Fréttablaðið - 01.07.2020, Blaðsíða 6
Lagt er til að sérstakt
ákvæði um vantraust á
ráðherra verði sett í stjórn-
arskrá
STJÓRNMÁL Kjörtímabil forseta
Íslands verður lengt í sex ár en
hámark sett á samfellda setu á for
setastóli, samkvæmt drögum að
frumvarpi um breytingar á stjórnar
skrá sem forsætisráðuneytið birti í
samráðsgátt stjórnvalda í gær. Frum
varpið er samið af Skúla Magnús
syni, héraðsdómara og dósent, í
samráði við formenn stjórnmála
flokkanna.
Frestur til að senda umsagnir um
málið rennur út um miðjan júlí.
Í frumvarpsdrögunum er miðað
við að forseti geti aðeins setið sam
fellt tvö kjörtímabil á Bessastöðum,
eða í alls tólf ár, miðað við sex ára
kjörtímabil.
Lagt er til að forsetaefni þurfi að
hafa meðmæli að lágmarki 2,5 pró
senta kosningabærra manna en
miðað við fjölda á kjörskrá fyrir
nýafstaðnar kosningar þyrfti for
setaefni meðmæli frá um 6.300
einstaklingum til að geta boðið sig
fram.
Töluverðar breytingar eru einnig
lagðar til á ákvæðum um hlutverk
forseta, að mestu leyti til samræmis
við ríkjandi framkvæmd. Til að
mynda verði formleg heimild forseta
til að fella niður saksókn felld brott
og hlutverk forseta við stjórnar
myndun skýrt og fært nær ríkjandi
framkvæmd eins og það er orðað í
frumvarpinu. Lagt er til að Alþingi
fái aukið forræði á starfi sínu og hlut
verk forseta við setningu Alþingis
og frestun á fundum þess verði tak
markað. Þá er lagt til að Alþingi geti
fellt úr gildi lög sem forseti hefur
synjað staðfestingar samkvæmt
26. grein stjórnarskrárinnar til að
afstýra þjóðaratkvæðagreiðslu.
Að lokum er lagt til að forseti verði
ekki lengur ábyrgðarlaus af stjórn
arathöfnum, nema þeim sem hann
framkvæmir að tillögu ráðherra og
ráðherra ber ábyrgð á.
Í frumvarpinu er einnig kveðið á
um breytingar á ákvæðum um ráð
herra og ríkisstjórn. Ákvæðum um
ráðherraábyrgð er breytt og kveðið
á um að Alþingi geti falið ríkissak
sóknara að fara með ákæruvald í
stað þess að Alþingi sjálft gefi út
ákæru. Lagt er til að ekki verði leng
ur fjallað um Landsdóm í stjórnar
skrá heldur verði fjallað um með
ferð mála um ráðherraábyrgð í
almennum lögum. Í tilkynningu
sem fylgir málinu í samráðsgátt
inni kemur fram að unnið sé að
endurskoðun laga um ráðherra
ábyrgð og Landsdóm og ráðgert sé
að kynna afrakstur þeirrar endur
skoðunar í haust.
Forystuhlutverk forsætisráð
herra er sérstaklega orðað í frum
varpsdrögunum og ákvæði um
ríkisstjórnarfundi gerð ítarlegri. Í
gildandi stjórnarskrá er forsætis
ráðherra ekki getið að öðru leyti en
því að hann stýri ráðherrafundum.
Að lokum er í frumvarpsdrögun
um mælt fyrir um vantraust á ráð
herra og ríkisstjórn og áhrif þess en
gildandi stjórnarskrá hefur ekki að
geyma ákvæði þar að lútandi. Lagt
er til að Alþingi geti lýst vantrausti
á tiltekinn ráðherra og beri honum
að láta af embætti strax í kjölfarið.
Samþykki Alþingi hins vegar að
lýsa vantrausti á forsætisráðherra
ber honum að biðjast lausnar fyrir
sig og ríkisstjórnina en sitja áfram
þar til ný ríkisstjórn hefur verið
skipuð.
