Íþróttablaðið - 01.04.1975, Blaðsíða 15
hef látið tilleiðast að vera áfram í kjöri. Ég
svík því þetta loforð við konu mína eins
og nokkur önnur. En það eru svo mörg
járn í eldinum, að það verður að kýla
málin áfram.
f félagsheimilinu fylltu smástrákar
marga sali. Sumir voru að fara á æfingu,
aðrir dvöldu við tómstundaspil. En það
mátti sjá, að strákarnir voru mjög ánægðir
með þetta annað heimili sitt. Jón Aðal-
steinn sýndi okkur með stolti borðtennis-
sal, þar sem uppi stóðu fjögur nýtísku
borðtennisborð. Á veggjum voru tugir eða
hundruð oddfána erlendra og innlendra
liða, sem Víkingar hafa att kappi við — og
að sjálfsögðu mynd af Axel Andréssyni
stofnanda félagsins. Borðtennisborðin má
leggja saman og fjarlægja með lítilli fyrir-
höfn og þá er þetta samkomusalur félags-
ins, þar sem er dansað, spilað og telft.
— Við erum nú að taka allt heimilið
fyrir Víkinga og starfsemí félagsins, sagði
Jón. Reykjavíkurborg hefur haft það á
leigu fyrir skólahald. Víkingar hafa vart
haft þar aðra aðstöðu en íbúð fyrir hús-
vörð. Leigutekjur voru ekki nema u.þ.b.
helmingur af þeirri leigu sem Víkingur
greiddi Reykjavíkurborg fyrir tíma félags-
ins í íþróttasal Réttarholtsskóla. Þetta var
því léleg fjármálapólitík. Það var ekki
aðeins að leigt væri ódýrt, heldur var
útilokuð næstum öll félagsstarfsemi í húsi
félagsins.
— Hérna eru búningsklefar og böð sem
við höfum sett upp, hélt Jón Aðalsteinn
áfram er við gengum um húsið. Þetta er
ófullkomið en betra en ekkert. Við lokað-
ar dyr (herbergi sem borgin hefur enn á
leigu) sagði Jón að sett yrði upp billiard-
borð er félagið á. Hér á að verða félags-
heimili allra Víkinga, eldri sem yngri.
í stjórnarherbergi settumst við að
spjalli. Á borði lá þykk vélrituð skrá,
félagsskráin, sagði Jón. Hún telur nú um
1800 félaga og ber mest á yngstu árgöng-
unum í handbolta og fótbolta. En þar
eru nöfn allra frá stofnun, allir árgang-
ar. Elztur er Helgi Eiríksson fyrrum
bankastjóri. Hann telst meðal stofnenda.
— Því miður vantar nöfn margra í þessa
skrá, sagði Jón Aðalsteinn. Það hefur
slitnað samband við stóran hóp Víkinga á
ýmsum árum. Jafnaldrar mínir, og mér
eldri félagar, hafa ,,horfið“. Mín tengsl við
félagið slitnuðu t.d. í 15—20 ár frá keppn-
isárum mínum þar til ég var lokkaður til
stjómarstarfa. Slíkt þarf að koma í veg
fyrir og við þurfum að ná í alla Víkinga
frá öllum árum.
Jón kvaðst ætla að flutningur félagsins
til nýrra slóða hafi haft áhrif á þessi „slit“
tengsla við félagið, en hafi þó ekki verið
afgerandi afl. Félagsleg aðstaða til að
hittast, án þess að í keppni væri, var stóri
þátturinn í slitum tengslanna. KR—Valur
hafa t.d. haft slíka félagslega aðstöðu um
áratugaskeið. Þar hefur ávallt verið mikið
og gott samband milli eldri félaga og
félagsins til ómetanlegs stuðnings við
framfarir á öllum tímum.
Flutningurinn var mjög jákvætt spor,
hélt Jón Aðalsteinn áfram. Hann var í
sjálfu sér geysilegt átak. En þetta átak
unnu forystumenn félagsins frá fyrri tím-
um og verður það seint þakkað. Er þeir
komu hingað í nýtt hverfi, sem í stórum
dráttum takmarkast af Stóragerði að vest-
an og Skeiðvelli að austan og nær því yfir
allt Bústaðahverfi og Fossvog, var þeim
vel tekið af íbúum svæðisins. Þarna var
fólk, sem frá upphafi var reiðubúið að
rétta félaginu hjálparhönd við að skapa
ungu kynslóðinni vettvang til íþrótta- og
tómstundaiðju. Þetta fólk var úr ýmsum
öðrum félögum, aðflutt í þetta hverfi úr
öðrum bæjarhlutum, en það gerði sér
grein fyrir að Víkingur lagði í fóstru- og
uppeldisstarf fyrir það sjálft. Það var þvi
strax með og styrkti Víking í smáu og
stóru til uppbyggingarstarfsins.
— Og hvað var Víkingur, þegar þú tókst
við formannsstörfum?
— Víkingur átti mikið af góðu fólki að.
Félagið átti malarvöll og aðstöðu góða til
Æskustöðvar knattspyrnufélagsins Vík-
ings eru í miðbænum í Reykjavík. Það
voru nokkrir strákar í Suðurgötunni og
næsta nágrenni, sem stofnuðu félagið.
Sagan segir að félagið hafi verið stofnað á
tröppunum í Suðurgötu 10. Þar átti Axel
Andrésson heima hjá foreldrum sínum.
Axel var hvatamaðurinn að stofnun fél-
agsins, þó hann væri aðeins 12 ára gamall
er hann stofnaði félagið. Hann varð fyrsti
formaður þess og gengdi því starfi ásamt
þjálfarastörfum fyrstu 16 æviár Víkings.
Hann var og knattspyrnudómari í 15 ár
(1919—1933).
Vegna Axels og stofnfundarins verður
Suðurgata 10 dýrmæt minning gömlum
Víkingum. Eftir lát foreldra Axels bjó
systir hans, Guðrún og maður hennar O.
Kornerup Hansen í húsinu lengi. O.
Kornerup Hansen rak þar lengi firmað
Fönix og á síðari árum reisti hann og synir
hans táknmynd Ásmundar af fuglinum
Fönix á lóð hússins. Fuglinn Fönix er tákn
hinnar rísandi sólar samkvæmt egypskri
goðsögn. Sagan segir að hinn aldni fugl
hafi sjálfur eytt sér í eldi til þess á ný að
rísa upp úr öskunni til nýs lífs.
Það eru engin tengsl milli þess sem
gerðist á tröppum Suðurgötu 10 árið 1908
og styttunnar á lóð hússins, — aðeins
tilviljun. En skemmtileg tilviljun, því Vík-
ingur, sem á tröppunum var stofnaður, er
risinn til nýs lífs í Bústaðahverfinu.
Félagsheimili Víkings í Bústaðasverfi. Þar hefur reynzt vera hin bezta „gróðrarstöð"
fyrir félagið, en gerist nú fullþröngt fyrir starfsemina.
7