Íþróttablaðið - 01.04.1975, Síða 53

Íþróttablaðið - 01.04.1975, Síða 53
Hallur aðalstjórn Víkings. Hefur sennilega mun- að eftir mér frá því ég lék með 3. og 4. flokki í knattspyrnunni — flokkum, sem hann þjálfaði. Ég var kosinn — 16 ára — og sat nokkur ár í stjórn Víkings — oftast sem varaformaður. Nú, fyrst ég var í aðalstjórn félagsins þótti víst tilheyrandi, að ég væri fyrirliði á leikvelli. Við áttum þá marga snjalla handknattleiksmenn í Víking — Bjarna Guðnason, Árna Árnason, Ágúst Jónsson, Jóhann Gíslason og Hjört Hjartarson, allt menn, sem mikið hafa komið við sögu Víkings, og skólafélagar. 1945 sigruðum við á Islandsmótinu í 2. flokki og undir niðri er ég svolítið stoltur af því að hafa verið fyrirliði fyrsta Víkingsliðs, sem varð íslandsmeistari í handknattleik. I hlaupunum var ég í ÍR — Vesturbæ- ingur, sem ekki var „fæddur“ inn í KR, gekk ekki í KR. Þar var ég heppinn — komst 17 ára í boðhlaupssveit félagsins, sem hafði afburðahlaupurum á að skipa, Finnbirni Þorvaldssyni, Hauk Clausen og Kjartani Jóhannssyni. Með slíkum hlaup- urum i sveit hlaut ég að eignast nokkur Islandsmet. og keppti að drengjametum Finnbjörns í 300 og 400 m. Hins vegar lauk íþróttaferli mínum raunverulega áður en hann byrjaði — og það þó áhuginn væri mikill. Þar spilaði margt inní — einkum músíkin. Ég var hljóðfæraleikari að atvinnu um árabil, lék meðal annars með KK-sextettinum, sem gjörbreytti íslenzkri dansmúsík til hins betra 1947. Það var ekki hægt að sameina íþróttir og músík — og dýrt að fá spark í fingur. Síðar vék músíkin að nokkru fyrir annarri spilamennsku — bridge — og þar hef ég spilað við landsliðsmenn tuga þjóða. Oft orðið Islandsmeistari. — Finnst þér íþróttafréttamenn hér- lendis um of hlutdrægir, þegar um einstök félög er að ræða? Hjá því verður sennilega aldrei kom- izt i fámenninu á Islandi. Blaðamenn, ekki síður en aðrir, eru tengdir ákveðnum félögum og segir ekki máltækið „hverjum finnst sinn fugl fagur þó hann sé skítugur og magur“. Kannski líka erfiðara fyrir blaðamann, sem „heldur með“ litlu félagi að dylja tilfinningar sínar, þegar það vinn- ur afrek, en þess, sem er vanur miklum sigrum síns félags. Allir okkar beztu íþróttafréttamenn hafa verið mjög tengdir ákveðnum félögum og legið undir gagn- rýni af þeim sökum. Þetta er ekki eins- dæmi hér á landi — nei, þekkist alls staðar. Þeir tveir erlendu íþróttafrétta- menn, sem ég hef metið hvað mest — Brian Saunders, sem lengi var fréttastjóri íþrótta hjá BBC, og Jimmy Hill, sjón- varpsmaðurinn kunni, hafa oft verið gagn- rýndir — Saunders fyrir „dálæti“ á Manch.Utd., Hill, sem gamall leikmaður Fulham, fyrir að hafa „hælt“ Fulham of mikið m.a. í sambandi við frábæran ár- angur liðsins í ensku bikarkeppninni í vor. Iþróttafréttamenn eru aðeins mannlegir og þeim getur skjátlast eins og öðrum. íþróttafólk er líka mjög hörundssárt — það vill gleyma því góða, sem skrifað er um það, en man lítilfjörlegustu gagnrýnis- atriði. Þetta á líka við um forustumenn, já, og ekki má gleyma þeim, blessuðum dóm- urunum. Starf íþróttafréttamanns er heillandi að mörgu leyti — lifandi starf, þar sem maður kynnist miklum fjölda fólks, starfar með æskunni. Það er alltaf eitthvað að gerast og björtu hliðarnar miklu fleiri. Ferðalög með glæsilegu íþróttafólki á er- lenda grund hafa oft yljað manni — æsandi augnablik svo mörg — mikil afrek unnin — að það mundi fylla allar síður þessa blaðs að telja slíkt upp. Margir minna beztu vina er íþróttafólk, sem ég hef kynnst í gegnum starf mitt — ekki síður úr KR en Víking, ÍR en Val, Ár- manni en Fram, Akranesi en úr Keflavík. — En að lokum. Á pólitík að komast að, þegar um íþróttaskrif er að ræða? Nei, sá íþróttafréttamaður, sem blandar stjómmálum inn í íþróttaskrif sín, ætti þegar að leita sér að öðru starfi. JBP WÖTEL miEIDIR VEITINGABÚÐ Gódar veitingar, lipur þjónusta, lágt verd. □ pid frá kl.05 til kl.SO alla daga. (k í 45

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.