Íþróttablaðið - 01.04.1975, Qupperneq 47
Tækjageymslan athvarf
inniíþróttanna
— spjallað við Isak J. Guðmann,
formann IBA
íþróttabandalag Akureyrar, IBA, er
samtök félaga á Akureyri sem leggja stund
á íþróttir. Tilgangur IBA er að vinna að
eflingu og skipulagningu íþróttastarfsemi
fyrir alla áhugamenn á Akureyri og hafa
forystu sameiginlegra áhugamála héraðs-
ins, svo sem lög ISI mæla fyrir m.a. á
eftirfarandi hátt: Að annast samstarf fyrir
hönd bandalagsaðila við bæjarstjórn og
aðra opinbera aðila innan héraðsins og að
vera fulltrúi Akureyrar í íþróttamálum
áhugamanna við aðila utan héraðs.
fþróttabandalag Akureyrar var stofnað
20. desember árið 1944 og eru því rúmlega
þrjátíu ár liðin frá stofnun þess. Fyrsti
formaður bandalagsins var Ármann Dal-
mannsson, en hann hefur komið mjög
mikið við sögu íþróttamála á Akureyri.
Fljótt eftir stofnun bandalagsins fór það
að beita sér fyrir ýmsum aðkallandi mál-
um viðkomandi íþróttum, en eitt af fyrstu
verkefnum þess var að athuga kostnað við
og möguleika á byggingu skíðahótels ná-
lægt Akureyri, svo og akvegi að hótelinu
og dráttarbraut fyrir skíðamenn. Þá beitti
bandalagið sér þegar í upphafi fyrir því að
hafin yrði skipulagning á íþróttasvæði
fyrir Akureyri.
Bæði þessi baráttumál bandalagsins
hafa náð fram að ganga. Aðstaða til
skíðaiðkana er orðin mjög góð og íþrótta-
svæðið á Oddeyri austan Brekkugötu er
gott svo langt sem það nær. Nú þrjátíu
árum síðar eru baráttumál IBA önnur, en
þau eru ekki síður aðkallandi en fyrstu
baráttumálin. Nú er efst á baugi bygging
svæðisíþróttahúss á Akureyri og á síðasta
aðalfundi IBA var samþykkt að skora á
bæjarstjórn og bæjarráð að hraða fram-
kvæmdum þessum.
— Flér á Akureyri er svo mikill skortur
á húsnæði til íþróttaiðkana að svæðis-
íþróttahúsið fyrirhugaða yrði fullnýtt strax
á fyrsta degi. Þetta sagði ísak Guðmann,
núverandi formaður IBA í samtali við
íþróttablaðið. Hann sagði einnig að hús-
næðisskorturinn háði íþróttalífi bæjarins
stórkostlega.
— Þetta háir okkur sérstaklega um
veturinn, sagði fsak. — Helsta athvarf
okkar er „Skemman" svokallaða. Hún er
upphaflega byggð sem tækjageymsla fyrir
bæinn og eru því ýmsir vankantar á henni
til íþróttaiðkana, en þetta er eina húsið á
Akureyri sem býður upp á löglegan
keppnisvöll. Þarna fá íþróttafélögin KA
og Þór ráðstöfunarrétt á salnum fjóra daga
vikunnar, þannig að hvert félag fær tvo
daga. Einstök félög og sérklúbbar hafa
föstudaginn til afnota, en laugardagur og
sunnudagur eru ætlaðir fyrir keppni. Þessi
tími er ófullnægjandi fyrir alla aðila. Þeir
sem hafa tíma í Skemmunni hafa ekki
nógan tíma og enn verr eru þeir staddir
sem fá alls engan tíma. Þar má til dæmis
nefna þá sem vilja stunda frjálsar íþróttir,
badminton og borðtennis.
Síðan hélt ísak áfram og sagði að í
bjartsýni hefði IBA beitt sér fyrir nám-
skeiði í frjálsum íþróttum fyrir börn sl.
sumar. Var ætlunin að halda áfram æfing-
um innan húss í vetur með það fyrir
augum að mynda hæfan hóp til þess að
senda á vinabæjarmót í Lathi í Finnlandi í
sumar. Hópurinn fékk hvergi inni til æf-
inga og féll því áætlunin um sjálfa sig.
— Þetta er aðeins eitt dæmi af mörgum,
sagði ísak, um það hvernig íþróttafólk á
Akureyri líður fyrir aðstöðuleysið. Það má
til sanns vegar færa að eini hópurinn, sem
vel er búið að hér sé skíðafólkið, þ.e. það
fólk sem stundar alpagreinarnar svoköll-
uðu. Skautaíþróttin hefur orðið fyrir barð-
inu á aðstöðuleysinu líka þó það sé ekki
húsnæðisskortur sem háir henni heldur
vöntun á hentugum velli. Völlurinn sem
var notaður áður hefur verið alls óhæfur í
vetur og því ekkert líf í þessari íþrótta-
grein. Á síðasta aðalfundi IBA skoruðum
við á bæjaryfirvöld að reyna að koma upp
vélfrystu skautasvelli í bænum og velja því
stað hið fyrsta.
Á byggingaáætlun bæjarins er gert ráð
fyrir smíði tveggja nýrra íþróttahúsa í
tengslum við skóla bæjarins, auk smíði
svæðisíþróttahússins sem áður er getið
um. Er ætlunin að KA og Þór fái inni í
skólaíþróttahúsunum til æfinga.
— Þegar þessi þrjú hús verða komin í
gagnið hefur aðstaða til íþróttaiðkana á
Akureyri gjörbreyst, sagði ísak. — Þá
verður aðstaðan í samræmi við þann
áhuga sem ríkir á íþróttum á Akureyri. Ég
leyfi mér að fullyrða að áhuginn sé mjög
almennur og hvergi eru kappleikir eins vel
sóttir og einmitt hér. Biðlistar eftir þjálf-
unaraðstöðu eru langir og fólksfjöldinn
sem leitar í Hlíðarfjall um helgar þegar
vel viðrar segir sína sögu.
Loks skýrði ísak frá því að alls 2665
íþróttaiðkendur eru virkir í félögum þeim
sem eru aðilar að IBA, en það eru eftirtal-
in félög: Golfklúbbur Akureyrar, Skauta-
félag Akureyrar, Sundfélagið Óðinn,
Badmintonfélagið, Skotfélag Akureyrar,
íþróttafélag Fatlaðra, fþróttafélag
Menntaskólans, Sjóferðarfélag Akureyrar,
fþróttafélagið Þór og Knattspyrnufélag
Akureyrar.
Góðir knattspyrnumenn
nota Gola íþróttavörur.
Margir bestu
knattspyrnumenn
Englands nota
Gola fótboltaskó.
Laugavegi 13
sími 13508.
39