Formenn flokkanna hafa fundað
reglulega á kjörtímabilinu undir
forystu forsætisráðherra um breyt
ingar á stjórnarskrá. Þegar hafa
verið birt drög að frumvörpum um
íslenska tungu, umhverfi og auð
lindir. adalheidur@frettabladid.is
Forseti fái aðeins tvö tímabil
Forsætisráðuneytið birti drög að breytingum á stjórnarskrá í samráðsgátt í gær. Lagt til að kjörtímabil
forseta verði sex ár og hann verði aðeins einu sinni í endurkjöri. Fjölga á meðmælendum frambjóðenda.
Horft var til niðurstöðu rökræðukönnunar sem efnt var til í nóvember síðastliðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
ALÞINGI „Það eru ekki liðnir sex
tímar frá því að hann samþykkti
málið, þegar hann segir þetta.
Hann tjáði sig ekki um málið
þegar það var tekið fyrir, heldur
bara einfaldlega samþykkti það,“
segir Þorgerður Katrín Gunnars
dóttir, þingmaður Viðreisnar, um
orð sem Bjarni Benediktsson fjár
málaráðherra lét falla í gær, um
að fjármagn hafi ekki fylgt nýju
frumvarpi um gjaldfrjálsa sál
fræðiþjónustu.
Bjarni sagði að einungis fyrri
hluti málsins hefði verðir afgreidd
ur í fyrradag þegar málið var sam
þykkt á Alþingi. „Eitt er að veita
ráð herra heimild til að semja við
sjúkra tryggingar, en hann verður
líka að hafa fjár heimild til að gera
það,” sagði Bjarni.
Laga breytingin sem um ræðir
hefur það mark mið að al menn sál
fræði þjónusta og önnur klínísk við
talsúr ræði falli undir greiðslu þátt
töku kerfi Sjúkra trygginga Ís lands.
Þorgerður segir orð Bjarna bera
keim af gamaldags nálgun, en að
um forvirkar aðgerðir sé að ræða.
„Við skulum ekki gleyma því að það
eru 19 milljarðar sem fara í örorku
bætur vegna andlegrar vanheilsu
árlega, svo þó að það væri ekki hægt
að spara nema brotabrot af því, þá
værum við komin með fjármagnið
sem til þarf,“ segir hún.
„Ég ætla að vera bjartsýn ég trúi
því að allir f lokkar hafi raunveru
lega meint það sem að þeir sam
þykktu í gær. Ég trúi því ekki fyrr
en á reynir að Sjálfstæðisflokkurinn
ætli að standa í vegi fyrir því að við
höldum áfram með þetta lífsgæða
framtíðarmál,“ bætir hún við. -bdj
Segir orð Bjarna um fjármagn til sálfræðiþjónustu gamaldags
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er
fyrsti flutningmaður frumvarpsins.
COVID-19 Fjöldi útgefinna vegabréfa
minnkaði um 89 prósent á milli ára
séu bornir saman maí á þessu ári
og sami mánuður í fyrra. Í síðast
liðnum maímánuði voru einungis
gefin út 363 íslensk vegabréf, en til
samanburðar voru þau 3.247 í maí í
fyrra. Þetta kemur fram á vef Þjóð
skrár Íslands.
Fjöldi útgefinna vegabréfa hefur
dregist verulega saman síðan í
febrúar á þessu ári, á sama tíma og
fyrsta COVID19 smitið greindist
hér á landi. Þann mánuð voru gefin
út 1.580 vegabréf. Í mars voru þau
907 talsins og í apríl 129. – bdj
Útgáfa vegabréfa
dregst saman
SAMFÉLAG Háskóli Íslands (HÍ) er
í sjötta sæti yfir fremstu háskóla
heims á sviði fjarkönnunar, sam
kvæmt Shanghaílistanum sem
birtur er árlega. Þá er skólinn einn
ig í hópi þeirra 40 bestu á sviði raf
magns og tölvuverkfræði. Listinn
er annar tveggja virtustu og áhrifa
mestu matslista yfir bestu skóla
heims.
Á sviði jarðvísinda og hjúkrunar
fræði var Háskóli Íslands meðal
þeirra 150 bestu, og á sviði lífvís
inda í sæti 150200. Enn fremur var
skólinn í 201.300. sæti á sviðum
landafræði, líffræði mannsins,
stjórnmálafræði og ferðamálafræði.
Háskóli Íslands hefur verið á
Shanghailistanum allt frá árinu
2017. – bdj
HÍ meðal þeirra
bestu í heimi
HÍ skorar hátt á Shanghaí-listanum.
1 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð