Fréttablaðið - 01.07.2020, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 01.07.2020, Blaðsíða 12
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Þessi sorg- legu örlög löggjafans eru því miður ekki honum einum að kenna. Nú er ekki tíminn fyrir hægri kredd- ur: skrum- skælingu ríkisafskipta og áróður um að einkavæða þurfi ríkis- fyrirtæki til að afla tekna. Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur @frettabladid.is Að pía … Þeir eru ansi misgeðslegir, bit arn ­ ir sem fólk þarf að kyngja fyr ir kurteisi sakir við hlaðborð al­ þjóða, þegar halda þarf fulltrúum nágrannaþjóða góðum. Guðlaug­ ur Þór Þórðar son utanríkisráð­ herra virðist góðu heilli ekkert sérstaklega klígjugjarn og frekar umburðarlyndur. Nýjasta dæm ið um víða sýn ráðherrans á þrönga, er ferðalag með Jenis av Rana, leiðtoga kristilega Mið flokksins og mennta­ og utan ríkisráðherra Færeyja. Á Íslandi verður Jenis nefnilega alltaf þekkt astur fyrir að neita að sitja til borðs með Jóhönnu Sigurðardóttur vegna kynhneigð ar hennar. Dekstur sem þetta, við fólk með svæsnar skoðanir, þykir líklegt til að fest­ ast í sessi sem sögnin „að pía,“ með vísan til alræmds dekurs for­ seta Alþingis við Piu Kjærsgaard hér um árið. … og pensla Utanríkisráðherra er orð inn ýmsu vanur þegar kemur að því að taka umdeildum gest­ um opnum örmum, jafnvel þó al m enn stemning sé fyrir að taka á móti slíkum með mót mæli og beitt skilti á lofti. Skreppitúr með Jenis av Rana er þannig varla til­ töku mál, eftir að hafa boð ið Mike Pence, varaforseta Banda ríkj­ anna, velkominn til landsins, en sá hefur sjálfsagt stærri og hvass­ ari horn í síðu samkynhneigðra en færeyski Miðflokksmaðurinn. toti@frettabladid.is Með því að auglýsa í Atvinnublaðinu nær þitt fyrirtæki til 89% lesenda dagblaða* á höfuðborgarsvæðinu. Fólk talar um að kreppan sem nú stendur yfir sé öðruvísi en kreppan árið 2008. En hvernig?Vegna veirunnar hrundi eftirspurn á vörum og þjónustu, með þeim afleiðingum að fólk missir unnvörpum atvinnu og tekjur og fyrirtækin þurfa að draga saman seglin eða fara jafnvel í þrot. Niður- staðan er mesta atvinnuleysi á Íslandi frá upphafi mælinga. Tugþúsundir Íslendinga eru nú án atvinnu og það er þetta fólk sem er látið vera í framlínunni við að kljást við kreppuna, ef ekkert er aðhafst. Smám saman getur myndast mikill og hættulegur munur á stöðu þeirra sem missa vinnu og hinna sem halda vinnunni, ef ekki er hugað sérstaklega að stöðu atvinnulausra. Því lengur sem ástandið varir, því meiri verður munurinn, og ójöfnuður í samfélaginu eykst. Fjárhagsvandi, þunglyndi og vanlíðan eru þekktir fylgifiskar langtímaatvinnuleysis og auka álagið á heimilin, öryggisnetið okkar og heilbrigðis- kerfi landsins. Stærsta verkefnið sem við stöndum frammi fyrir nú er að skapa störf. En við þurfum líka að ráðast í sértækar aðgerðir í þágu atvinnulausra: hækka grunnatvinnuleysisbætur og lengja tímabil tekju- tengdra atvinnuleysisbóta. Við verðum um leið að móta djarfa atvinnustefnu og ráðast í fjárfestingar sem ýta undir fjölbreytni atvinnulífsins. Við þurfum að styðja við einkafram- takið, sérstaklega lítil og meðalstór fyrirtæki, en við skulum líka vera óhrædd við að skapa nauð- synleg opinber störf um allt land. Verkefnin eru óþrjótandi, ekki síst á sviði loftslagsmála, og að skjóta rótum undir atvinnulíf sem byggir á hugviti og þekkingu. Nú er ekki tíminn fyrir hægri kreddur: skrum- skælingu ríkisafskipta og áróður um að einkavæða þurfi ríkisfyrirtæki til að afla tekna. Þvert á móti væri ábyrgðarlaust fyrir stjórnvöld að beita sér ekki með afgerandi hætti – nú er tíminn til að stokka spilin og gefa upp á nýtt; skapa störf, jafna lífskjör og ráðast gegn loftslagsvandanum í leiðinni. Stokkum spilin á ný Logi Einarsson formaður Sam- fylkingarinnar Það er ekkert að marka Alþingi Íslendinga.