Fréttablaðið - 01.08.2020, Side 7
ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur, Katrínu sjálfa, og hér þó
einkum Guðmund Inga Guðbrandsson, umhverfisráðherra, en
líka Sigurð Inga Jóhannsson og Bjarna Benediktsson, harðlega,
fyrir að standa að, leyfa eða líða það sem við teljum vera
JARÐARVINIR
Félagasamtök um dýra-, náttúru- og umhverfisvernd
Ole Anton Bieltvedt, formaður
Í dag, 1. ágúst, má aftur fara að skjóta hreinkýr, en kálfar þeirra fæðast fram að mánaðamótum
maí-júní, og eru yngstu kálfar því rétt 8 vikna. Ekkert 8 vikna spendýr, hvorki hvolpar, lömb,
kálfar né folöld, hafa náttúrulega burði til að standa á eigin fótum, ein með sjálfu sér, enda
drekka hreinkálfar móðurmjólkina minnst til 5 mánaða aldurs og fylgja móður sinni fram
á næsta vor, ef bæði lifa. Í september í fyrra beindi Fagráð um velferð dýra, undir stjórn
yfirdýralæknis, þeim tilmælum til Umhverfisstofnunar (UST) og umhverfisráðherra, „að kýr
verði ekki skotnar frá kálfum yngri en þriggja mánaða“. Skv. því hefði alls ekki mátt byrja að
fella hreinkýr fyrr en 1. september. Guðmundur Ingi ákvað þó að fara að vilja Náttúrustofu
Austurlands (NA) og UST, þar sem veiðimenn virðast gefa tóninn, eða ráða för, og fjárhags-
legur ávinningur þessara stofnana og austfirskra bænda og landeigenda spila stóra rullu, í stað
þess að taka af skarið og beita eigin valdi til að forða augljósu og kaldrifjuðu dýraníði. „Grænt“
var greinilega gleymt. Dýrin kvarta heldur ekki, en veiðimenn vaða uppi og er þægilegra að hafa
þá stillta og góða. Eins var það gleymt eða virt að vettugi, að skv. skýrslum NA, benda allar líkur
til þess, að um 600 hreinkálfar hafi farizt veturinn 2018-2019, en á sumum svæðum fórst allt að
annar hver kálfur. Var vetur þó í mildara lagi. Líklegt er, að mestur hluti þeirra kálfa, sem fórust
með þessum hörmulega hætti - úr hungri, kulda og vosbúð - hafi verið móðurlausir angar.
Allir, sem láta sig dýra-, náttúru- og umhverfisvernd nokkru skipta, verða að velta því
fyrir sér, hvort þeir vilji styrkja þetta fólk til nýrra valda. Það eru kosningar næsta
haust.