Fréttablaðið - 01.08.2020, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 01.08.2020, Blaðsíða 8
Gunnar ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Að ferða- þjónustunni slepptri hefur atvinnuupp- bygging utan höfuð- borgar- svæðisins á undan- förnum árum verið einstaklega óuppbyggi- leg. Jón Þórisson jon@frettabladid.is Mín skoðun Lára G. Sigurðardóttir Árið er ríflega hálfnað og óhætt að segja að það hafi verið viðburðaríkt. Óþarft er að rekja þau ósköp öll um veðurham og óáran. En nú er sumar og þá gleymist margt. Íslensk sumur eru óviðjafnanleg og þegar veður er upp á sitt besta, eins og verið hefur undanfarið, gleðjast gumar og leiðindi og þras hverfa og gufa upp eins og dögg á lyngi. Á ferð um landið leynir sér ekki að erlendir ferða­ menn eru færri en undanfarin sumur. Staðir þar sem ekki var þverfótað fyrir ferðafólki af fjölbreyttu þjóð­ erni eru nú fáfarnir og augljóst að innviðir, sem ætlað var að anna mun meiri aðsókn, eru vannýttir. Við allra vinsælustu náttúruperlur eru erlendir ferðamenn á stangli. Síld vorra daga vandfundin um þessar mundir. Hún kom og hún fór, eins og forðum. Í anda augnabliksins fögnum við því að hafa svig­ rúm til að njóta íslenskrar náttúru. Óviðjafnanlegri, sem við sumpart höfum gleymt. Undir niðri er vissan um að afleiðingar horfins straums erlendra ferða­ manna, bæði á menn og land, eru víðtækar og áhrifin geta orðið langvinn. Af hvaða tekjum taka ferðaþjón­ ustufyrirtækin afborganir og vexti af reisulegri upp­ byggingu sem nú aflar takmarkaðra tekna? Þetta horfir þó til betri vegar – ferðamannaflaumur­ inn utan frá eykst skref frá skrefi og smám saman verður þetta harðræði að baki, þótt engum sé fullkom­ lega rótt. Að ekki sé nú minnst á nýjustu tíðindi af óværunni með auknum takmörkunum. Í bjartri sumarnóttinni eru samt engar alvöru áhyggjur. Allt verður gott á ný. Puntstrá í munni og stöku súra, ilmur af töðu, fuglakvak og suðandi flugur. En það er ástæða til að hafa á sér vara. Fjöldi þeirra sem misstu vinnu sína í miðju kófinu munu ekki fá störf sín aftur og fara á berstrípaðar atvinnuleysis­ bætur þegar hausta fer, eða jafnvel fyrr. Greiða þarf af húsnæðislánum og sjá sér og sínum farborða. Nauð­ synjar ganga fyrir öðru. Þetta fólk mun ekki kaupa gistingu eða viðurgjörning. Í algleymi sumars má þetta ekki gleymast. Atvinnu­ leysisbætur duga vart nema til sárustu nauðþurfta. Umsetningu í íslensku efnahagslífi verður ekki haldið uppi af þessu fólki. Að ferðaþjónustunni slepptri hefur atvinnuupp­ bygging utan höfuðborgarsvæðisins á undanförnum árum verið einstaklega óuppbyggileg. Þau tvö kísilver sem hér hafa reynt að hasla sér völl hafa reynst tálsýn, svo dæmi sé tekið. Í tilviki PCC á Bakka við Húsavík var sendingin hefndargjöf. Gamaldags kjördæmapot bætti ekki úr skák og sérkennilegt að forystumaður í grænni hreyfingu skyldi gangast fyrir að leggja á kjós­ endur slíkar hörmungar. Og óvíst er hvort starfsemi Sameinaðs silíkons á Suðurnesjum hefjist á ný, enda sá rekstur byggður á blekkingarleik frá upphafi. En frá náttúrunnar hendi er landið gjöfult og hér er blómlegt. Þar er ekki um að villast. Það er því engin ástæða til að örvænta. Okkur leggst eitthvað til. Dagar sumars Þú hefur augljóslega ekki farið í klippingu lengi“ og „vissirðu að hár vex hraðar á sumrin,“ voru þær athugasemdir sem ég fékk frá doktors­ námsnefndinni eftir að ég kynnti rannsóknaráætlun mína um samband svefns og krabbameins fyrir meira en tíu árum. Ég man ekki aðrar samræður sem fóru fram þarna á fundinum, en hvaða burði ég hafði til námsins virtist aukaatriði. Minn ytri maður – kvenmaður – vakti meiri athygli en sá innri. Athugasemdir sem þessar eru ekki einsdæmi, hvorki í minn garð né annarra, sem hafa ekki talist til svokallaðra staðalímynda: „Ertu í alvöru læknir? Ég hélt þú værir fermingarbarn!