Á síðasta þingfundi vorsins voru sam-þykkt lög um gjaldfrjálsa sálfræðiþjón-ustu fyrir landsmenn. Sjö stundum síðar tilkynnti fjármálaráðherra að ekkert fjár-magn hefði fylgt með og í augnablikinu séu ekki til peningar fyrir nýjum útgjöldum. Á sama þingfundi reyndi Inga Sæland að koma í gegn lagabreytingu, sem ætlað er að þvinga stjórn- völd til að fara að lögum um reglubundna hækkun örorkubóta. Slík staðfesting á gildandi rétti borgara var metin fáránleg og henni hafnað. Þá voru greidd atkvæði gegn frumvarpi sem Alþingi sjálft ályktaði fyrir nokkrum árum að leggja skyldi fram, um stöðvun ofsókna gegn veiku fólki. Nokkrir helstu fordæmendur frumvarpsins voru sjálfir f lutningsmenn þess. Tillaga um að hætta að ofsækja veikt fólk var kölluð „tvískinnungur“. Sú tíð er liðin þegar sérstök hólf fyrir víxileyðublöð voru í anddyri þingsins og verðmætari pappír var ekki til en sá sem hafði undirskrift alþingismanns. Enginn tekur lengur sérstakt mark á orðum sem sögð eru í ræðustól Alþingis og flestar ályktanir þingsins eru marklausar. Og nú hefur sú nýbreytni verið tekin upp, að Alþingi setji þýðingarlaus lög: Lög sem kveða í orði á um réttindi borgara í landinu, en hafa á borði ekkert vægi í raun. Þessi sorglegu örlög löggjafans eru því miður ekki honum einum að kenna. Þau haldast í hendur við væntingarnar, og þær fara tæpast fram úr traustinu. Á Íslandi ríkir ekki aðeins vantraust til stjórnmála, heldur beinlínis andúð. Það er ömurlegt því auðvitað ættum við að láta okkur þykja vænt um stjórnmál og stjórnmálaflokka. Þótt hatrið sé ekki alltaf óverð- skuldað eigum við ekki að gefast upp á lýðræðinu þótt kjörnir fulltrúar valdi vonbrigðum, heldur vinda ofan þeim vítahring sem stjórnmálaandúðin hefur skapað. Hún veldur því að okkar besta fólk vill ekki starfa í stjórnmálum. Það þarf að laga stjórnmálaflokkana. Þeir eru ekki nógu fjölmennir til að geta talist fjöldahreyfingar, þeir hafa ekkert aðdráttarafl og eru lamaðir af mann- eklu, af því það elskar þá enginn. Uppbyggileg átök fá ekki nægilegt pláss og það bitnar á afrakstri stjórn- málastarfsins. Þess vegna hefur sú hefð skapast, meðal óánægðra borgara, að stofna frekar nýjan stjórnmálaflokk en ganga til liðs við þá sem fyrir eru. Átta flokkar starfa á Alþingi. Ríkisstjórnin er klofin. Stjórnarandstaðan er klofin. Fjöldi ólíkra sjónarmiða til verkefna sem leysa þarf er oftast á pari við fjölda flokka. Niðurstaðan verður oftar en ekki einhver óskapnaður sem enginn er ánægður með. Við gerum sjaldan neitt með glæsibrag lengur heldur þurfa öll mál að vera svolítið léleg líka, ýmist til að styggja engan í baklandinu, eða sætta ólík sjónarmið sem eiga engan uppruna annan en per- sónulega óvild stjórnmálamanna, sem geta ekki, eða vilja ekki, vinna saman og hafa því kosið íslensku leiðina, að stofna nýjan flokk. Stjórnleysið 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.