Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.07.2020, Qupperneq 31

Fréttablaðið - 21.07.2020, Qupperneq 31
Sýningarstaðir safnsins eru í Árbæjarsafni, Landnáms-sýningunni í Aðalstræti, Sjóminjasafninu í Reykjavík, Ljósmyndasafni Reykjavíkur og Viðey, auk þess sem starfsemi safnsins er sýnileg með öðrum hætti, til dæmis með sögugöngum, útgáfu og menningarmerkingum í borgarlandinu. Árbæjarsafn Árbæjarsafn er útisafn sem er opið allan ársins hring. Þar er safn gamalla húsa sem flest hafa verið flutt á safnsvæðið úr miðbæ Reykjavíkur. Svæðið skiptist í torg, þorp og sveit og gefur góða mynd af umhverfi og bæjarbrag í Reykja- vík á 19. og 20. öld. Í safninu er boðið upp á fjölda sýninga og viðburða, þar sem einstökum þáttum í sögu Reykja- víkur eru gerð skil. Þar má nefna handverksdaga, fornbílasýningu, jólasýningu og margt f leira. Árbæjarsafn er tilvalinn staður Borgarsögusafn Reykjavíkur Eitt safn á fimm stöðum Hlutverk Borgarsögusafns er að safna, skrásetja, varðveita og rannsaka menningarminjar sem eru einkennandi fyrir menningararf borgarinnar og miðla fjölbreyttri sögu á forvitnilegan hátt. Sjóminjasafnið úti á Granda hefur margt skemmtilegt til að skoða. Ljósmyndasafn Reykjavíkur, mynd frá Vitni, sýningu Chri- stophers Lund sem stendur til 13. september. Landnámssýningin er ævintýralega skemmtileg. Árbæjarsafn heillar unga sem aldna enda er þar margt að sjá frá fyrri tíð. Ýmsar skemmtilegar sýningar eru í gangi í safninu yfir sumartímann. fyrir börn. Um er að ræða fróðlega sýningu fyrir alla aldurshópa. Hljóðleiðsögn er fáanleg á íslensku og ýmsum tungumálum. Opið: Mán.–föst. kl. 10–17 Helgar kl. 9–18 Aðalstræti 16 101 Reykjavík www.borgarsogusafn.is Sjóminjasafnið í Reykjavík Nýja grunnsýning Sjóminjasafns- ins á efri hæð safnsins fjallar um fiskveiðar Íslendinga, frá því ára- bátarnir gömlu viku fyrir útgerð stórra skipa á síðustu áratugum 19. aldar og fram yfir aldamótin 2000. Sagan er sögð frá sjónarhóli stærsta útgerðarbæjar landsins, Reykja- víkur, með gripum og textum, myndum og leikjum. Aðalper- sónan í þessari sögu er auðvitað fiskurinn! Honum er fylgt eftir úr hafinu í netið, um borð í bátinn og að landi, í gegnum vinnslu – og loks á diskinn. Mjaltastúlkan er sýning á neðri hæð safnsins um neðan- sjávarfornleifar. Árið 1659 sökk hollenskt kaupskip í ofsafengnum stormi við Flatey á Breiðafirði. Meira en 300 árum síðar, árið 1992, fundu kafarar f lak skipsins. Árið eftir var í fyrsta sinn framkvæmd víðtæk rannsókn á fornminjum neðansjávar við Ísland. Enn stærri hluti f laksins var svo grafinn upp árið 2016. Við bryggju safnsins liggur hið fræga varðskip Óðinn. Boðið er fyrir fjölskylduna til að verja parti úr degi enda nóg við að vera fyrir börn sem fullorðna. Opið: Júní–ágúst kl. 10–17 September–maí kl. 13–17 Kistuhylur, 110 Reykjavík www.borgarsogusafn.is Leiðsögn daglega kl. 13 allan ársins hring Landnámssýningin Landnámssýningin byggir á skálarúst sem varðveitt er á upp- runalegum stað. Með túlkun á fornminjum er ljósi varpað á líf og tilveru fyrstu íbúa Reykjavíkur og tengsl þeirra við umhverfið í nýju landi. Efni Landnámssýn- ingarinnar byggir á niðurstöðum fornleifarannsókna, efnistökin eru vísindaleg og kynna nýjustu túlkanir vísinda- og fræðimanna á þessu tímabili sögunnar. Á sýn- ingunni má einnig finna leiksvæði þrisvar sinnum daglega upp á leið- sögn um borð. Opið alla daga: Kl. 10–17 Dagleg leiðsögn í Óðin kl. 13, 14 og 15 Grandagarður 8, 101 Reykjavík www.borgarsogusafn.is Ljósmyndasafn Reykjavíkur Safnið varðveitir um fimm milljón- ir ljósmynda sem teknar hafa verið af atvinnu- og áhugaljósmyndurum á tímabilinu um 1870 til 2002. Um 30 þúsund þeirra eru aðgengilegar á myndvef safnsins. Safnið stendur árlega fyrir fjölbreyttum sýningum með áherslu á sögulega og samtíma ljósmyndun, í listrænu sem menn- ingarlegu samhengi. Opið: Mán.–fim. kl. 10–18 Fös. kl. 11–18 Helgar kl. 13–17 Tryggvagata 15 (6. hæð), 101 Reykjavík www.borgarsogusafn.is Viðey Viðey er sögustaður og náttúru- perla, en eyjan var öldum saman talin ein besta bújörð landsins. Þar er að finna mannvistarleifar allt frá landnámstíð, en einnig minjar um klaustur á 13. öld. Í Viðey standa ein elstu hús landsins, Viðeyjarkirkja og Viðeyjarstofa frá tímum Skúla Magnússonar á 18. öld. Í Viðey er einnig að finna ein merkustu listaverk borgar- innar, þ.e. Áfanga Richard Serra og Friðarsúlu Yoko Ono. Á sumrin er boðið upp á reglulegar kvöldgöng- ur auk fjölda annarra viðburða. Sumar: Siglt er út í Viðey alla daga vikunnar. Vetur: Siglt er út í Viðey aðeins um helgar. Sjá nánari upplýsingar á www. videy.com, www.borgarsogusafn. is og https://www.facebook.com/ videyreykjavik/ Ljósmydasafn Reykjavíkur Christopher Lund Vitni/Witness 06.06.– 13.09.2020 www.borgarsogusafn.isí Skotinu Borgarsögusafn Reykjavíkur, spennandi ferðalag í gegnum sögu og menningu. www.borgarsogusafn frábærum safn Eitt á fimm stöðum Árbæjarsafn Landnámsýningin Ljósmyndasafn Reykjavíkur Sjóminjasafnið í Reykjavík Viðey KYNNINGARBLAÐ 5 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 SÖFN Á ÍSLANDI

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.