Fréttablaðið - 01.08.2020, Blaðsíða 7

Fréttablaðið - 01.08.2020, Blaðsíða 7
ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur, Katrínu sjálfa, og hér þó einkum Guðmund Inga Guðbrandsson, umhverfisráðherra, en líka Sigurð Inga Jóhannsson og Bjarna Benediktsson, harðlega, fyrir að standa að, leyfa eða líða það sem við teljum vera JARÐARVINIR Félagasamtök um dýra-, náttúru- og umhverfisvernd Ole Anton Bieltvedt, formaður Í dag, 1. ágúst, má aftur fara að skjóta hreinkýr, en kálfar þeirra fæðast fram að mánaðamótum maí-júní, og eru yngstu kálfar því rétt 8 vikna. Ekkert 8 vikna spendýr, hvorki hvolpar, lömb, kálfar né folöld, hafa náttúrulega burði til að standa á eigin fótum, ein með sjálfu sér, enda drekka hreinkálfar móðurmjólkina minnst til 5 mánaða aldurs og fylgja móður sinni fram á næsta vor, ef bæði lifa. Í september í fyrra beindi Fagráð um velferð dýra, undir stjórn yfirdýralæknis, þeim tilmælum til Umhverfisstofnunar (UST) og umhverfisráðherra, „að kýr verði ekki skotnar frá kálfum yngri en þriggja mánaða“. Skv. því hefði alls ekki mátt byrja að fella hreinkýr fyrr en 1. september. Guðmundur Ingi ákvað þó að fara að vilja Náttúrustofu Austurlands (NA) og UST, þar sem veiðimenn virðast gefa tóninn, eða ráða för, og fjárhags- legur ávinningur þessara stofnana og austfirskra bænda og landeigenda spila stóra rullu, í stað þess að taka af skarið og beita eigin valdi til að forða augljósu og kaldrifjuðu dýraníði. „Grænt“ var greinilega gleymt. Dýrin kvarta heldur ekki, en veiðimenn vaða uppi og er þægilegra að hafa þá stillta og góða. Eins var það gleymt eða virt að vettugi, að skv. skýrslum NA, benda allar líkur til þess, að um 600 hreinkálfar hafi farizt veturinn 2018-2019, en á sumum svæðum fórst allt að annar hver kálfur. Var vetur þó í mildara lagi. Líklegt er, að mestur hluti þeirra kálfa, sem fórust með þessum hörmulega hætti - úr hungri, kulda og vosbúð - hafi verið móðurlausir angar. Allir, sem láta sig dýra-, náttúru- og umhverfisvernd nokkru skipta, verða að velta því fyrir sér, hvort þeir vilji styrkja þetta fólk til nýrra valda. Það eru kosningar næsta haust.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.