Fréttablaðið - 21.07.2020, Síða 10

Fréttablaðið - 21.07.2020, Síða 10
Þegar stelpur hætta að spila þá mættu fleiri taka upp flautuna. Ég sjálf byrjaði að dæma eftir meiðsli og varð miklu betri dómari en ég var sem leikmaður Ef allt gengur eftir ættu framkvæmdir að geta hafist næsta vor og framkvæmdum lokið í haustbyrjun 2021 Birgir Gunnarsson, bæjarstjóri FÓTBOLTI „Næstu mánuðir verða nýttir til að undirbúa verkið sem best og ef allt gengur eftir ættu fram- kvæmdir að geta hafist næsta vor og framkvæmdum lokið í haustbyrjun 2021,“ segir Birgir Gunnarsson bæjarstjóri í bréfi sínu um knatthús sem kynnt var á bæjarráðsfundi Ísa- fjarðarbæjar. Kostnaðaráætlun miðast við 456 milljónir og er þá búið að taka tillit til endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna vinnu á verkstað, vinnu við grunn, stauraundirstöður, fram- lags úr Mannvirkjasjóði KSÍ og fjár- magnskostnaðar. Áætlunin miðast því við heildarkostnað við fullbúið hús. Í bréfi Birgis segir að unnið hafi verið að undirbúningi og viðræður hafa verið í gangi við norska fyrir- tækið Hugaas Entreprenör AS í Nor- egi undanfarnar vikur. Á sínum tíma barst ekkert tilboð í verkið á sínum tíma og því ekkert því til fyrirstöðu að leita leiða til að semja um verkið á grundvelli skilmála í útboði. Verk fræðistofa Verkís hefur komið að málinu og á að sannreyna að tilboð Norðmanna sé í samræmi við skilmála útboðs og standist allar þær gæðakröfur sem gerðar eru til byggingarinnar. Niðurstaða Verkís er að það hús sem Norðmenn bjóða uppfylli að öllu leyti þær kröfur sem gerðar eru til hússins. Verkís hefur einnig yf irfarið hönnun á undirstöðum því nauð- synlegt er að reka niður stauraundir- stöður þar sem djúpt er niður á fast á fyrirhuguðum byggingarstað. Telur verkfræðistofan að það taki 4–6 vikur að reka staurana niður. – bb Ísfirðingar fá norskt knatthús fyrir hálfan milljarð Vestri er í sjötta sæti í Lengjudeildinni eftir gott gengi. Félagið hefur haft bágborna aðstöðu til að sparka yfir vetrarmánuðina. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR 2 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT FÓTBOLTI Guðjón Pétur Lýðsson, sem nýverið fór á lán frá Breiða- bliki í Stjörnuna, mun taka sæti í Íþrótta- og tómstundaráði Garða- bæjar á næsta ári. Þetta var tilkynnt á síðasta fundi ráðsins og mun Guð- jón taka við sæti Hannesar Inga Geirssonar. Guðjón hefur verið viðloðandi pólitík fyrir Garðabæjarlistann og var í sjötta sæti fyrir listann í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Hann á og rekur GPL sf. og er einn af eigendum North Investment ehf. sem starfrækir 14 skrifstofur og leigir út skrifstofurými til minni fyrirtækja og einstaklinga. Guðjón er 33 ára gamall og hefur leikið yfir 200 leiki í efstu deild og skorað 45 mörk auk þess að leggja upp ógrynni af mörkum. – bb Guðjón Pétur tekur sæti í ÍTG Guðjón Pétur Lýðsson kann vel við sig í Garðabæ. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Tímaritið France Foot- ball hefur ákveðið að engum knatt- spyrnumanni eða -konu verði veitt- ur Gullboltinn, eða Ballon d'Or, fyrir tímabilið. Þetta er í fyrsta sinn sem því hefur verið sleppt síðan boltinn var veittur í fyrsta sinn árið 1956. Pascal Ferre, ritstjóri blaðsins, segir í yfirlýsingu að aðstæður séu þannig að enginn skari fram úr á þessum furðulegu tímum. Ákvörð- unin hafi verið erfið en hann vonar að Gullboltinn skíni aftur árið 2021. Sem fyrr voru Lionel Messi og Cristi- ano Ronaldo taldir líklegir til afreka en