“ Vertu hinsegin. Vertu svona. Vertu einhver önnur en þú ert. „Ó“-viðeigandi útlit Á dögunum birtist grein í virtu tímariti æðaskurð­ lækna. Það sem gerir greinina merkilega er að hún súmm erar upp hroka, fordóma og fyrirlitningu, sem fyrir finnst meðal ákveðinnar tegundar fólks sem við rekumst á daglega. Manneskjur þessar finnast í öllum stéttum og stöðum samfélagsins og eiga það sameigin­ legt að telja sig betri en aðra. Gáfaðri. Klárari. Betur klædda. Virðulegri. Með betri klippingu. Á bak við umrædda grein eru sjö læknar sem réðu „rannsóknarmenn“ til að stofna gerviaðgang á samfél­ agsmiðlum í þeim tilgangi að fylgjast með námslækn­ um í æðaskurðlækningum í Bandaríkjunum. Meðal atriða sem töldust óviðeigandi voru að láta sjá sig í bikiní eða hafa áfengi um hönd. Læknarnir sjö komust að því að fjórði hver námslæknir sýndi klárlega, eða mögulega, óviðeigandi efni á samfélagsmiðlum. Síðan ályktuðu þeir að ungir skurðlæknar ættu að hafa í huga að óviðeigandi efni sem sé opið fyrir almenningi er einnig aðgengilegt sjúklingum, samstarfsmönnum og vinnuveitendum. Ófaglegt efni á samfélagsmiðlum töldu greinarhöfundar ekki einungis varpa slæmu ljósi á einstaklinginn, heldur alla læknastéttina. Hvenær ætlar feðraveldið að slaka aðeins á? Fata­ val og útlit er eitthvað sem við notum til að styðja við okkar innri mann – en kemur ekki í staðinn fyrir hann. Öll af sama uppruna Stjarneðlisfræðingurinn Neil deGrasse Tyson segir að atómin sem við erum samsett úr getum við rakið til stjörnuryks – stjarna sem sundruðust í vetrar­ brautinni. Biblían segir að guð hafi skapað Adam úr jarðvegi og Evu úr rifi Adams. Af þeim sé mann­ kynið sprottið. Hvora kenninguna sem við aðhyll­ umst, þá eigum við öll sama uppruna. Í grunninn erum við gerð úr sömu atómum, hvort heldur við erum kona eða karl, hvít eða svört, stutthærð eða síðhærð. Æðaskurðlæknagreinin er eitt súrt dæmi um hvernig ákveðinn hópur fólks telur sig hafa rétt til þess að dæma og drottna yfir öðrum. Fólk sem tekur sér vald til að kúga aðra með háðsorðum, til að fylgja ímyndaðri formúlu um meðal annars klæðaburð eða klippingu. Með því að sperra sig hljóti þeir að vera meira viðeigandi. Ámæli um útlit er alvarlegt mál, því þegar við byrjum að þóknast öðrum til að komast hjá óþægi­ legum athugasemdum, þá erum við ekki lengur að lifa eftir eigin lífsgildum. Óþægilegar athugasemdir um útlit eru ekkert annað en gamaldags viðhorf sem þjónar engum tilgangi, öðrum en að upphefja egó eiganda þeirra. Því þótt einhver hafi plagg um menntun þá gerir það hinn sama ekki að sérstökum saksóknara í málum um staðalímyndir og útlit annarra. Okkar eigið útlit kemur í raun engum við nema okkur sjálfum, enda ólíklegt að það teljist glæpsamlegt. Og ef útlit annarra fer í taugarnar á okkur, þá höfum við alltaf val um að líta í eigin barm, eða líta annað. Dómnefndin Sími: 561 1433 mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 • Austurströnd 14 • Hringbraut 35 PREN TU N .IS NÝBAKAÐ BRAUÐ ALLA DAGA ....................................... www.bjornsbakari.is 1 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.