Fréttablaðið - 01.08.2020, Page 10
Það er ekki hægt að
bera saman hvernig
það er að dæma í Írak og hér
á landi. Bæði er umhverfið
allt annað á meðan á leikn-
um stendur og í kringum
leikina.
FÓTBOLTI „Ég spilaði fótbolta þegar
ég var ungur og 16 ára gamall fór ég
svo að dæma leiki. Ég hafði alltaf
haft mikinn áhuga á dómgæslu og
þegar við félagarnir vorum að leika
okkur í fótbolta tók ég oft að mér að
dæma leikina.
Það var draumurinn að dæma í
efstu deild í Írak og á alþjóðlegum
vettvangi. Sökum þess að ég er
Kúrdi þá var mér haldið frá alþjóð-
legum verkefnum, en ég dæmdi hins
vegar í efstu deild í Írak áður en ég
f luttist þaðan,“ segir Ahmad um
bakgrunn sinn.
„Knattspyrnusambandið í Írak er
staðsett í Bagdad og því er stjórnað
af sjíum. Sú staðreynd að ég er Kúrdi
varð til þess að ég fékk ekki stærstu
verkefnin í heimalandinu og ekki
möguleikann á að fá alþjóðleg verk-
efni sem Írökum standa til boða.
Félagar mínir í íröksku dómara-
stéttinni sem eru Arabar búsettir í
Bagdad, fengu hins vegar sjénsinn.
Það var mjög sorglegt að geta ekki
þróað dómaraferil minn meira í
heimalandinu mínu vegna þjóð-
félagsstöðu minnar þar,“ segir hann
enn fremur um reynslu sína.
Fékk ekki að dæma leiki hjá
fullorðnum í Þýskalandi
„Ég hef aftur á móti dæmt leiki í
efstu deild í Írak og leiki í Katar.
Fyrir fimm árum síðan f lutti ég
með fjölskyldu minni og móður
minni og föður í f lóttamannabúðir
í Þýskalandi. Þar langaði mig að fá
tækifæri til þess að dæma hjá full-
orðnum í deildarkeppni. Þar sem ég
kann ekki þýsku fékk ég einungis að
dæma hjá börnum, þrátt fyrir að ég
væri með alþjóðleg dómarapróf frá
FIFA,“ segir Ahmad um dvöl sína í
Þýskalandi.
Dreymir um að dæma í efstu deild
Írakinn Twana Khalid Ahmad fluttist hingað til lands fyrir þremur árum. Ahmad fékk íslenska kennitölu fyrir tveimur árum síðan.
Hann var knattspyrnudómari í heimalandi sínu frá 16 ára aldri. Þegar hann kom svo til Íslands byrjaði hann að dæma hér á landi.
Twana Khalid Ahmad flutti til Íslands fyrir þremur árum síðan. Hefur 13 ára
reynslu sem dómari en þurfti að byrja hér frá grunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Korpuskóli
til leigu
Nánari upplýsingar á reykjavik.is/leiga
Húsnæði sem til þessa hefur hýst Korpuskóla er til leigu. Húsið Bakkastaðir 2 er 2.816 m2 á
einni hæð og er hannað sem skólahúsnæði en getur nýst vel fyrir aðra starfsemi. Það er allt
laust til leigu, en einnig er mögulegt að bjóða í leigu á hluta hússins.
Eignaskrifstofa Reykjavíkurborgar sýnir húsið og veitir nánari upplýsingar. Fyrirspurnir sendist
á netfangið: esr@reykjavik.is
Tilboðum um leiguverð ásamt upplýsingum um fyrirhugaða nýtingu hússins skal skila í lokuðu
umslagi merkt „Leiga á Korpuskóla“ í afgreiðslu þjónustuvers Reykjavíkurborgar, Borgartúni
12-14 fyrir kl. 13.00 föstudaginn 28. ágúst 2020.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Til leigu
„Þegar við fengum tækifæri til
að f lytja til Íslands ákváðum við
að grípa það og freista þess að leita
að betra lífi. Ég vissi nokkuð mikið
um Ísland og var meðvitaður um
fólksfjöldann og hvar á hnettinum
landið er. Ég þekkti Eið Smára [Guð-
johnsen] og Gylfa Þór [Sigurðsson].
Það er gaman að sjá að Eiður Smári
sé farinn að þjálfa á Íslandi. Ég held
hins vegar með Real Madrid, af því
að Zinedine Zidane er uppáhalds-
leikmaðurinn minn, þannig að ég
studdi Eið Smára ekki þegar hann
lék með Barcelona.
Ég hélt hins vegar áður en ég kom
hingað að hér væri töluð enska.
Áður en ég kom hingað var ég
þokkalegur í ensku, en ég hef lært
hana betur á þeim árum sem ég hef
verið hér. Þá er ég farinn að skilja
íslensku að einhverju leyti og tala
smávegis. Ég skil til dæmis hvað
leikmenn eru að segja í kringum
mig þegar ég er að dæma, en tjái mig
á ensku við þá til baka.
Það er ekki hægt að bera saman
hvernig það er að dæma í Írak og
hér á landi. Bæði er umhverfið allt
annað meðan á leiknum stendur
og í kringum leikina. Það er mikill
hiti í leikjunum í Írak og allir brjál-
aðir, alveg sama hvernig þú dæmir.
Á Íslandi eru leikmenn og þjálf-
arar vingjarnlegir og gera athuga-
semdir við ákvarðanir þínar á mun
hófstilltari hátt. Það eru svo dæmi
þess að dómarar hafi verið líf látnir
ef þeir hafa ekki dæmt ákveðnum
liðum í hag,“ segir dómarinn.
Kann Gunnari Jarli og Magnúsi
miklar þakkir fyrir hjálpina
„Fljótlega eftir að ég kom hingað
kynntist ég Gunnari Jarli [Jónssyni]
sem þekkir til í dómarabransanum.
Gunnar Jarl kom mér í samband við
KSÍ og þar var mér mjög vel tekið.
Magnús [Jónsson], dómarastjóri
KSÍ, hefur veitt mér verkefni. Það
var svolítið leitt að þurfa að byrja
frá botni í ljósi þeirrar reynslu
sem ég hef, en ég er fyrst og fremst
þakklátur fyrir þau tækifæri sem
ég hef fengið. Ég kann mjög vel við
það hversu mikið Gunnar Jarl og
Magnús hafa aðstoðað mig. Nú er
ég að dæma í 4. og 3. deild karla
og í 2. f lokki karla. Vonandi næ ég
að sanna mig og færa mig upp um
deildir sem fyrst. Ég ætla að taka
þrekprófið fyrir næsta tímabil.
Draumurinn er svo að dæma í efstu
deild,“ segir þessi metnaðarfulli
dómari.
„Okkur líður mjög vel á Íslandi en
við konan mín eigum tvær dætur og
einn son. Elsta dóttirin er byrjuð í
skóla og þau eru öll farin að tala
góða íslensku. Börn eru ótrúlega
snögg að læra ný tungumál. Ég er
að vinna á Bæjarins bestu og við
höfum komið okkur fyrir í Garða-
bænum. Planið er að færa okkur til
Reykjavíkur. Við sjáum fyrir okkur
að búa hér áfram og værum vel til
í að festa rætur hér. Ísland hefur
tekið okkur opnum örmum,“ segir
Ahmad. hjorvaro@frettabladid.is
1 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT