Fréttablaðið - 01.07.2020, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 01.07.2020, Blaðsíða 52
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is Flügger viðarvörnin klárar verkið fyrir þig Flügger Wood Tex vörulínan er til notkunar á við utanhúss. Vörurnar veita viðnum veðurþolið og sérlega endingargott yfirborð. Wood Tex vörurnar eru auðveldar í notkun og þornunartíminn er stuttur. Leikkonan og leikstjórinn Nanna Kristín Magnús-dóttir segist eiginlega vera að rísa úr dvala sem hún lagðist í eftir að hafa heldur betur slegið hressilega í gegn með sjónvarps- þáttunum Pabbahelgar. Þrátt fyrir fjölda áskorana ætlar hún þó ekki að byrja á að skrifa framhald af þáttunum heldur vinda sér í að leikstýra dans- og söngva- mynd byggðri á krakkaplötunni og leikritinu Abbabbb! eftir Dr. Gunna. „Já, ég mun láta undan þeim þrýstingi glöð í bragði,“ segir Nanna Kristín um háværar óskir um fleiri Pabbahelgar. „Fólk er að stoppa mig úti á götu og jafnvel að múta mér með kanelsnúðum í Bónus,“ heldur hún áfram vel meðvituð um að Pabbahelgar eigi dygga aðdá- endur víða. Pönk vs. diskó Kanelsnúðar og frómar óskir breyta því þó ekki að næsta verk- efni Nönnu verður söngleikurinn Abbababb! þar sem krakkar verða áberandi, þannig að nú stendur yfir leit að hressum krökkum á aldr- inum 6-13 ára sem hafa áhuga á að leika í bíómynd. „Abbababb! kom til mín fyrir þremur árum þegar Júlíus Kemp framleiðandi bað mig um að kíkja á verkefnið með það í huga að koma því á hvíta tjaldið,“ segir Nanna. „Ég hafði auðvitað hlustað á lögin, sem eru frábær, og þemað pönk vs. diskó heillaði mig upp úr skónum. Þannig að ég þurfti ekkert gríðarlega langan umhugsunarfrest til að taka þetta að mér.“ Lætur hjartað ráða Abbababb! er ekki aðeins fyrsta dans- og söngvamyndin sem Nanna leikstýrir heldur, eins og hún bendir á, hennar fyrsta kvikmynd í fullri lengd. „Ég þarf alltaf að taka hlutina aðeins lengra!“ segir hún og segir að vissulega sé að mörgu að huga þegar vinsæl plata og síðar söngleikur eru löguð að kvikmynd. „Jú, það er heil- mikil áskorun í skrifunum en það var búið að vinna góða forvinnu þegar ég kom að verkefninu. Ásgrímur Sverrisson hafði skrifað bíómyndahandrit upp úr leikritinu og ég tók það svo í þær áttir sem hjartað mitt vildi fara með söguna og lagði áherslu á frásögn með fleiri leiðum en beinum texta. Síðan er ég búin að fá með mér í lið þvílíka eðal listamenn. Sem dæmi mun Valgerður Rúnarsdóttir danshöfundur hafa yfirumsjón með kóreógrafíunni og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson útsetur tónlistina og semur sinfónísku kvikmyndatón- listina fyrir SinfoniaNord.“ Teppalandsdraumurinn Doorway Casting sér um leitina að leikurum í Abbababb! og hefur auglýst eftir áhugasömum krökkum sem enn hafa smá ráðrúm til þess að senda prufu áður en frestur rennur út á föstudaginn. Er leikstjórinn með einhver skila- boð til krakkanna, kannski ekki síst ef mann langar rosa mikið að prufa en er kannski pínu feiminn eða hræddur um að gera eitthvað „vit- laust“ í prufunni? „Skilaboðin frá leikstjóranum eru þau að það er ekki hægt að gera neitt vitlaust,“ segir Nanna og hvetur ein- faldlega „alla sem hafa áhuga á að vera í bíómynd“ til þess að senda inn prufur. „Þegar ég var lítil langaði mig mest af öllu að fá að leika í auglýs- ingu og þrábað stjúpföður minn um að koma því til skila til yfirmanna sinna. Ég fékk aldrei að leika í aug- lýsingu enda vann stjúppabbi minn hjá Teppalandi á Grensásveginum. Ég gerði í sjálfu sér ekkert vitlaust nema að setja öll eggin í sömu körfu, það er að segja, Teppaland.“ Við erum alls konar Nanna Kristín segir að allar prufur verði skoðaðar gaumgæfilega. „Ég vil einmitt fá alls konar krakka í myndina. Ekki aðeins þau sem eru þaulreynd af því að keppa eða sýna mörgum sinnum á vetri þótt sá hópur muni að sjálfsögðu koma sterkur inn í þar til gerð hlutverk. En við erum alls konar og í skól- anum þar sem Abbababb! gerist núna, þá er fjölbreytileiki,“ segir Nanna. „Hæfileikar fyrir þessa dans- og söngvamynd eru ekki aðeins dans og söngur heldur getur það verið að djöggla boltum, spila á básúnu, karate, spilagaldrar, lesa ljóð, prjóna, ropa hátt og lengi eða hvað sem þeim sjálfum þykir merki- legt. Sem leikstjóri er ég að leita að demöntum en ég vil ekki ákveða fyrir fram í hvaða formi þeir skína skærast.“ toti@frettabladid.is Nönnu Kristínu mútað með kanelsnúðum Kanelsnúðar voru notaðir til að múta Nönnu Kristínu til að gera framhald Pabbahelga en breyta engu um að næsta verkefni hennar er dans- og söngvamynd byggð á Abbababb! eftir Dr. Gunna. Nanna Kristín þurfti ekki að hugsa sig lengi um þegar henni bauðst að leikstýra bíómyndinni Abbababb! Eitt þarf þó ekki að útiloka annað og hún segist munu láta undan þrýstingi um fleiri Pabbahelgar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Hvernig prufu á að senda? Áhugasamir krakkar mega undirbúa prufu heima, taka upp og senda á okkur á prufur@ doorway.is. Passið að það sjáist og heyrist vel í þeim sem er að senda inn prufu og athugið að aðeins sá sem er í prufu á að sjást í mynd- bandinu. n Lengd: Allt saman hámark fjórar mínútur. n Kynning: Segja fullt nafn, aldur og frá hvaða landshluta. n Leikinn texti: Finna texta að eigin vali (t.d. úr leiksýningu eða bíómynd) sem þú vilt leika fyrir okkur. n Hæfileiki: Dans, söngur, hjólaskautar, teiknihæfileikar, parkour eða hvað sem er annað sem þér dettur í hug. Veldu þinn helsta hæfileika til að sýna okkur! Síðasti dagur til að senda inn prufu er föstudagurinn 3. júlí. 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.