einnig Sergio Ramos og Robert Lewandowski. – bb Enginn fær Gullboltann í ár Ronaldo hefur unnið Gullboltann fimm sinnum. MYND/GETTY FÓTBOLTI Bríet Bragadóttir milli- ríkjadómari dæmdi leik Selfoss og Þórs/KA á sunnudag en með henni voru þær Eydís Ragna Einarsdóttir og Rúna Kristín Stefánsdóttir. Ekki er mjög algengt að þær dæmi saman leiki en komust þær vel frá sínu hlutverki og dæmdu leikinn vel. Í umfjöllun fótbolta.net um dómar- ann sagði að það væri alltaf einn og einn dómur sem fólk væri ekki sátt við en stóru ákvarðanirnar voru upp á tíu. Fékk Bríet 7,5 í einkunn fyrir leikinn. „Það er ekki algengt að dómara- tríóið séu konur en þetta hefur gerst einhvern tímann áður,“ segir Bríet. „Þessi leikur gekk vel fannst mér. Að starfa með þessum stelpum er gott og við höfum unnið töluvert saman. Ég hef farið í erlend verkefni með þeim báðum og það er þægilegt að dæma með þeim. Við vitum kosti og galla hver annarra þannig að það er gott að hafa þær á hliðarlínunni,“ bætir hún við. Bríet er eini kvenkyns milliríkja- dómari landsins, Rúna er sú eina sem er skráð milliríkjaaðstoðar- dómari og Eydís er landsdómari. „Það vantar f leiri konur að dæma, ekki spurning. Við erum þrjár sem erum landsdómarar og svo eru þrjár að dæma í neðri deildunum. Við erum ekkert mikið fleiri og það væri gott að fá f leiri stelpur inn í dómgæsluna.“ Hún segir að f lestir leikmenn í þriðja flokki fari í gegnum unglinga- prófið í dómgæslu en af einhverjum ástæðum halda fáar stelpur áfram – sem sé synd því starfið sé skemmti- legt þrátt fyrir stundum misgáfuleg ummæli og áreiti frá bekkjum lið- anna. „Þegar stelpur hætta að spila þá mættu fleiri taka upp flautuna. Ég sjálf byrjaði að dæma eftir meiðsli og varð miklu betri dómari en ég var sem leikmaður. Það tekur um fimm leiki að venjast áreitinu og finna taktinn. En þetta er ekkert persónulegt og þjálfarar og leikmenn eru að tjá sig um fótboltann. Það er ekkert verið að ráðast á persónuna en ef það er farið yfir línuna þá eru gulu og rauðu spjöldin í vasanum ef þarf. Það kemur fljótt skrápur á mann og ekkert sem er að trufla mann milli leikja.“ Bríet er ákveðin fyrirmynd þegar kemur að dómgæslu. Hún hefur tekið þátt með KSÍ að fá f leiri stelpur til að dæma og segir að hún sé í símaskránni ef einhver er að spá í að taka upp f lautuna. „Þetta er skemmtilegt starf og ég hef mætt á leiki hjá stelpum sem eru að stíga sín fyrstu skref til að gefa þeim punkta og annað. Það á enginn að þurfa að byrja aleinn í þessu og það er auðvelt að hringja í mig.“ Bríet segir að félögin megi vera duglegri að finna hæfileikaríkt fólk. „Liðin mega alveg vera betri í að virkja styrk einstaklinganna. Ef leikmaður er ekki að fara að ná langt innanvallar þá er um að gera að beina þeim í aðrar áttir innan fótboltans. Það er mikið innan fót- boltans sem þarf að manna, eins og þjálfun og dómgæsla sem dæmi. Ég held að félögin þurfi að axla ábyrgð og koma f leiri dómurum, bæði strákum og stelpum, á framfæri og finna sína hillu. Því meira sem félögin aðstoða, því betri dómarar skila sér.“ benediktboas@frettabladid.is Félögin verða að axla ábyrgð Dómaratríóið í viðureign Selfoss og Þórs/KA voru konur og segir Bríet Bragadóttir, eini kvenkyns milli- ríkjadómari, að það vanti fleiri stelpur í dómarastéttina. Félögin verða að búa til fleiri dómara. Bríet starfar sem sjúkraþjálfari hjá Afl og hefur verið beðin um að vera tilbúin að dæma erlendis í ágúst, september og október. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.