Íþróttablaðið - 01.10.1966, Qupperneq 3
26. árg.
Reykjavík, september - október
7.-8. tbl.
Pórður Sigurðsson:
ÍÞRÓTTAÞING Í.S.f. 1966
48. íþróttaþing Iþróttasambands Is-
lands fór fram á Isafirði dagana 3. og
4. september 1966.
Framkvæmdastjórn l.S.l. hafði
lagt fram og fengið samþykkta á
fundi Sambandsráðs l.S.Í. 2.—3. apríl
1966 tillögu um, að íþróttaþing-
inu yrði valinn staður á Isafirði, en
kaupstaðarréttindi Isafjarðar voru
staðfest af konungi með tilskipun í
janúarmánuði 1866, og hafa Isfirð-
ingar haldið hátiðlegt 100 ára afmæli
kaupstaðarins á þessu ári, svo sem
kunnugt er.
Þingfulltrúar komu flestir flug-
leiðis til Isafjarðar að morgni laugar-
dags 3. september, fóru snemma
morguns 2 flugvélar úr Reykjavík til
Isafjarðar, önnur þeirra með við-
komu á Akureyri.
Nokkrir þingfulltrúar komu hins
vegar landveg til Isafjarðar, þeirra á
meðal voru t. d. Skarphéðins-menn,
sem gerðu ásamt fríðu föruneyti viku
reisu vestur, skoðuðu sögustaði og
fegurð landsins og létu mikið af.
Ekki gafst þingfulltrúum mikið
tóm til að skoða fegurð Isafjarðar á
laugardagsmorguninn, hvað var þó
freistandi, þar sem veður var hið
fegursta, en þingið hófst klukkan 11,
nokkru eftir að komið var vestur.
Þinghald fór fram í húsi I.O.G.T..
og var rétt á mörkum, að húsið rúm-
aði svo fjölmennt þing, en það kom
ekki að sök, þar sem þröngt mega
sáttir sitja, svo sem fornkveðið er.
Forseti íþróttasambandsins, Gísli
Halldórsson, setti þingið með ræðu.
Bauð hann sérstaklega velkomna
gesti þingsins, þá Björgvin Sighvats-
son, forseta bæjarstjórnar Isafjarðar,
Benedikt G. Waage, heiðursforseta
I.S.I., Þorstein Einarsson, íþróttafull-
trúa, Benedikt Jakobsson, formann
fræðsluráðs l.S.l., og Birgi Kjaran,
formann Olympíunefndar. Var ræða
forseta skilmerkileg og greinargóð,
eins og hans var von og vísa. Hann
ræddi á víð og dreif um starf og
stefnu sambandsins, en sérstaklega
um fjármálavanda hreyfingarinnar,
en þar sem ræða hans er birt í heild
annars staðar í blaðinu, skal efni
hennar ekki rakið hér nánar.
Að setningarræðu lokinni minntist
forseti Ólafs Sveinssonar, prentara,
sem lézt 19. febrúar 1966, en Ólafur
var, svo sem kunnugt er, virkur
íþróttamaður og leiðtogi um langt
árabil. Hann gegndi f jölmörgum trún-
aðarstörfum innan íþróttahreyfingar-
innar, var m. a. ritari í Olympiunefnd
í mörg ár, enda var Ólafur valmenni,
sem mannbætandi var að kynnast.
Ólafur fæddist 7. nóvember 1890, og
var þvi rúmlega 75 ára að aldri, þeg-
ar hann lézt. Risu þingfulltrúar úr
sætum í virðingarskyni við minningu
þessa látna félaga.
Þessu næst fluttu ávörp þeir
Björgvin Sighvatsson, bæjarstjóri,
sem bauð þingfulltrúa velkomna til
Isafjarðar, og Benedikt G. Waage,
sem færði afmælisbarninu, Isafjarð-
arkaupstað, heillaóskir sínar og ann-
arra þingfulltrúa.
Kjörbréfanefnd var kosin: Atli
Steinarsson, Guðmundur Sveinbjörns-
son, Stefán Runólfsson, Kjartan
Bergmann Guðjónsson og Alfreð Al-
freðsson, og mátti sú nefnd starfa
á fastandi maga, þ.e.a.s. á meðan
aðrir þingfulltrúar sátu hádegisverð-
arboð l.S.Í. í Sjálfstæðishúsinu á Isa-
firði. Að minnsta kosti er svo ætlandi,
þar sem ekki stóð á nefndaráliti
þeirra félaga, þegar þingfundur
hófst að nýju klukkan 2 eftir hádegi.
Til þings voru mættir 52 fulltrúar
18 héraðssambanda og 7 fulltrúar 7
sérsambanda, en frá 7 héraðssam-
böndum og 1 sérsambandi voru ekki
mættir fulltrúar.
Atli Steinarsson hafði framsögu
fyrir kjörbréfanefnd, las upp nöfn
171