Fréttablaðið - 01.08.2020, Side 24
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656,
Guðrún segist hafa fundið fyrir óþægindum í líkam-anum árum saman. „Þrátt
fyrir að ég hafi farið í vel heppnaða
hnéaðgerð hef ég verið gjörsam-
lega ónýt í líkamanum. Gat ekkert
gengið vegna mikils sársauka. Ég
fór til læknis og var greind bæði
með vefja- og slitgigt,“ segir hún.
„Ég hef prófað að taka inn ýmis
konar náttúruefni sem áttu að
hjálpa og sömuleiðis hef ég farið
í endurhæfingu. Það hjálpaði
mér talsvert, en óþægindin héldu
áfram að hrjá mig,“ bætir hún við.
Guðrún sá umfjöllun og
ummæli um Active Joints frá Eylíf
heilsuvörum. „Ég las innihalds-
lýsingar og þær hvöttu mig til að
prófa. Einnig hafði vinkona mín
mælt með Actice Joints, svo það
var ekkert annað í stöðunni en
að prófa. Vá, ég er þakklát, því
eftir einungis tvær vikur var eins
og ég væri leyst úr fjötrum, eða
bönd hefðu verið skorin utan af
mér. Allar mínar hreyfingar urðu
auðveldari og sársaukalausar,“
segir hún.
Guðrún segist finna örlítið fyrir
öðru hnénu, en að öðru leyti sé
þetta nýtt og betra líf. Undanfarið
hef ég ekki getað stundað æfingar
vegna COVID-19. Það eru tveir
mánuðir síðan ég byrjaði að taka
inn Active Joints og ég get gengið
um í dag, sem ég gat ekki áður með
góðu móti. Fyrr í vetur hélt ég að ég
væri útbrunnin, en svo er aldeilis
ekki. Ég get því hiklaust mælt með
Active Joints frá Eylíf. Það sem
ég hef upplifað er stórkostlegt og
ég þreytist því ekki á að dásama
þessa vöru.“
Vörulína frá Eylíf
Vörulínan Eylíf býður upp á tvær
vörur, Active Joints og Stronger
Bones, sem bæta heilsu liða og
styrkja beinin. Vörurnar eru unnar
úr hreinum, íslenskum hráefnum,
framleiðslan fer fram á Íslandi og
öll hráefnin koma úr sjálf bærum
auðlindum. Ólöf Rún Tryggva-
dóttir er stofnandi vörulínunnar
Eylíf, en hugmyndin að henni kom
til vegna þess að hana langaði að
setja saman þau frábæru hráefni
sem eru framleidd á sjálf bæran
hátt úr náttúrulegum auðlindum
á Íslandi og auka þannig aðgengi
fólks að þessum hráefnum.
Eins og áður segir eru tvær
tegundir frá Eylíf komnar á
markað, Active Joints og Stronger
Bones, en tvær aðrar tegundir eru
væntanlegar í haust. Þær eru fyrir
húð og hár annars vegar og hins
vegar fyrir meltinguna.
„Active Joints inni-
heldur uppbyggjandi
næringarefni og margra
ára rannsóknir sýna fram
á jákvæð áhrif þeirra á
heilsu beina, liðamóta,
húðar og tanna. Það
hefur áhrif á auma
og viðkvæma liði,
eykur sveigjan-
leika þeirra, styrkir
bein og eykur orku
ásamt því að húð,
neglur og hár njóta
góðs af,“ segir Ólöf
Rún. „Við vöndum
til verka og sækjum
í sjálf bærar auð-
lindir úr sjó og af
landi. Við notum
hreina, íslenska
náttúruafurð,
náttúruleg og
hrein hráefni sem
ekki eru erfða-
breytt og stuðla
að sveigjanlegri
liðum, því með
sveigjanlegri
líkama erum við
færari til að takast
á við verkefnin í
dagsins önn.“
Hrein hráefni
og sjálfbær framleiðsla
„Eins og áður sagði notum við
hrein, íslensk hráefni sem eru
framleidd á sjálf bæran hátt í Eylíf
vörurnar,“ segir Ólöf Rún. „Þau
helstu eru kalkþörungar, GeoSi-
lica, smáþörungar (astaxanthín)
og íslenskar jurtir. Kalkþörungar
og GeoSilica eru í báðum vör-
unum, en smáþörungar (astaxant-
hín) og íslenskt birki eru auka-
lega í Active JOINTS ásamt C- og
D3-vítamíni.
Kalkþörungarnir vaxa villtir
neðansjávar við Vestfirði og
finnast helst í Arnarfirði, þar sem
þeir eru tíndir neðansjávar. „Áhrif
og virkni þeirra er einstök og þeir
hafa verið rannsakaðir mjög ítar-
lega undanfarin ár.
Margar rannsóknir hafa staðfest
einstaka eiginleika þeirra og góð
áhrif á líkamann: þeir styrkja
beinvef, byggja upp
beinin, hafa góð áhrif á
meltinguna og húðina og hafa líka
reynst vel gegn sliti og óþægindum
í liðum,“ segir Ólöf Rún.
GeoSilica er náttúrulegur,
hágæðakísill, sem er tekinn úr
náttúrulegu jarðhitaefni við Hell-
isheiðarvirkjun. „Kísillinn hefur
öflug áhrif á bandvef og beinvef,
hann styrkir húðina og eykur
teygjanleika hennar. Kísill eykur
líka beinþéttni, örvar hárvöxt og
styrkir neglurnar, brjóskmyndun
og æðakerfið. Virkni hans hefur
verið staðfest með rannsóknum,“
upplýsir Ólöf Rún.
Rannsóknir hafa líka staðfest
virkni astaxanthín, eða
smáþörunga, en það er
öflugt andoxunarefni
sem er 6.000 sinnum
öflugra en C-víta-
mín, segir Ólöf
Rún. „Astaxanthín
hefur einstaka
eiginleika og góð
áhrif á líkamann
og má nefna öfluga
virkni fyrir húðina,
vöðvana, blóðrásina,
hjartað og heilann. Það styrkir
ónæmiskerfið og sjónina og virkar
sem innri sólarvörn fyrir húðina,
ásamt því að auka teygjanleika og
mýkt hennar, en margar rann-
sóknir hafa staðfest þessi áhrif.“
Astaxanthín er framleitt í
lokuðu kerfi með hreinu, íslensku
vatni, en framleiðslan er bæði
vistvæn og sjálf bær og fer fram
í Hafnarfirði og í Reykjanesbæ.
„Allar jurtirnar sem eru notaðar í
Eylíf vörulínuna eru handtíndar
og þurrkaðar af íslensku fyrirtæki
í Hafnarfirði. Birkilauf sem notuð
eru í Active Joints hafa verið notuð
frá örófi alda við ýmsum kvillum
og hafa vatnslosandi eiginleika,“
segir Ólöf Rún.
Nánari upplýsingar er að finna á
eylif.is
Ég get því hiklaust mælt með Active Joints frá Eylíf. Það sem ég hef upplifað er stórkostlegt og ég þreytist því ekki á að dásama þessa vöru, segir Guðrún. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Framhald af forsíðu ➛ Það eru tveir
mánuðir síðan ég
byrjaði að taka inn
Active Joints og ég get
gengið um í dag, sem ég
gat ekki áður með góðu
móti.
Útsölustaðir:
Öll apótek,
Heilsuhúsið,
Hagkaup,
Melabúðin,
Fjarðarkaup og
eylif.is
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R