Íþróttablaðið - 01.04.1975, Page 33
Körfuhnattleihur
Skrifstofustjórinn hjá Landsvirkjun
hefur mörgum hnöppum að hneppa eins
og gefur að skilja. Rafmagnsmálin og
uppbygging rafvæðingar í landinu eru
stórmál sem krefjast mikillar vinnu bæði
hans og annarra. Engu að síður tekur
Agnar Friðriksson tíma til hliðar til að
þjálfa af kappi með félögum sínum í
körfuknattleiknum, og heitir því að fara
nú að æfa almennilega fyrir næsta keppn-
istímabil.
Þegar ÍR varð íslandsmeistari í körfu-
knattleik á dögunum, varð Agnar fyrstur
körfuknattleiksmanna íslandsmeistari í
10. skipti. „Ég hafði nú bara ekki athugað
þetta fyrir leikinn," sagði Agnar. Einhver
benti honum á þetta eftir sigurinn sæta.
Og sjá, það reyndist rétt vera, þegar farið
var að rifja upp síðustu 14 árin, en það var
1961, sem Agnar kom inn í ÍR-liðið,
aðeins 16 ára meðal allra „kónganna" í
IR-liðinu. Hann var hinn efnilegi nýliði,
hávaxinn og geysilega hittinn, lofaði góðu,
— og stóð við það. I liðinu þá voru menn
eins og Þorsteinn Hallgrimsson, Guð-
mundur Þorsteinsson, Hólmsteinn Sig-
urðsson, Helgi Jóhannsson og Sigurðarnir,
báðir Gíslasynir. Sigurður yngri Gíslason,
er nú einn eftir af þessu gamla ÍR-liði,
ásamt Agnari Friðrikssyni. Sigurður hefur
9 sinnum orðið meistari með liðinu, eitt
keppnistímabil var hann ekki með vegna
veikinda.
Þegar landslið íslands hélt á sitt fyrsta
Norðurlandamót í Stokkhólmi í nóvember
1962, voru 6 af 12 liðsmönnum úr ÍR. Þar
hlaut Agnar sína eldskírn með landsliði.
„Bezti landsleikur okkar frá upphafi er
örugglega landsleikurinn okkar gegn Vest-
ur-Þjóðverjum núna í janúar í Kaup-
mannahöfn. Við unnum 82:71. Það hjálp-
aðist allt að, Þjóðverjar allt of sigurvissir,
við með mjög gott lið og í feiknarlega
góðu stuði. Það urðu víst allir jafn undr-
andi eftir leikinn, við ekki hvað sízt.
Hittni Agnars í körfuknattleik er langt-
um meiri en í meðallagi, það er öllum
ljóst. Hann var oft álitinn galdrakarl í
meira lagi. „Hann hittir alltaf af spýtunni
sinni“ var sagt í Hálogalandi. Og síðar var
sagt að hann hefði fundið „sína spýtu“ í
Laugardalshöllinni og í íþróttahúsinu á
Seltjarnamesi. „Þetta er nú ekki alveg rétt,
held ég“, sagði Agnar. „Ég hitti bara betur
úr minni stöðu á hægra kantinum. „Einar
Ólafsson, þjálfarinn okkar, hefur gert
réttilega í því að þjálfa okkur upp í hittni.
Hann skiptir æfingunum niður í hittni og
æfingar á leikaðferðum og hraðaupp-
hlaupum. Hittnin hefur bjargað okkur
mikið. Það geta allir í liðinu hitt fyrir
utan. Það er áhættusamara að þurfa að
bora sér í gegn og undir körfuna. Alveg
undir hælinn lagt hvaða dómur kemur út
úr slíku, víti eða jafnvel ruðningur.“
Agnar kvaðst ákveðinn vera þeirrar
skoðunar að framfarir hefðu orðið stór-
stígar í íslenzkum körfubolta undanfarinn
áratug. „Æfing er miklu meiri og betri, og
kröfurnar allt aðrar en var t.d. á Háloga-
landi. Núna eru hlaupin miklu meiri í
stærri sölum. Og núna í vetur hafa leikim-
ir verið sérlega erfiðir, það gerir breiddin í
körfuboltanum, það hefur aldrei verið
hægt að vera viss um sigur fyrirfram í
leikjunum.“
I þeim 24 fslandsmótum, sem fram hafa
farið í körfuknattleik, hefur ÍR unnið 14
meistaratitla.
Agnar tífaldur meistari.
25