Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1975, Qupperneq 19

Íþróttablaðið - 01.04.1975, Qupperneq 19
Víkingur kemur grasvöllur á okkar gamla malar- velli, hvort sem við fáum stuðning til þess eða ekki. Víkingsliðið verður og skal fá grasvöll. Til þess þarf röralögn í völlinn er tekur við yfirborðsvatni. Verður hún falin í skurðum, sem grafnir eru með þriggja metra millibili þvert yfir völlinn. Skurð- irnir eru síðan fylltir með sérstakri möl. Völlurinn er síðan hækkaður um 40 cm. Er það 30 cm malarlag og síðan 10 cm. moldar- og torflag. Stuðningur við þessa framkvæmd komst á fjárlög 1974. Borgin greiðir 70—80% af kostnaði sem áætlaður er 7 millj.kr. Borgin fær síðan endur- greiðslu frá ríkinu. - Nýtt íþróttahús. Þá er í athugun bygging íþróttahúss. Spurningin er nú, hvort við fáum að byggja eins og við viljum og þá kostar íþróttahúsið um 85 millj. kr., eða hvort við verðum neyddir til að byggja eins og íþróttanefnd ríkisins vill að byggt sé en þá kostar húsið um 200 milljónir kr. Þessi mikli mismunur liggur í því að við viljum byggja stálgrindarhús og/eða strengjasteypuhús, sem enn hafa ekki fengist samþykkt hjá íþróttanefnd ríkisins. Slík hús eru notuð um allan heim og viðurkennd. Við höfum tilboð í stálgrind- arhús, sem við getum fengið lánað til 10—15 ára. Þau er að finna um öll Norð- urlönd, Mið-Evrópu, Bandaríkin og Kan- ada. Húsin eru bandarísk að uppruna frá Butler. Eitt slíkt hús er reyndar á fslandi. Það er á Keflavíkurflugvelli og í því er sundhöll varnaliðsins. Stórglæsilegt hús. Fengjum við að reisa slíkt hús yrði það ca 35x60 m að flatarmáli. Við höfum meira að segja gert áætlanir um nýtingu hússins m.a. með tennisvöllum og húsnæði fyrir nýjar og hér óþekktar greinar fyrir hina eldri, t.d. ,,squash.“ - Við stefnum að stórum sigrum — En hver eru áformin á sjálfu íþrótta- sviðinu? — íslandsmeistarar Víkings í hand- knattleik verja sinn titil að ári og munu væntanlega halda honum. Flokkurinn snýr sér núna að undirbúningi fyrir þátt- töku í Evrópukeppni meistaraliða, sem hefst í september. Æfingar byrja snemma eða í júní/júlí. Þar er áhuginn mikill. Hvað knattspyrnuliðið snertir er ég per- sónulega óánægður ef Víkingar verða ekki í 1. til 3. sæti í sumar í 1. deild. Við leggjum ekki sérstaka áherslu á Reykja- víkurmótið, þó við reynum að verja titil okkar þar. Aðaláherslan verður lögð á val á mönnum fyrir fslandsmótið. Það er úr 38 manna hóp að velja, sem æfir mjög stíft. Yngri flokkar beggja deilda fylgja í kjölfarið. ★ Við litum til verðlaunaskápsins veglega í stjómarherbergi Víkings. Skápurinn var keyptur fyrir gjafafé er Víkingur fékk í afmælisgjöf þá er félagið varð 60 ára. I honum er rúm fyrir fslandsbikarinn í knattspyrnu og jafnvel fleiri bikara, enda munu Víkingar hafa hug á að vinna marga slíka. — Já, ef það skortir meira skáparými fyrir verðlaunagripi, þá verjum við gjafa- fénu á 70 ára afmælinu 1978 til frekari skápakaupa — eða þá styrkjunum frá hinu opinbera, ef þeir hækka ekki fyrir þann tíma, sagði Jón Aðalsteinn Jónasson hinn sókndjarfi miðherji og formaður Víkings að lokum. Linguaphone bú getur lært nýtt tungumal á 60 tímum LINGUAPHONE tungumálanámskeió kennir þér nýtt tungumál á sambærilegan hátt og þú læráir ísienzku. Þú hlustar, þú skilur og talar síöan. Þú hefur meófædd- an hæfileika til aó læra ad tab á þennan hátt. A ótrú- lega skömmum tímanemurþú nýtt tungumál, þér til gagns og ánægju. — Þetta er RETT og ÞÚ getur sannaó þaó. — Vió sendum þér aó kostnaóarlausu upplýsingapésa um námió. — Þegar þú hefur tekió ákvöróun, — sendum vió þér linguaphone námskeió í því tungumáli, sem þú ætlar aó læra. LINGUAPHONE tungumálanámskeió á hljómplötum og kassettum Hljóófærahús Reykjavíkur- Laugav.96 sími 13656 11
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.