Fréttablaðið - 01.08.2020, Blaðsíða 4
Næstu dagar og vikur
ráða úrslitum um hvort
dregið verði úr eða bætt í.
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI, VARA- OG AUKAHLUTAVERSLUN
Pallbílahús frá ARE á alla USA pallbíla
Varahlutaverslun ÍSBAND býður upp á gott úrval vara- og aukahluta og
íhluta til breytinga. Allir helstu varahlutir í okkar vörumerkjum eru til á
lager. Sérpöntum varahluti í aðra USA bíla.
Úrval af felgum fyrir
Jeep® og RAM
Upphækkunarsett
í Wrangler
Upphækkunarsett
í RAM
Falcon demparar
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK
SÍMI 590 2323 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA KL. 07:45 - 18:00
ALMENNT BÍLAVERKSTÆÐI OG
SMURÞJÓNUSTA FYRIR ALLA BÍLA
ALLIR VINNA - ENDURGREIÐSLA VSK.
FIAT HÚSBÍLAR - ÁBYRGÐAR OG
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI
BREYTINGAR Á JEEP®, RAM
OG ÖÐRUM USA PALLBÍLUM
ALLIR BÍLAR SÓTTHREINSAÐIR
STUTTUR BIÐTÍMI SÍMI 590 2323
UMBOÐSAÐILI
DÓMSMÁL Tónlistarfyrirtækin
Warner og Universal hafa áfrýjað
ákvörðun dómstóls í Los Angeles
um að hafna kröfu þeirra, um að
Jóhann Helgason greiði þeim 323
þúsund dollara í málskostnað
í lagastuldarmálinu um lagið
Söknuð.
Áfrýjunin kemur á óvart, því að í
herbúðum Jóhanns var talið að and
stæðingar hans gætu ekki áfrýjað
höfnun málskostnaðarkröfunnar.
Annað er nú komið á daginn. Sam
kvæmt tilkynningu áfrýjunardóm
stólsins, verður áfrýjun Warner og
Universal til meðferðar samhliða
áfrýjun Jóhanns sjálfs, vegna þess
að máli hans hafði verið vísað frá
dómi. Á gengi dagsins í dag nemur
krafan á hendur Jóhanni jafnvirði
44 milljóna króna.
„Það er tæplega nokkur ástæða til
að ætla að það komi nokkuð út úr
þessu fyrir þá,“ segir Jóhann. Í nið
urstöðu dómarans varðandi máls
kostnaðarkröfuna hafi verið bent á
fimm grundvallaratriði sem þyrfti
að uppfylla svo dæma mætti Jóhann
til að greiða lögmannskostnað
Warner og Universal. Snerust þau
meðal annars um hvort málatil
búnaður Jóhanns væri tilhæfulaus,
út í hött og settur fram af illum hug.
„Dómarinn strokaði öll þessi
atriði út og þetta er því fáránleg
krafa en hún eru auðvitað gerð til
að teygja og tefja málið. Þeir nota
öll brögð sem þeir geta, sérstak
lega til að auka kostnaðinn enda er
slíkt ekkert sem þeir þurfa að hafa
áhyggjur af,“ segir Jóhann sem sér
fram á milljóna króna viðbótar
kostnað vegna áfrýjunarinnar.
Miðað við vinnslu mála hjá áfrýj
unardómstólnum segir Jóhann
niðurstöðu þar að vænta í fyrsta lagi
í desember 2021. Málið verði tekið
fyrir af þremur dómurum. Verði þá
fallist á kröfu hans um áfrýjun, hefj
ist málið upp á nýtt við dómstólinn
í Los Angeles þar sem það var upp
haflega rekið.
Jóhann segir málskostnaðar
kröfu andstæðinga sinna hafa gert
lögmanni hans kleift að setja inn
gögn sem ekki hafi mátt leggja
fram áður en muni nú gagnast í
málinu öllu. Þetta eigi sérstaklega
við um lögfræðiálit sem unnið var
fyrir Jóhann í Englandi árið 2008
og hann telji hagstætt fyrir sig. „Og
auðvitað vonar maður að á end
anum verði úrskurður tveggja
dómara af þremur manni í hag.“
gar@frettabladid.is
Áfrýja og krefjast tugmilljóna
áfram af Jóhanni Helgasyni
Jóhann Helgason er ekki sloppinn undan 44 milljóna króna kröfu Warner og Universal eins og hann
hélt, eftir að dómstóllinn hafnaði kröfunni. Áfrýjun tónlistarfyrirtækjanna verður tekin fyrir samhliða
áfrýjun Jóhanns sjálfs, eftir að máli hans vegna meints stuldar á Söknuði var vísað frá dómi í Los Angeles.
