Íþróttablaðið - 01.04.1975, Page 30

Íþróttablaðið - 01.04.1975, Page 30
íþróttimar og æskan Yngstu knattspyrnu- menn Breiðabliks sóttir heim Það hefur löngum verið venja, er nálg- ast sá tími að knattspyrnan fer að hefjast, að áhugamenn fari að bollaleggja um möguleika þessa eða hins liðsins. Er þá í flestum ef ekki öllum tilfellum átt við lið í 1. og 2. deild. Blöðin leita frétta hjá þjálfurum þeirra og leikmönnum og sjá okkur yfirleitt vel fyrir fréttum úr þeim herbúðum. En það eru fleiri sem keppa en kapparnir, sem eru í hópi hinna bestu og er þar átt við strákana í yngri flokkunum, sem einnig berjast um sína meistaratitla, en er sjaldan getið í blöðum og öðrum fjölmiðlum. Þeir eru einnig famir að búa sig undir átök sumarsins og ekki af minni alúð, en þeir sem eldri eru. Þeir eru margir, sem halda því fram, að skemmtilegustu knattspyrnuleikirnir séu einmitt leikirnir í yngri flokkunum. Þar er leikið af sönnum áhuga og eldmóði og hvergi gefið eftir. Hvernig væri nú að leita frétta úr þeirra herbúðum og skoða hvað þar er að gerast? Okkur fannst því ekki illa tilfundið að halda í Kópavog, en þar eru nú geymdir þrír bikarar, sem yngstu leikmenn Breiða- bliks höfðu með sér heim eftir sigra í landsmótum 3., 4. og 5. flokks á s.l. sumri. Þessir sigrar vöktu mikla athygli, enda hefur ekkert félag gert slíkt áður. Það var á sunnudagsmorgni, er við komum í Kársnesskólann, en þar stóð yfir æfing fyrir þá yngstu, 6—10 ára. Fjöl- mennt var á æfingunni og greinilegt var, að margur snáðinn þar, sem ekki var hár í loftinu, kunni ýmislegt fýrir sér í íþrótt- inni. Þeir sem sáu um þjálfunina voru tvíburarnir Siggi og Gummi, sem báðir eru leikmenn í 3. flokki, og komu báðir mjög við sögu í leikjum Breiðabliks í fyrra, þá í 4. flokki. Þeir voru ekki í neinum vandræðum með að hafa stjóm á þessum stóra hóp, sem þama var. Við náðum tali af einum drengjanna og kvaðst sá heita Gunnar Gylfason, og vera 10 ára. Hann sagði okkur, að hann væri búinn að leika knattspyrnu í tvö ár í 6. flokki, en þá vantaði fleiri leiki. Við lékum bara tvo leiki í fyrra og unnum þá báða, sagði hann, en það var við Akranes og Stjörnuna. — Hvaða stöðu leikurðu? — Ég var bakvörður í fyrra, en nú er ég Gunnar Gylfason — 10 óra — það vantar fleiri leiki fyrir 6. flokk. að hugsa um að fara í framlínuna, því ég held að það sé skemmtilegra þar. Samtalið gat ekki orðið öllu lengra, þar sem komið var að hans liði að leika og hann hafði öðrum hnöppum að hneppa, en að tala við einhvern bláókunnugan mann. Þegar æfingu 6. flokks lauk, komu 5. flokks strákamir inní salinn með þjálfara sínum, Jóni Inga. Þar var ekki verið að tvínóna við hlutina og strax byrjað að æfa og leika. I hópi 5. flokks strákanna könnuðumst við strax við einn snaggaralegan snáða, Ingvaldur Gúsafsson 11 óra. — Er einn eftir úr 5. flokks liðinu frá í fyrra. sem var með í sigurliðinu i 5. flokki í fyrra og tókum við hann tali. Sagðist hann heita Ingvaldur Gústafsson og vera 11 ára. Þetta er þriðja árið mitt í 5. flokki, sagði hann, en kvaðst hafa byrjað að leika knattspyrnu 7 ára. — Hvernig heldurðu að gangi að verja titilinn frá í fyrra? — Það verður erfitt, þar sem allir úr liðinu gengu upp í 4. flokk nema ég og tveir eða þrír varamenn. En það koma margir góðir í staðinn, þannig að það er ekki ómögulegt að við komum til með að standa okkur vel. — Hefur verið vel æft í vetur? — Já, við höfum æft mjög vel í allan vetur, bæði úti og inni og það hafa verið þetta um 40 strákar á hverri æfingu. Að lokum sagði hann okkur, að hann ætlaði að halda áfram að æfa knattspyrnu og leika með 1. deildar liði Breiðabliks þegar þar að kæmi, enda yrðu Blikarnir komnir í 1. deild strax á næsta ári. Um það sagðist hann vera sannfærður. Að þessu sögðu hélt Ingvaldur í hóp félaga sinna og æfingin hélt áfram. Það var sparkað og skallað. Lið fögnuðu mörkum er knötturinn söng í netinu, en aðrir voru ekki eins borubrattir er þeir sóttu hann í eigið mark og hófu leik á ný á miðjunni. Jón Ingi þjálfari sagði okkur að áhugi væri mikill á æfingum og sagðist horfa bjartsýnn fram á sumarið. Frá Kársnesskóla héldum við að Vallar- gerðisvelli, en þar stóð einnig yfir æfing hjá 3. flokki. Hinn kunni knattspyrnumað- ur úr Breiðabliki. Guðmundur Þórðarson var úti á vellinum með stóran hóp 22

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.