Íþróttablaðið - 01.04.1975, Blaðsíða 36

Íþróttablaðið - 01.04.1975, Blaðsíða 36
Frægir íþróttamenn Hugsa um hvert mót sem ir Á s.l. ári gerðist það dag nokkurn í Svíþjóð, að helmingur þjóðarinnar 4 milljónir manna vöktu til kl. 4 um morg- uninn til að hlusta á útvarp. Ástæðan var ekki kosningarúrslit, eins og margir gætu freistast til að geta upp á, því að engar kosningar voru í Svíþjóð í fyrra. Nei, ástæðan var 18 ára gamall Svíi, sem er orðinn þjóðhetja í heimalandi sínu og hetja íþróttaennenda víða um heim. Hann er Svíum í dag, það sem Arne Borg var, er hann færði landi sínu gullið í sundkeppni á Olympíuleikunum og það sem Ingemar Johanson var, er hann varð heimsmeistari í þungavikt í hnefaleikum eftir sigurinn yfir Floyd Patterson. Hin nýja hetja heitir Björn Borg og hann er á góðri leið með að verða einn besti tennisleikari heims. Hann hefur sigrað þá bestu og unnið tugmilljón- ir króna í verðlaun. í viðtali nýlega sagði Björn Borg „Fólk er alltaf að velta því fyrir sér hve gamall ég sé. Ég hugsa aldrei um aldur minn. Tennis er mín atvinna, ég byrjaði bara fyrr að vinna en flestir aðrir. Hvaða máli skiptir það þó að ég sé aðeins 18 ára. Ég er alltaf innan um fólk, sem er 7—8 árum eldra en ég. Mér finnst ég vera 25 ára, það er góður aldur og mér finnst ekkert sér- stakt við hann.“ 17 ára í úrslit heimsmeistarakeppninnar. Erlendir íþróttafréttamenn hafa gert sér mikinn mat úr aldri Borgs. Þeir eru enda- laust að finna upp sögur um ævintýra- drenginn, sem haslaði sér 17 ára völl í sviðsljósi heimsins, sem afburðaíþrótta- maður. Um drenginn, sem kom úr litlum bæ í Svíþjóð, þar sem íbúarnir byggja afkomu sína á lítilli bifreiðavarahluta- verksmiðju. Um drenginn, sem leikur betri tennis á þessum aldri en nokkur maður hefur áður gert. 17 ára gamall komst Borg í úrslit í heimsmeistarakeppn- inni í tennis, sem haldin var í Dallas í Texas og það tók besta tennisleikara heims, John Newcombe, 4 lotur að vinna Borg, sem vann fyrstu lotuna 6—4. Það var einmitt nóttin sem hálf sænska þjóðin vakti. Áður en mánuðurinn var liðinn, hafði hann sigrað á landsmótunum á Ítalíu og í Frakklandi. Björn Borg hætti í gagnfræðaskóla áður en hann hafði lokið skyldunáminu. Hann fékk leyfi foreldra sinna eftir að fjölskyld- an hafði haldið nokkra fundi um málið ásamt sænska landsliðsþjálfaranum Percy Rosburg, sem uppgötvaði hann, er hann var aðeins 10 ára grindhoraður polli. Allir lögðu sitt til málanna, en það var Borg sjálfur, sem tók lokaákvörðunina. Einn af vinum fjölskyldunnar segir: „Borgfjöl- skyldan er ákaflega samrýmd, foreldrarnir umgangast Björn, sem fullorðinn mann og ungling í senn, en í tennismálum er það Björn, sem ræður. Það finnst þeim öllum eðlilegt, því að hann hefur valið tennis sem atvinnu sína og gert samninga, sem færa honum gífurlegar tekjur.“ Þegar ákvörðunin hafði verið tekin sagði móðir hans aðeins ,,ég vona að hann fái nægan Nýjasta þjóðhetja Svíþjóðar, tennisleikarinn sem er kominn ó efsta þrep, aðeins 18 óra. svefn vinm, háttai króna Borgj stund vona mikla aldrei sem s Eins ( Upp eins ( fædd' eitt c Kópa Bærir eru fi bíla c og ís hokkí en ha tenni: var, a spaða gaf s) sögur ur ha vitlau venju höndi til þe: þá til frámt gersm andst. stangi Ke; indu i leika' forerc eyjai| að sk tapað forele var h traust Þet Rosbi komi' öðrur son, í 28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.