Fréttablaðið - 01.08.2020, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 01.08.2020, Blaðsíða 26
Ingó kom fyrst fram á Þjóðhátíð með hljómsveitinni Á móti sól. Hann leysti Magna Ásgeirsson, söngvara sveitarinnar af, sem á þeim tíma tók þátt í raunveru- leikaþættinum Rockstar Super- nova, sem margir muna eftir. Ingó átti ekki von á því að einn góðan veðurdag myndi hann leiða brekkusönginn, sem er einn af hápunktum Þjóðhátíðar, en sú varð raunin. Hann tók við keflinu af Árna Johnsen á sínum tíma. „Árni er kannski ekki frábær gítarleikari en hann gerði þetta samt mjög vel. Hann byrjaði með þennan brekku- söng sem núna er vinsæll um allt land. Mér fannst pressa að koma á eftir honum en undirbjó mig vel og skoðaði það sem hann hafði gert og hvað myndi svo passa mínum karakter,“ segir Ingó, sem einnig hefur margoft komið fram með hljómsveit sinni, Veðurguðunum, á Þjóðhátíð. Í ár verður brekkusöngurinn með öðru sniði en vanalega því Þjóðhátíðin fellur niður. Það hefur aðeins einu sinni áður gerst í sögunni. „Ég ætla að telja í brekku- söng í Sjónvarpi Símans milli klukkan 10 og 11 annað kvöld. Það verður örugglega öðruvísi en vana- lega, ekkert fólk í brekkunni að syngja með, en það verður gaman að syngja fyrir þá sem eru heima, í sumarbústaðnum, eða á ferðalagi og vonandi tekur fólk undir með mér,“ segir Ingó, sem ætlar að taka þessi klassísku útilegulög sem allir þekkja, auk eigin laga. „Ég verð með gítarinn með mér og svo ætlar Einar Örn Jónsson að spila undir á píanó, en hann var lengst af hljóm- borðsleikari Í svörtum fötum. Við höfum spilað mikið saman í gegnum tíðina.“ Þegar Ingó er spurður hvernig tilfinning það sé að vera í Reykja- vík um verslunarmannahelgina segist hann upplifa það eins og að vera í fríi. „Ég reikna með að vera í Vestmannaeyjum þessa helgi næstu árin, svo það er gaman að prófa eitthvað nýtt og koma svo sterkur inn á næstu Þjóðhátíð,“ bætir hann Ingó við, en hann á ættir að rekja til Eyja. „Pabbi er þaðan og afi minn og amma búa þar, ásamt föðurbróður mínum. Ég var mikið þar sem barn, stundaði lundapysjuveiðar og sprangaði í klettunum þar eins og krakkar í Eyjum gera,“ upplýsir hann. Heldur hjólunum gangandi Kórónaveirufaraldurinn hefur ekki haft áhrif á Ingó hvað varðar vinnu. „Ég hef aldrei haft meira að gera. Ég spila mikið á litlum sam- komum, svo sem brúðkaupum og afmælum og hef ekki mikið verið með stóra tónleika. Þetta ástand er erfiðast fyrir þá sem eru þar. Ég hef náð að halda hjólunum gangandi og það hjálpar að eiga vinsæl lög,“ segir Ingó, sem á einmitt Þjóð- hátíðarlagið í ár. „Þjóðhátíðar- nefnd hafði samband við mig fyrir áramótin og bað mig um að huga að því. Mér fannst það smá pressa en fékk bróður minn, Guðmund Þórarinsson, til að semja það með mér og Halldór Gunnar Fjalla- bróðir pródúseraði síðan lagið. Ég var ekkert að stressa mig of mikið á þessu því ég hafði trú á því að lagið kæmi til okkar, sem það svo gerði. Við fylgdum eigin sannfær- ingu og erum mjög ánægðir með lokaniðurstöðuna en lagið heitir Takk fyrir mig.“ Sungið með sjónvarpinu Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, steig fyrst á svið á Þjóðhátíð í Vest- mannaeyjum sem afleysingasöngvari. Nú verður brekkusöngurinn annað kvöld á skjánum. Ingó vonar að fólk taki undir með sér þegar hann leiðir brekkusönginn annað kvöld, hvort sem fólk er heima hjá sér, í sumarbústaðnum eða á ferðalagi. Hann verður með gítarinn og fjörið í farteskinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@frettabladid.is Ég hef aldrei haft meira að gera. Ég spila mikið á litlum samkomum, svo sem brúðkaupum og afmæl- um og hef ekki mikið verið með stóra tónleika. Ég hef náð að halda hjólunum gangandi og það hjálpar að eiga vinsæl lög. Að tína ber er hin besta skemmtun. Öll fjölskyldan getur tekið þátt og fær í sig hreint loft í íslenskri náttúru um leið. Þar fyrir utan eru berin víta- mínrík og holl. Gaman er að taka með sér nesti og njóta náttúrunnar á milli þess sem berin eru leituð uppi. Þótt hægt sé að kaupa bláber allt árið eru þau íslensku miklu betri. Bláberin eru oft farin að þroskast vel um miðjan ágúst ef veður er gott. Það má vel tína berin með höndunum en það er fljótlegra með þar til gerðri berjatínu. Bláber má frysta og geyma til vetrarins. Hér er uppskrift að bláberja- köku sem er æðislega góð og frá- bært að nota nýtínd ber þegar þar að kemur. Þangað til má kaupa ber og prufa kökuna um helgina. Bláberjakaka 350 g hveiti 200 g sykur 2 tsk. fínhakkaður sítrónubörkur 1 tsk. lyftiduft 220 g kalt smjör, skorið í bita 1 egg Fylling 500 g bláber, skolið berin fyrir notkun 50 g sykur 4 tsk. kartöflumjöl Hitið ofninn í 180°C. Setjið hveiti, sykur, lyftiduft og sítrónubörk í matvinnsluvél og blandið saman. Setjið því næst kalt smjör saman við og hrærið. Þá er eggið sett út í og hrært aftur. Takið helminginn af deiginu og setjið í form sem er klætt með bökunarpappír. Þrýstið deiginu fallega yfir formið með fingrunum. Setjið bláberin í skál með sykri, kartöflumjöli og sítrónuberki og hrærið varlega saman. Dreifið berj- unum jafnt yfir deigið. Dreifið því sem eftir er af deiginu yfir kökuna. Má vera gróflega gert því þetta er mulningur (crumble). Bakið kökuna í um það bil 40 mínútur eða þar til hún verður gullinbrún. Látið kólna aðeins áður en hún er borin fram. Kakan er góð með vanilluís eða þeyttum rjóma. Það má alveg skreyta diskinn með ferskum bláberjum, hindberjum eða jarðarberjum. Styttist í berjamó Það styttist í berjatímabilið. Berjatínsla er skemmtileg fjölskylduskemmtun og íslensku bláberin eru ljúffeng. Æðisleg bláberja- kaka sem eftir- réttur eða með kaffinu. MYND/GETTY Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Mest selda liðbætiefni á Íslandi LIÐVERKIR, STIRÐLEIKI EÐA BRAK Í LIÐUM? 2-3ja mánaða skammtur í hverju glasi 00000 www.veidikortid.is Hvar ætlar þú að veiða í sumar? Útsölustaðir: N1, OLÍS, veiðivöruverslanir 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.