Fréttablaðið - 01.08.2020, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 01.08.2020, Blaðsíða 24
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Guðrún segist hafa fundið fyrir óþægindum í líkam-anum árum saman. „Þrátt fyrir að ég hafi farið í vel heppnaða hnéaðgerð hef ég verið gjörsam- lega ónýt í líkamanum. Gat ekkert gengið vegna mikils sársauka. Ég fór til læknis og var greind bæði með vefja- og slitgigt,“ segir hún. „Ég hef prófað að taka inn ýmis konar náttúruefni sem áttu að hjálpa og sömuleiðis hef ég farið í endurhæfingu. Það hjálpaði mér talsvert, en óþægindin héldu áfram að hrjá mig,“ bætir hún við. Guðrún sá umfjöllun og ummæli um Active Joints frá Eylíf heilsuvörum. „Ég las innihalds- lýsingar og þær hvöttu mig til að prófa. Einnig hafði vinkona mín mælt með Actice Joints, svo það var ekkert annað í stöðunni en að prófa. Vá, ég er þakklát, því eftir einungis tvær vikur var eins og ég væri leyst úr fjötrum, eða bönd hefðu verið skorin utan af mér. Allar mínar hreyfingar urðu auðveldari og sársaukalausar,“ segir hún. Guðrún segist finna örlítið fyrir öðru hnénu, en að öðru leyti sé þetta nýtt og betra líf. Undanfarið hef ég ekki getað stundað æfingar vegna COVID-19. Það eru tveir mánuðir síðan ég byrjaði að taka inn Active Joints og ég get gengið um í dag, sem ég gat ekki áður með góðu móti. Fyrr í vetur hélt ég að ég væri útbrunnin, en svo er aldeilis ekki. Ég get því hiklaust mælt með Active Joints frá Eylíf. Það sem ég hef upplifað er stórkostlegt og ég þreytist því ekki á að dásama þessa vöru.“ Vörulína frá Eylíf Vörulínan Eylíf býður upp á tvær vörur, Active Joints og Stronger Bones, sem bæta heilsu liða og styrkja beinin. Vörurnar eru unnar úr hreinum, íslenskum hráefnum, framleiðslan fer fram á Íslandi og öll hráefnin koma úr sjálf bærum auðlindum. Ólöf Rún Tryggva- dóttir er stofnandi vörulínunnar Eylíf, en hugmyndin að henni kom til vegna þess að hana langaði að setja saman þau frábæru hráefni sem eru framleidd á sjálf bæran hátt úr náttúrulegum auðlindum á Íslandi og auka þannig aðgengi fólks að þessum hráefnum. Eins og áður segir eru tvær tegundir frá Eylíf komnar á markað, Active Joints og Stronger Bones, en tvær aðrar tegundir eru væntanlegar í haust. Þær eru fyrir húð og hár annars vegar og hins vegar fyrir meltinguna. „Active Joints inni- heldur uppbyggjandi næringarefni og margra ára rannsóknir sýna fram á jákvæð áhrif þeirra á heilsu beina, liðamóta, húðar og tanna. Það hefur áhrif á auma og viðkvæma liði, eykur sveigjan- leika þeirra, styrkir bein og eykur orku ásamt því að húð, neglur og hár njóta góðs af,“ segir Ólöf Rún. „Við vöndum til verka og sækjum í sjálf bærar auð- lindir úr sjó og af landi. Við notum hreina, íslenska náttúruafurð, náttúruleg og hrein hráefni sem ekki eru erfða- breytt og stuðla að sveigjanlegri liðum, því með sveigjanlegri líkama erum við færari til að takast á við verkefnin í dagsins önn.“ Hrein hráefni og sjálfbær framleiðsla „Eins og áður sagði notum við hrein, íslensk hráefni sem eru framleidd á sjálf bæran hátt í Eylíf vörurnar,“ segir Ólöf Rún. „Þau helstu eru kalkþörungar, GeoSi- lica, smáþörungar (astaxanthín) og íslenskar jurtir. Kalkþörungar og GeoSilica eru í báðum vör- unum, en smáþörungar (astaxant- hín) og íslenskt birki eru auka- lega í Active JOINTS ásamt C- og D3-vítamíni. Kalkþörungarnir vaxa villtir neðansjávar við Vestfirði og finnast helst í Arnarfirði, þar sem þeir eru tíndir neðansjávar. „Áhrif og virkni þeirra er einstök og þeir hafa verið rannsakaðir mjög ítar- lega undanfarin ár. Margar rannsóknir hafa staðfest einstaka eiginleika þeirra og góð áhrif á líkamann: þeir styrkja beinvef, byggja upp beinin, hafa góð áhrif á meltinguna og húðina og hafa líka reynst vel gegn sliti og óþægindum í liðum,“ segir Ólöf Rún. GeoSilica er náttúrulegur, hágæðakísill, sem er tekinn úr náttúrulegu jarðhitaefni við Hell- isheiðarvirkjun. „Kísillinn hefur öflug áhrif á bandvef og beinvef, hann styrkir húðina og eykur teygjanleika hennar. Kísill eykur líka beinþéttni, örvar hárvöxt og styrkir neglurnar, brjóskmyndun og æðakerfið. Virkni hans hefur verið staðfest með rannsóknum,“ upplýsir Ólöf Rún. Rannsóknir hafa líka staðfest virkni astaxanthín, eða smáþörunga, en það er öflugt andoxunarefni sem er 6.000 sinnum öflugra en C-víta- mín, segir Ólöf Rún. „Astaxanthín hefur einstaka eiginleika og góð áhrif á líkamann og má nefna öfluga virkni fyrir húðina, vöðvana, blóðrásina, hjartað og heilann. Það styrkir ónæmiskerfið og sjónina og virkar sem innri sólarvörn fyrir húðina, ásamt því að auka teygjanleika og mýkt hennar, en margar rann- sóknir hafa staðfest þessi áhrif.“ Astaxanthín er framleitt í lokuðu kerfi með hreinu, íslensku vatni, en framleiðslan er bæði vistvæn og sjálf bær og fer fram í Hafnarfirði og í Reykjanesbæ. „Allar jurtirnar sem eru notaðar í Eylíf vörulínuna eru handtíndar og þurrkaðar af íslensku fyrirtæki í Hafnarfirði. Birkilauf sem notuð eru í Active Joints hafa verið notuð frá örófi alda við ýmsum kvillum og hafa vatnslosandi eiginleika,“ segir Ólöf Rún. Nánari upplýsingar er að finna á eylif.is Ég get því hiklaust mælt með Active Joints frá Eylíf. Það sem ég hef upplifað er stórkostlegt og ég þreytist því ekki á að dásama þessa vöru, segir Guðrún. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Framhald af forsíðu ➛ Það eru tveir mánuðir síðan ég byrjaði að taka inn Active Joints og ég get gengið um í dag, sem ég gat ekki áður með góðu móti. Útsölustaðir: Öll apótek, Heilsuhúsið, Hagkaup, Melabúðin, Fjarðarkaup og eylif.is 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.