 um erl. kennslu- krafta s.l. ár á þeim forsendum að um- ræddur hefði ekki kennaramenntun og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.