Jóhann Helgason trúir ekki að hann verði dæmdur til að greiða málskostnað andstæðinganna. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Þeir nota öll brögð
sem þeir geta,
sérstaklega til að auka
kostnaðinn enda er slíkt
ekkert sem þeir þurfa að
hafa áhyggjur af.
Jóhann Helgason tónlistarmaður
COVID -19 Fimmtíu manns eru í
einangrun vegna kórónaveiru
smits á Íslandi. Af þeim eru níu
með smit af óþekktum uppruna.
Unnið er að rakningu. Þeirra á
meðal er erlendur ferðamaður sem
greindist neikvæður við skimun á
landamærum en jákvæður í ann
arri sýnatöku á fimmtudagskvöld.
Hann er nú í einangrun á Akureyri,
en þrír úr fjölskyldu hans í sóttkví.
Einn er enn á spítala vegna veikinda
af völdum veirunnar. Í sóttkví voru
287 þegar Fréttablaðið fór í prentun
í gær.
Íslensk erfðagreining vinnur nú
aftur að skimun einstaklinga fyrir
COVID19 í samvinnu við sótt
varnalækni. Skimunin fer fram í
Turninum í Kópavogi.
Skimun hefur aftur farið af
stað hjá Íslenskri erfðagreiningu
með það að markmiði að kanna
útbreiðslu veirunnar hér á landi,
svo hægt sé að meta þörf fyrir frek
ari aðgerðir. Þá er vonast til að hægt
verði að rekja uppruna smitanna
sem nú eru í gangi.
Fólk sem er boðað í skimun fær
boð um þátttöku með textaskila
boðum og hvetur sóttvarnalæknir
alla sem fá boð til að taka þátt.
Þór ólfur Guðna son sótt varna
læknir sagði á upp lýsinga fundi al
manna varna í gær að næsta vika
eða tvær muni ráða úr slitum um
það, hvort slakað verði aftur á sam
komu tak mörkunum eða hert enn
meira á þeim. – aá, – ókp
Hátt í þrjúhundruð manns eru í sóttkví og fimmtíu í einangrun
Þríeikið var fullmannað á COVID -
vaktinni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
S A M F É L AG Vinnumálastof nun
var tilkynnt um tvær hópupp
sagnir í júlí sem ná til 79 manns.
Það eru helmingi færri en sagt var
upp í júní, þegar 155 var sagt upp í
hópuppsögnum. Kúfurinn var hins
vegar í apríl og maí, þegar yfir fimm
þúsund manns var sagt upp í 58
hópuppsögnum.
Vinnumálastofnun tilkynnti í gær
að þjónustuskrifstofum verði lokað
í ljósi hertari reglna um sóttvarnir
og til að tryggja afgreiðslu bóta. – aá
Hópuppsagnir
í júlí voru tvær
SAMFÉLAG Íslendingar hafa verið
lítið á faraldsfæti að undan
förnu, sem fékkst endanlega stað
fest með tilkynningu Þjóðskrár um
útgefin vegabréf fyrir júnímánuð.
Þar segir að í júní hafi aðeins verið
gefin út 879 vegabréf en í sama
mánuði í fyrra voru gefin út 3.231
vegabréf. Það gerir fækkun upp á 73
prósent milli ára. Það má því búast
við að hin margfræga vegabréfaröð
sé ekki jafn löng þessi misserin. – bb
Engin biðröð í
íslensk vegabréf
COVID-19 Hlé verður gert á æfingum
og keppni í íþróttum með snertingu
til 13. ágúst. Hléið tekur til allra sem
fæddir eru 2004 og fyrr. Æfingar og
keppni í íþróttum án snertingar,
getur haldið áfram, að virtum
reglum almannavarna.
Einn leikmaður Víkings í Ólafs
vík er smitaður af COVID19. Þetta
kom fram í tilkynningu frá Víkingi.
Stjórn KSÍ hafði þegar samþykkt
að fresta öllum leikjum til fimmta
ágúst, á aukafundi stjórnar sam
bandsins á fimmtudag. Lengju
deildin og 2. deild karla áttu að spila
á mánudag og Pepsideildin átti að
fara aftur af stað á þriðjudag. – bb
Hlé á keppni og
og æfingum
1 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð